Magnús Hermannsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Magnús Hermannsson, símvirki á Gufuskálum, tölvutæknir á Selfossi, rafeindavirki, rekur verkstæði á Selfossi, fæddist 9. júlí 1959.
Foreldrar hans Hólmfreður Hermann Magnússon, símvirki, stöðvarstjóri, f. 12. júlí 1921, d. 4. ágúst 1996 og Gyða Arnórsdóttir, húsfreyja f. 25. maí 1922, d. 26. janúar 2021.

Börn Gyðu og Hermanns:
1. Jónas Hermannsson sjómaður, vélvirkjameistari, f. 7. mars 1946, d. 4. september 2004. Kona hans Dagbjört Theodórsdóttir.
2. Helgi Hermannsson tónlistarkennari á Hvolsvelli, f. 27. febrúar 1948. Kona hans Þórdís Bjarney Jóhannsdóttir Sigurðssonar.
3. Hermann Ingi Hermannsson tónlistarmaður, bakari, matsveinn, f. 26. ágúst 1949. Fyrrum kona hans Guðfinna Sigurgeirsdóttir Ólafssonar. Sambúðarkona Elísabet Nönnudóttir.
4. Arnór Hermannsson bakarameistari í Arnórsbakaríi í Eyjum, f. 23. nóvember 1954. Kona hans Helga Jónsdóttir Kjartanssonar.
5. Magnús Hermannsson símvirki á Gufuskálum, síðan tölvutæknir, rafeindavirki, rekur verkstæði á Selfossi, f. 9. júlí 1959. Kona hans Anna Linda Sigurðardóttir Ögmundssonar.

Þau Anna Linda giftu sig, eignuðust fimm börn. Þau búa á Selfossi.

I. Kona Magnúsar er Anna Linda Sigurðardóttir, húsfreyja, kennari, deildarstjóri, f. 10. ágúst 1960. Foreldrar hennar Sigurður Ögmundsson skipstjóri, f. 18. desember 1928, d. 25. apríl 1987, og kona hans Þórunn Margrét Traustadóttir húsfreyja, f. 13. mars 1931, d. 28. nóvember 1999.
Börn þeirra:
1. Sigurður Þór Magnússon, f. 21. maí 1980.
2. Herdís Magnúsdóttir, f. 3. ágúst 1982 í Eyjum.
3. Hlynur Magnússon, f. 20. september 1987.
4. Birkir Magnússon, f. 30. apríl 1994.
5. Daði Magnússon, f. 9. mars 1999.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.