Gíslholt
Fara í flakk
Fara í leit
Húsið Gíslholt stóð við Landagötu 20 sem byggt var árið 1924. Þar bjó allt til goss með fjölskyldu sinni, Ólafur Vigfússon, formaður á Skúla fógeta VE um fjöldamörg ár, Eyfellingur að ætt. Ólafur stundaði ávallt búskap með sjómennskunni, var bæði með kýr og kindur. Frá Ólafi er kominn stór ættbogi Vestmannaeyinga og kennir sú ætt sig alla jafna við Gíslholt. Dóttir Ólafs Kristný bjó með föður sínum í Gíslholti þegar byrjaði að gjósa 23. janúar 1973. Húsið fór undir hraun.
Í Gíslholti bjó m.a. Guðjón Ólafsson bæjarlistamaður í Vestmannaeyjum, sonur Ólafs.
Heimildir
- Guðjón Ármann Eyjólfsson. Vestmannaeyjar - byggð og eldgos. Reykjavík: Ísafoldaprentsmiðja, 1973.