Arnoddur Gunnlaugsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Arnoddur á Suðurey VE
Arnoddur í jólaboði á Gjábakka.

Arnoddur Gunnlaugsson fæddist í Vestmannaeyjum 25. júní 1917 og lést 19. október 1995. Faðir hans hét Gunnlaugur Sigurðsson og móðir hans Elísabet Arnoddsdóttir. Bræður Arnodds voru Gunnlaugur (hálfbróðir), Friðrik Þórarinn, Jón, Aðalsteinn, Elías og Ingvar. Systur Arnodds voru: Sigurbjörg, Guðbjörg Þórsteina og Guðný. Þau systkini voru gjarnan kennd við Gjábakka þar sem þau voru alin upp og bjuggu fram á fullorðinsár.

Arnoddur kvæntist Önnu Pálínu Halldórsdóttur frá Þönglabakka í Þorgeirsfirði. Hún var fædd 11. júlí 1916 og lést 17. júlí 2002. Þeirra dóttir er Elísabet, fædd 18. ágúst 1942. Arnoddur bjó á Gjábakka, við Hásteinsveg 31, Bakkastíg 9 og síðar á Sólhlíð 7.

Arnoddur var skipstjóri og útgerðarmaður megnið af sínum starfsferli. Byrjaði með Snorra goða 1940. Gísla J.Johnsen 1941, Erling II, Sjöstjörnuna 1946-1949. Kaupir Suðurey og er með hana 1950-1976.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Arnodd:

Gunnlaugs Addi garpur fær
gerir togið draga,
Suðurey þá sinni rær
sjafnar víða haga.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Arnodd ég orða þarna,
annar sá hafið kannar
stinnur á Suðurey sinni,
sanni með fiskinn spannar.
Kann sín við kvikur hranna
kaskur og sjó við naskur.
Stóran greini skipstjóra
sterkan og verinn merkan.

Myndir



Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.
  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Viðbætur við heimildir: Eygló Björnsdóttir
  • Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum.