Pétur Benediktsson (Þorlaugargerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. júní 2013 kl. 15:07 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. júní 2013 kl. 15:07 eftir Víglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Pétur Benediktsson bóndi í Þorlaugargerði fæddist 12. febrúar 1841 og lést 16. október 1921.
Faðir hans var Benedikt frá Ártúnum á Rangárvöllum, þá tvítugur vinnumaður á Hemlu í Breiðabólstaðarsókn, síðar vinnumaður í Háagarði, f. 19. apríl 1821, d. 26. marz 1842, drukknaði, ókvæntur, Guðmundsson bónda í Ártúnum og í Voðmúlastaða-Austurhjáleigu (seinna nefnt Búland) í A-Landeyjum, f. 1779 í Ólafshúsum u. Eyjafjöllum, d. 13. febr. 1848 í Syðri-Vatnahjáleigu í A-Landeyjum, Benediktssonar bónda í Ólafshúsum, f. 1740, Árnasonar, og konu Benedikts Árnasonar, Sigríðar húsfreyju, skírð 16. júlí 1751, d. 22. apríl 1819, Guðmundsdóttur bónda á Steinkrossi á Rangárvöllum, Hallvarðssonar.
Móðir Benedikts og kona Guðmundar í Ártúnum var (24. október 1813) Guðrún húsfreyja, f. 18. júní 1789, d. 14. janúar 1842, Vigfúsdóttir bónda í Búðarhóls-Austurhjáleigu (nú Hólavatn) í A-Landeyjum, f. 1749, d. 27. febr. 1813, Magnússonar, og konu Vigfúsar, Guðlaugar húsmóður, f. 1754, Jónsdóttur bónda á Vindási á Landi, Bjarnasonar.

Móðir Péturs í Þorlaugargerði og barnsmóðir Benedikts var Þóra vinnukona, þá 33 ára vinnukona á Hemlu í Breiðabólstaðarsókn, f. 3. október 1809 í Búðarhóls-Austurhjáleigu (nú Hólavatn) , d. 9. júní 1890, Pétursdóttir bónda þar, síðar á Kirkjulandi og í Hólmahjáleigu í A-Landeyjum, f. 1782 í Berjanesi í V-Landeyjum, skírður 13. nóvember þ. ár, d. 5. október 1836 í Eyjum, Ólafssonar bónda í Berjanesi þar, f. 1749, d. 27. desember 1816, og konu Ólafs í Berjanesi, Steinunnar húsfreyju, f. 1750, d. 27. september 1835, Hjartardóttur.
Móðir Þóru Pétursdóttur og fyrri kona (í desember 1805) Péturs Ólafssonar var Sigríður húsfreyja, f. 1773, d. 30. september 1826, Jónsdóttir bónda víða í Landeyjum, og formanns við Landeyjasand, f. 1745 í Álfhólshjáleigu í V-Landeyjum, d. 11. febrúar 1830 í Hörgsholti í Hrunamannahreppi, Sigurðssonar, og konu Jóns, Guðfinnu húsfreyju, f. 1744, Magnúsdóttur.

Þóra Pétursdóttir, móðir Péturs í Þorlaugargerði var einnig móðir Þórarins Jónssonar, föður Guðmundar Þórarinssonar á Vesturhúsum, föður Höllu Guðmundsdóttur húsfreyju á Kirkjubæ, konu Guðjóns Eyjólfssonar, Guðleifar Guðmundsdóttur húsfreyju í Holti, konu Vigfúsar Jónssonar, Magnúsar Guðmundssonar á Vesturhúsum, kvæntur Jórunni Hannesdóttur húsfreyju og Þórdísar Guðmundsdóttur húsfreyju á Sælundi, fyrri konu Jóels Eyjólfssonar.

Pétur í Þorlaugargerði var hjá Vigfúsi Guðmundssyni föðurbróður sínum í Syðri-Vatnahjáleigu í A-Landeyjum 1845, 5 ára; skráður niðursetningur þar 1850; vinnumaður í Austurhjáleigu (Hólavatni) 1860; 29 ára ókvæntur vinnumaður í Gvendarhúsi hjá Jóni 1870.
Hann er bóndi, kvæntur Ingibjörgu Sigurðardóttur í Þorlaugargerði 1890 með börnin Oktavíu Kristínu dóttur þeirra, Jón son hans, Marteu Guðlaugu, sögð dóttir þeirra, en á að vera dóttir hans, og Kristínu Magnúsínu dóttur hans.
Á mt. 1901, 1910 og 1920 er hann og Ingibjörg í heimili hjá Jóni Péturssyni í Þorlaugargerði.

Pétur Benediktsson var tvíkvæntur:
I. Fyrri kona var Kristín Guðmundsdóttir húsfreyja í Þorlaugargerði, f. 4. maí 1841, d. 13. apríl 1881.
Faðir hennar var Guðmundur Magnússon bóndi á Búðarhóli í A-Landeyjum, f. 1787 í Miðey, d. 1. október 1853.
Móðir Kristínar var seinni kona Guðmundar, Kristín Jónsdóttir húsfreyja á Búðarhóli, f. 3. apríl 1801, d. 11. maí 1879.
Börn þeirra hér talin:
1. Guðmundur Pétursson sjómaður í Grindavík, f. 20. janúar 1866, fórst í sjó 31. október 1900. Hann var tökubarn hjá ekkjunni móðurmóður sinni á Búðarhóli 1870. Þar er móðir hans Kristín, ógift vinnukona. Þess má geta, að sonur Guðmundar var Magnús faðir Guðmundar föður þeirra Magnúsar Tuma prófessors í jarðeðlisfræði og Más seðlabankastjóra.
2. Jón Pétursson bóndi og smiður í Þorlaugargerði, f. 21. júlí 1868, d. 18. júní 1932. Hann var tökubarn hjá ekkjunni móðurmóður sinni á Búðarhóli 1870. Þar er móðir hans Kristín, ógift vinnukona..
3. Kristín Magnúsína Pétursdóttir verkakona, húsfreyja á Brekku 1910, f. 6. ágúst 1879, d. 10. október 1924.
II. Síðari kona Péturs (1886) var Ingibjörg Sigurðardóttir.
Börn þeirra: Sjá Ingibjörgu.

Hálfsystir Þóru móður Péturs var Sigríður Pétursdóttir í Kúfhól í A-Landeyjum, en hún var móðurmóðir eldri barna Jóns bónda í Ólafshúsum, móðir Elínar húsfreyju. Sigríður hálfsystir Þóru Pétursdóttur var einnig móðir Steinunnar Sigurðardóttur húsfreyju á Þingeyri, konu Jóns Jónssonar. Einnig var hún móðir Sigríðar Sigurðardóttur húsfreyju í Lambhaga, konu Guðmundar Guðmundssonar sjómanns í Lambhaga og móðir Sigurðar Sigurðssonar formanns í Frydendal, sambýlismanns Önnu Sigríðar Árnadóttur Johnsen.

Systkini Benedikts Guðmundssonar í Háagarði og föðursystkini Péturs í Þorlaugargerði, sem dvöldu í Eyjum:
I. Sigríður Guðmundsdóttir húsfreyja í Hólmahjáleigu í A-Landeyjum 1838-1847, f. 26. desember 1813. Hún fluttist til Eyja 1847, var fyrst vinnukona í Brekkuhúsi, en síðan bústýra í Draumbæ. Hún drukknaði milli Lands og Eyja 29. september 1855.
Barnafaðir Sigríðar var Helgi Jónsson í Draumbæ, f. 8. september 1806, d. 3. september 1885.
Börnin voru:
1. Gróa Helgadóttir vinnukona í Eyjum, f. 3. nóvember 1851, á lífi 1884.
2. Margrét Helgadóttir, f. 19. febrúar 1853, d. 1. maí s. ár.
Maður Sigríðar Guðmundsdóttur, Níels Þórarinsson bóndi í Hólmahjáleigu, f. 20. febrúar 1822, fluttist til Eyja 1865 og var vinnumaður í Brekkuhúsi. Hann lést þar 25. ágúst 1867.
Sonur þeirra var Árni Níelsson vinnumaður á Löndum, f. 18. júní 1842, d. 11. desember 1864, ókvæntur.
II. Árni Guðmundsson bóndi í Brekkuhúsi, f. 18. desember 1817, d. 20. júlí 1889, kvæntur Þóru Stígsdóttur húsfreyju, f. 1824.
III. Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja í Vanangri, f. 19. september 1818, d. 9. september 1860, gift Magnúsi Eyjólfssyni silfursmið.
IV. Guðmundur Guðmundsson silfursmiður í Þorlaugargerði, mormónaprestur, forseti mormónasafnaðarins í Eyjum, f. 10. mars 1825, d. 20. september 1883, kvæntur konu af dönskum ættum, Marie Garff. Hann fór frá Eyjum til Lehi í Utah ásamt nokkrum fjölda fólks úr Eyjum 1854.


Heimildir