Guðjón Sveinsson (Selkoti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðjón Sveinsson frá Selkoti u. Eyjafjöllum, sjómaður, útgerðarmaður, iðnverkamaður fæddist 30. ágúst 1898 og lést 15. maí 1968.

Faðir Guðjóns var Sveinn bóndi í Selkoti, f. 7. október 1874, d. 15. janúar 1920, Jónsson bónda á Lambafelli u. Eyjafjöllum 1870, f. 3. maí 1837 í Heiðarseli á Síðu, d. 31. júlí 1908 á Lambafelli, Jónssonar bónda í Heiðarseli á Síðu, f. 13. janúar 1802 í Arnardrangi í Landbroti, d. 16. október 1863 í Heiðarseli, Jónssonar, og konu Jóns í Heiðarseli, Ólafar húsfreyju, f. 13. mars 1802 í Heiðarseli á Síðu, d. 22. febrúar 1865 þar, Sveinsdóttur.
Móðir Sveins í Selkoti og kona Jóns á Lambafelli var Guðný húsfreyja, f. 25. nóvember 1835 í Lambafellssókn, d. 29. maí 1914, Vigfúsdóttir bónda í Efri-Mörk á Síðu, f. 18. janúar 1807 í Hlíð u. Eyjafjöllum, d. 30. maí 1866 í Efri-Mörk, Jónssonar, og konu Vigfúsar, Sigríðar húsfreyju, f. 28. apríl 1807 á Lambafelli, d. 18. apríl 1878 í Efri-Mörk, Árnadóttur.

Móðir Guðjóns Sveinssonar og kona Sveins í Selkoti var Anna Valgerður húsfreyja, f. 11. ágúst 1871, d. 5. maí 1963, Tómasdóttir bónda á Raufarfelli og Selkoti, f. 25. ágúst 1834, d. 3. júní 1914, Stefánssonar bónda og stúdent á Rauðafelli, í Selkoti, í Miðbæli, í Varmahlíð og (1814) aftur í Selkoti undir Eyjafjöllum, f. 3. apríl 1772, d. 12. desember 1854, Ólafssonar bónda, silfursmiðs og hreppstjóra í Selkoti 1801, f. 1742, d. 5. október 1814, og þriðju konu Stefáns Ólafssonar, Önnu húsfreyju, f. 12. apríl 1803, d. 11. júlí 1879, Jónsdóttur.
Móðir Önnu Valgerðar Tómasdóttur og kona Tómasar Stefánssonar var Gróa húsfreyja á Raufarfelli og í Selkoti, f. 19. maí 1830, d. 8. janúar 1905, Arnoddsdóttir bónda í Hrútafellskoti og víðar, f. 18. september 1796, d. 29. mars 1883, Brandssonar, og fyrri konu Arnodds, Guðrúnar Bjarnadóttur húsfreyju, f. 8. nóvember 1786, d. 31. desember 1840.

Bróðir Tómasar Stefánssonar bónda á Raufarfelli, afa Guðjóns Sveinssonar, var Gísli Stefánsson kaupmaður í Hlíðarhúsi.

Börn Önnu og Sveins í Selkoti:
1. Guðrún Sveinsdóttir húsfreyja í Skarðshlíð, f. 25. ágúst 1897, d. 25. maí 1988. Maður hennar Jón Hjörleifsson.
2. Guðjón Sveinsson sjómaður, útgerðarmaður, iðnverkamaður, f. 30. ágúst 1898, d. 15. maí 1968. Kona hans Marta Eyjólfsdóttir.
3. Hjörleifur Sveinsson í Skálholti, sjómaður, útgerðarmaður, netamaður, f. 23. janúar 1901, d. 29. október 1997. Kona hans Þóra Arnheiður Þorbjarnardóttir.
4. Tómas Sveinsson sjómaður, útgerðarmaður, verkstjóri, f. 14. ágúst 1903, d. 24. apríl 1988. Kona hans Líney Guðmundsdóttir.
5. Gróa Sveinsdóttir húsfreyja í Selkoti, f. 18. júlí 1906, d. 17. desember 1994. Maður hennar Gissur Gissurarson.
6. Sigfús Sveinsson sjómaður, verkamaður, f. 24. apríl 1907, d. 18. nóvember 1993. Kona hans Guðrún Gissurardóttir.

Nokkrir afkomendur Jóns Jónssonar á Lambafelli og Guðnýjar Vigfúsdóttur í Eyjum:
1. Vigfús Jónsson bóndi á Raufarfelli, f. 30. nóvember 1861, d. 10. desember 1894, faðir
a) Ólafs Vigfússonar skipstjóra í Gíslholti, f. 21. ágúst 1891, d. 15. maí 1974. Kona hans Kristín Jónsdóttir.
2. Ólafur Jónsson bóndi í Skarðshlíð, f. 23. janúar 1865, d. 14. júní 1927, kvæntur Önnu Skæringsdóttur. Þau voru foreldrar
a) Guðlaugar Ólafsdóttur húsfreyju í Fagurhól, f. 3. júní 1889, d. 27. október 1970. Maður hennar var Markús Sæmundsson.
b) Skærings Ólafssonar bónda í Skarðshlíð, síðar í Eyjum, f. 7. desember 1890, d. 28. júlí 1984.
c) Jóns Ólafssonar útgerðarmanns á Hólmi, f. 7. mars 1892, d. 21. desember 1946, kvæntur Stefaníu Einarsdóttur og Guðrúnu Ingibjörgu Sigurjónsdóttur.
3. Jón Jónsson bóndi á Seljavöllum, f. 11. september 1866, d. 23. maí 1936. Konur hans voru Ragnhildur Sigurðardóttir og Sigríður Magnúsdóttir. Börn hans í Eyjum voru:
a) Guðjón Jónsson vélsmíðameistari í Magna, f. 22. febrúar 1891. Móðir Ragnhildur.
b) Sigurður Jónsson vélsmiður, síðar í Reykjavík, f. 7. desember 1897, d. 16. apríl 1960. Móðir hans Ragnhildur. Kona hans Stefanía Jóhannsdóttir.
c) Ragnhildur Jónsdóttir húsfreyja á Faxastíg 8a, f. 8. apríl 1905 á Seljavöllum, d. 14. mars 1987. Móðir hennar Sigríður. Hún var kona Kjartans Jónssonar sjómanns, vélsmiðs.
d) Magnús Jónsson vélstjóri á Hásteinsvegi 58, f. 17. ágúst 1909, d. 12. desember 1988, sonur Sigríðar. Kona hans var Lilja Sigurðardóttir.
e) Vigfús Jónsson vélsmíðameistari, f. 11. apríl 1913, d. 22. desember 1970, sonur Sigríðar. Kona hans Salóme Gísladóttir.
f) Ásta Gréta Jónsdóttir húsfreyja, f. 30. nóvember 1916, d. 6. ágúst 1945. Móðir hennar Sigríður. Maður hennar Samúel Ingvarsson.
Stjúpsonur (3.) Jóns á Seljavöllum og sonur Sigríðar Magnúsdóttur.
g) Jón Ólafur Eymundsson Jónsson rennismiður, útgerðarmaður, f. 12. nóvember 1901, d. 9. september 1985.
4. Sveinn Jónsson, f. 7. október 1874, d. 15. janúar 1920, faðir Selkotssystkina, Guðjóns, Hjörleifs, Tómasar og Sigfúsar Sveinssona og Gróu Sveinsdóttur.


Guðjón var með foreldrum sínum í æsku.
Hann fluttist til Eyja 1929, kvæntist Mörtu í lok ársins.

Sólhlíð 26 árið 2013.

Þau bjuggu á Skólavegi 25 1930, á Skólavegi 1 1934. Þau byggðu húsið við Sólhlíð 26 með Sigfúsi bróður Guðjóns, bjuggu þar 1935-1948, en fluttu þá úr bænum.
Guðjón var sjómaður í Eyjum, varð útgerðarmaður, er hann keypti 1934 hlut í mb. Ver ásamt Tómasi bróður sínum, Jóni Guðmundssyni í Miðey og Karli Guðmundssyni í Reykholti. Guðjón sá um útgerðina í landi til 1948, er hann seldi hlut sinn.
Þau Marta fluttu til Reykjavíkur 1948, keyptu hús við Hofteig 22.
Guðjón vann hjá Járnsteypunni í Ánanaustum til hins síðasta, en hann lést í bílslysi 1968.
Marta bjó hjá syni sínum í Garðabæ, en að lokum á Hrafnistu í Hafnarfirði. Hún lést 1994.

I. Kona Guðjóns, (21. desember 1929), var Marta Eyjólfsdóttir frá Steinum u. Eyjafjöllum, húsfreyja, f. 20. apríl 1898, d. 26. september 1994.
Barn þeirra, kjörbarn:
1. Hilmar Eyjólfur Guðjónsson bókari, f. 15. nóvember 1938 í Skarðshlíð, d. 15. maí 2019. Kynforeldrar hans voru Jón Hjörleifsson, f. 12. júlí 1898, d. 23. júlí 1973, og Guðrún systir Guðjóns Sveinssonar.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Íslensk skip. Jón Björnsson. Iðunn 1990.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 30. september 1994. Minning Mörtu.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.