Þórunn M. Traustadóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Þórunn Margrét Traustadóttir.

Þórunn Margrét Traustadóttir frá Grenivík í Grímsey, húsfreyja fæddist þar 13. mars 1931 og lést 28. nóvember 1999 á Sjúkrahúsi Suðurlands á Selfossi.
Foreldrar hennar voru Jón Trausti Pálsson útvegsbóndi, smiður, f. 10. september 1899, d. 22. febrúar 1933, og Kristín Þórleif Valdemarsdóttir húsfreyja, f. 5. júní 1901 í Grenivík í Grímsey, d. 16. mars 1982.

Börn Kristínar og Jóns Trausta í Eyjum:
1. Daniel Williard Fiske Traustason skipstjóri, f. 18. júní 1928, d. 27. september 1981.
2. Þórunn Margrét Traustadóttir húsfreyja, f. 13. mars 1931, d. 28. nóvember 1999.

Þau Sigurður giftu sig 1952, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu á Litlalandi og keyptu síðan Sólbakka við Hásteinsveg 3 og bjuggu þar síðan.
Þau fluttu til Selfoss 1985.
Sigurður lést á heimili sínu 1987 og Þórunn Margrét 1999.

I. Maður Þórunnar Margrétar, (18. desember 1952), var Sigurður Ögmundsson frá Litlalandi, skipstjóri, f. 18. desember 1928, d. 25. apríl 1987.
Börn þeirra:
1. Inga Dóra Sigurðardótttir, f. 23. október 1954, býr í Danmörku. Maður hennar Friðrik Karlsson.
2. Ögmundur Brynjar Sigurðsson, f. 1. nóvember 1955, d. 29. desember 1955. Hann bjó í Danmörku, síðar í Bandaríkjunum. Fyrrum kona hans Elsa Karin Thune. Kona hans Judy Sigurdsson.
3. Anna Linda Sigurðardóttir, f. 10. ágúst 1960. Maður hennar Magnús Hermannsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.