Jórunn Skúladóttir (Kirkjubæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. apríl 2013 kl. 14:51 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. apríl 2013 kl. 14:51 eftir Víglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Jórunn Skúladóttir''' húsfreyja á Kirkjubæ fæddist 26. nóvember 1835 á Skeiðflöt í Mýrdal og lést 3. júlí 1909 í Eyjum.<br> Faðir hennar var Skúli r...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jórunn Skúladóttir húsfreyja á Kirkjubæ fæddist 26. nóvember 1835 á Skeiðflöt í Mýrdal og lést 3. júlí 1909 í Eyjum.
Faðir hennar var Skúli ráðsmaður í Hryggjum, bóndi á Skeiðflöt 1833-dd, f. 1797, fórst 1. desember 1848 í snjóflóði, Markússon bónda á Bólstað og í Pétursey í Mýrdal, f. 1764, d. 18. febrúar 1837 í Pétursey, Árnasonar bónda á Götum í Mýrdal, d. 1766, Þorsteinssonar, og konu Árna, Þórdísar húsfreyju Jónsdóttur.
Móðir Skúla á Skeiðflöt og kona Markúsar í Pétursey var Elín húsfreyja, 1766, d. 16. október 1840, Skúladóttir bónda, síðast í Norður-Hvammi, d. 23. apríl 1798, Gíslasonar, og konu Skúla Gíslasonar, Auðbjargar húsfreyju, f. 1725, Oddsdóttur.

Móðir Jórunnar á Kirkjubæ og barnsmóðir Skúla í Hryggjum var Margrét bústýra og vinnukona víða, f. 30. nóvember 1802 á Ketilsstöðum í Mýrdal, d. 17. júní 1862 í Pétursey, Gísladóttir bónda í Pétursey, f. 1774, d. 23. júní 1819 í Pétursey, Guðmundssonar bónda á Ketilsstöðum í Mýrdal, f. 1741, Þorvaldssonar, og konu Guðmundar, Þorbjargar húsfreyju, f. 1743, Árnadóttur.
Móðir Margrétar bústýru og kona Gísla í Pétursey var, (1802), Jórunn húsfreyja, f. 1769, d. 22. desember 1826 í Pétursey, Einarsdóttir bónda í Fagradal í Mýrdal, f. 1730, Oddssonar, og konu Einars Oddssonar, Sigríðar húsfreyju, f. 1730, d. fyrir 1801, Jónsdóttur.

Jórunn var með föður sínum á Skeiðflöt fyrstu 1-2 árin, með móður sinni í Pétursey frá 1836/7-1853. Hún var vinnukona í Pétursey frá 1853-1861. Þá fluttist hún að Ytri-Skógum u. Eyjafjöllum.
Húsfreyja var hún orðin á Kirkjubæ 1870. Eyjólfur maður hennar dó 1897, og 1901 er hún hjá syni sínum Guðjóni Eyjólfssyni í Norðurbænum á Kirkjubæ. Hún lést 1909 þar.

Maður Jórunnar (1865) var Eyjólfur Eiríksson bóndi á Kirkjubæ, f. 9. október 1835, d. 2. febrúar 1897.
Börn Jórunnar og Eyjólfs voru:
Jóel Eyjólfsson á Sælundi,
Gísli Eyjólfsson á Búastöðum,
Guðjón Eyjólfsson á Kirkjubæ,
Margrét Eyjólfsdóttir húsfreyja í Gerði
Rósa Eyjólfsdóttir húsfreyja í Þorlaugargerði.

Frændgarður í Vestmannaeyjum er víðfeðmur. Má þar einkum nefna frændgarð og afkomendur Kristínar Gísladóttur húsfreyju á Búastöðum, konu Lárusar hreppstjóra.
Móðir Kristínar, Steinvör Markúsdóttir, var föðursystir Jórunnar Skúladóttur á Kirkjubæ.
Faðir Kristínar á Búastöðum var Gísli Gíslason Guðmundssonar bróðir Margrétar móður Jórunnar á Kirkjubæ.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Heimaslóð.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
  • Manntöl.
  • Íslendingabók.is.