Guðfinna Guðný Sigurgeirsdóttir

From Heimaslóð
Jump to navigation Jump to search

Guðfinna Guðný Sigurgeirsdóttir, húsfreyja, verkakona fæddist 7. júní 1951.
Foreldrar hennar voru Sigurgeir Ólafsson, (Siggi Vídó) skipstjóri, útgerðarmaður, f. 21. júní 1925, d. 2. ágúst 2000, og kona hans Erla Eiríksdóttir húsfreyja, f. 26. september 1928, d. 10. febrúar 2013.

Börn Erlu og Sigurgeirs:
1. Eiríkur Heiðar Sigurgeirsson, f. 28. febrúar 1949 í Eiríkshúsi við Urðaveg 41, d. 5. maí 2020. Kona hans Sigríður Kristín Dagbjartsdóttir.
2. Guðfinna Guðný Sigurgeirsdóttir, f. 7. júní 1951 á Sj. Fyrrum maður hennar Hermann Ingi Hermannsson.
3. Sæfinna Ásta Sigurgeirsdóttir, f. 5. júlí 1952 að Hásteinsvegi 7, d. 25. febrúar 2022. Maður hennar Þorbjörn Númason.
4. Emma Hinrika Sigurgeirsdóttir, f. 23. febrúar 1956 á Sj. Maður hennar Ólafur Einar Lárusson.
5. Þór Sigurgeirsson, f. 1. október 1959 á Sj. Fyrrum kona hans Hjördís Kristinsdóttir.
Börn Sigurgeirs og Elísu Jónsdóttur:
1. Ólöf Jóna Sigurgeirsdóttir húsfreyja, móttökuritari, símavörður, f. 16. september 1944 í Berjanesi. Maður hennar Jón Sigurðsson, látinn.
2. Ruth Halla Sigurgeirsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 27. janúar 1946 í Berjanesi, d. 1. ágúst 2007. Maður hennar Ólafur Axelsson

Þau Hermann Ingi giftu sig, eignuðust fjögur börn. Þau skildu.
Guðfinna býr í Suðurnesjabæ.

I. Fyrrum maður Guðfinnu Guðnýjar er Hermann Ingi Hermannsson, tónlistarmaður, f. 26. ágúst 1949. Foreldrar hans Hermann Magnússon, símvirki, póst- og símstöðvarstjóri, f. 12. júlí 1921, d. 4. ágúst 1996, og kona hans Gyða Arnórsdóttir, f. 25. maí 1922, d. 26. janúar 2021.
Börn þeirra:
1. Erla Gyða Hermannsdóttir, f. 14. október 1967.
2. Sigríður Lund Hermannsdóttir, f. 16. júlí 1970.
3. Kaleb Joshua Hermannsson, f. 15. janúar 1973.
4. Jónas Hermannsson, f. 11. júlí 1980.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.