Sigurbjörg Gunnlaugsdóttir (Gjábakka)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Sigurbjörg

Sigurbjörg Gunnlaugsdóttir frá Gjábakka fæddist 28. september 1914 og lést 25. ágúst 1998. Faðir hennar var Gunnlaugur Sigurðsson og móðir hennar var Elísabet Arnoddsdóttir kona hans.

Sigurbjörg giftist Vigfúsi Guðmundssyni sjómanni, fæddum á Seyðisfirði 21.10.1908. Vigfús lést 22. september 1946. Þau eignuðust einn son, Birgi, fæddan 22.07.1941. Eftir lát Vigfúsar flutti Bagga með Birgi inn á neðri hæðina á Bakkastíg 9 hjá Arnoddi bróður sínum og Önnu og bjó þar eftir það fram að eldgosi 1973.

Myndir