Þórdís Guðmundsdóttir (Sælundi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Þórdís Guðmundsdóttir húsfreyja á Sælundi fæddist 29. ágúst 1877 og lést 4. júní 1908.
Foreldrar hennar voru Guðmundur bóndi á Vesturhúsum Þórarinsson og kona hans Guðrún Erlendsdóttir húsfreyja.

Þórdís var hjá móðursystur sinni Þorgerði Erlendsdóttur á Fögruvöllum 1890, 13 ára, en 1901 var hún með foreldrum sínum á Vesturhúsum.

Maður Þórdísar, (14. nóvember 1902), var Jóel Eyjólfsson formaður, útgerðarmaður, fæddur 3. nóvember 1878, dáinn 28. desember 1944. Hún var fyrri kona hans.
Börn þeirra Jóels voru:
1. Þorgeir á Sælundi, f. 15. júní 1903, d. 13. febrúar 1984.
2. Guðmundur Eyjólfur í Háagarði, f. 5. janúar 1907, d. 14. september 1965.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.