Hrefna Guðrún Guðmundsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Hrefna Guðrún Guðmundsdóttir frá Lyngbergi, húsfreyja fæddist 11. september 1936 og lést 2. maí 2010.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Guðmundsson málarameistari, f. 18. maí 1905 á Leirum u. Eyjafjöllum, d. 14. september 1981, og fyrri kona hans Sigrún Guðmundsdóttir frá Litla-Skarði í Stafholtstungum í Borgarfirði, d. 18. ágúst 2008.

Börn Guðmundar og Sigrúnar:
1. Fanney Guðmundsdóttir, f. 22. maí 1934 í Ásnesi. Maður hennar Jón Hólmgeirsson.
2. Andvana stúlka, f. 9. júlí 1935 í Hljómskálanum, (Hvítingavegi 10).
3. Hrefna Guðrún Guðmundsdóttir, f. 11. september 1936 í Hljómskálanum, d. 2. maí 2010. Maður hennar Guðbrandur Eiríksson, látinn.
4. Unnur Guðmundsdóttir, f. 10. júlí 1938 í Hljómskálanum, d. 25. apríl 1997. Maður hennar Ólafur Ágústsson, látinn.
5. Már Guðmundsson málari, f. 19. ágúst 1939 í Hljómskálanum. Kona hans Jóhanna Kristjánsdóttir.

Börn Sigrúnar og Þórðar Ólafssonar:
6. Gylfi Þórðarson, f. 4. október 1943. Kona hans var Hrönn Kristjánsdóttir.
7. Dagný Þórðardóttir, f. 10. mars 1945, d. 12. mars 1982. Maður hennar var Reynir Ríkharðsson.
8. Andvana drengur.
9. Rúnar Þór Þórðarson, f. 17. desember 1951. Fyrri kona hans var Björk Birgisdóttir. Síðari kona hans Margrét Guðfinnsdóttir.

Börn Guðmundar og Herdísar Einarsdóttur Höjgaard:
1. Ólöf Díana Guðmundsdóttir, f. 6. júní 1946 á Lyngbergi. Maður hennar Njáll Ölver Sverrisson.
2. Jón Einar Guðmundsson, f. 18. apríl 1950 á Lyngbergi. Kona hans Sólveig Snorradóttir.
3. Viðar Guðmundsson, f. 24. júní 1957 á Lyngbergi. Kona hans Lára Emilsdóttir.
4. Sæunn Helena Guðmundsdóttir, f. 19. nóvember 1960 á Lyngbergi. Maður hennar Haraldur Haraldsson.

Hrefna var með foreldrum sínum, en þau skildu, er hún var 12 ára. Hún var með föður sínum og síðari konu hans á Lyngbergi 1949.
Þau Guðbrandur giftu sig 1972, eignuðust ekki börn saman.
Hrefna lést 2010 og Guðbrandur 2018.

I. Maður Hrefnu, (5. ágúst 1972), var Guðbrandur Eiríksson skrifstofustjóri, f. 12. apríl 1926 í Reykjavík, d. 23. nóvember 2018 í dvalarheimili aldraðra í Víðihlíð í Grindavík. Foreldrar hans voru Eiríkur Tómasson skipstjóri í Grindavík, f. 8. desember 1898, d. 2. september 1941 og Margrét Eiríksdóttir frá Byggðarenda í Grindavík, f. 31. janúar 1903, d. 27. október 1986. Fósturfaðir Eiríks var Alexander Georg Sigurðsson verkamaður í Grindavík, f. 16. september 1893, d. 17. maí 1942.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.