Oddfríður Jóhannsdóttir (Litlu-Löndum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Oddfríður Jóhannsdóttir húsfeyja, verkakona á Litlu-Löndum fæddist 23. september 1909 í Reykjavík og lést 11. desember 1983.
Faðir hennar var Jóhann Bergur sjómaður á Fáskrúðsfirði, Reykjavík og síðast í Sandgerði, f. 13. nóvember 1877 í Steinasókn undir Eyjafjöllum, d. 28. mars 1948, Jónsson bónda á Leirum þar 1890, f. 16. júlí 1830, d. 12. september 1900, Björnssonar bónda í Stóru-Mörk undir Eyjafjöllum, f. 10. desember 1799, d. 20. september 1889, Jónssonar, og konu Björns, Ragnhildar húsfreyju í Stóru-Mörk 1835, f. 1801, d. 18. maí 1843, Magnúsdóttur.
Móðir Jóhanns Bergs og kona Jóns á Leirum var Anna húsfreyja, f. 2. febrúar 1831 í Mýrdal, d. 1. júní 1916, Hafliðadóttir bónda á Dyrhólum 1835, f. 1795, d. 5. maí 1873, Ólafssonar í Neðri-Dal 1801, Skúlasonar og konu Ólafs, Katrínar Hafliðadóttur.
Móðir Önnu Hafliðadóttur og kona Hafliða var Þrúður húsfreyja, f. 21. júní 1802, d. 6. janúar 1837, Eyjólfsdóttir bónda í Pétursey, Stefánssonar.

Móðir Oddfríðar og kona Jóhanns Bergs var Jónína Guðrún húsfreyja í Mörk í Reykjavíkursókn 1901, f. 16. júní 1880, d. 26. mars 1943, Jónsdóttir bónda á Brennistöðum í Borgarhreppi í Mýrasýslu, síðast á Ölvaldsstöðum, f. 17. september 1848, d. 9. júlí 1925, Guðmundssonar bónda í Stangarholti og víðar í Borgarfirði, f. 12. júlí 1820, d. 25. janúar 1899, og síðari konu Guðmundar, Guðrúnar húsfreyju, f. 19. október 1819, d. 22. júní 1895, Jónsdóttur.
Móðir Jónínu Guðrúnar í Mörk og kona Jóns á Brennistöðum var Oddfríður húsfreyja, f. 27. nóvember 1850, d. 23. nóvember 1933 Þorvaldsdóttir bónda á Brennistöðum, f. 29. október 1823, d. 22. júní 1863, Eyjólfssonar bónda á Kvíslhöfða í Álftaneshreppi, f. 27. júlí 1795, d. 31. maí 1866, Jónssonar, og konu Eyjólfs, Oddfríðar húsfreyju, f. 11. október 1794, d. 3. apríl 1845, Þorvaldsdóttur.
Móðir Oddfríðar á Brennistöðum og kona Þorvaldar á Brennistöðum var Guðrún húsfreyja, f. 1828, d. 10. desember 1890, Bergþórsdóttir bónda á Lambastöðum á Mýrum, f. 25. nóvember 1793, d. 13. september 1867, Þorvaldssonar, og konu Bergþórs, Kristínar húsfreyju, f. 1796, d. 29. október 1859, Árnadóttur.

Börn Jónínu Guðrúnar og Jóhanns Bergs í Eyjum:
1. Ragnhildur Jóhannsdóttir húsfreyja í Eyvindarholti, síðan í Efri-Rotum u. Eyjafjöllum, f. 14. ágúst 1904, d. 8. maí 1972. Maður hennar Sveinn Jónasson.
2. Bergþóra Jóhannsdóttir húsfreyja í Mandal, f. 23. nóvember 1906, d. 13. apríl 1983, kona Jóns Stefánssonar.
3. Oddfríður Jóhannsdóttir húsfeyja á Litlu-Löndum, f. 23. september 1909, d. 11. desember 1983, kona Sigmars Axels Jónssonar vélstjóra.
4. Anna Jóhannsdóttir húsfreyja, f. 10. janúar 1914, d. 25. janúar 1944, sambýliskona Guðmundar Stefánssonar frá Ási.

Oddfríður var með foreldrum sínum í Reykjavík 1910, var í fóstri í Drangshlíð u. Eyjafjöllum 1914, vinnukona þar 1930.
Hún fluttist til Eyja 1935, var lausakona á Litlu-Löndum á því ári og enn 1937, vinnukona þar 1938, bústýra þar 1940-1968.
Þau Axel eignuðust Júlíus þar 1939 og Önnu 1942.
Hjónin fluttu til Reykjavíkur um 1968, bjuggu á Nýlendugötu 39.
Oddfríður lést 1983 og Sigmar Axel 1985.

Sambýlismaður Oddfríðar var Sigmar Axel Jónsson vélstjóri, verkamaður, f. 14. maí 1906 á Þórhól í Norðfirði, d. 24. júlí 1985.
Börn þeirra:
1. Júlíus Sigmarsson rennismíðameistari, f. 27. ágúst 1939 á Litlu-Löndum. Kona hans Hólmfríður Lóa Hlíðdal Magnúsdóttir Þórðarsonar.
2. Anna Sigmarsdóttir húsfreyja, kjólameistari, f. 3. nóvember 1942, d. 4. maí 2014. Fyrrum sambýlismaður hennar Ragnar Brynjar Hjelm. Fyrrum sambýlismaður hennar Eyjólfur Eðvald Konráðsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.