Salóme Gísladóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Salóme

Salóme Gísladóttir fæddist árið 1913 og dó árið 1996. Hún var dóttir Gísla Jónssonar útgerðarmanns og Guðnýjar Einarsdóttur. Salóme ólst upp á Arnarhóli við Faxastíg. Systkini Salóme voru Guðný Svava, Óskar Magnús, Hafsteinn Eyberg, Einar J. og Kristín Þyrí.

Hún giftist Vigfúsi Jónssyni, f.1913 d.1970, Huldulandi, Heiðarvegi 41. Salóme og Vigfús eignuðust einn son, Gísla, f. 16.5. 1951, maki Sigríður Níelsdóttir og eiga þau þrjú börn. Auk þess ólu þau upp systurdóttur Vigfúsar, Huldu, f. 30.11. 1937, gift Ágústi Hreggviðssyni og eiga þau sex börn.

Salóme bjó í Vestmannaeyjum fram að gosi 1973 en eftir það í Reykjavík.

Myndir


Heimildir

  • Minningargreinar í Morgunblaðinu, 20. apríl 1996.