Ólafur Örn Ólafsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. október 2024 kl. 13:23 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. október 2024 kl. 13:23 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Ólafur Örn Ólafsson''', vélvirkjameistari í Vélaverkstæðinu Þór, síðan umboðsmaður Sambands íslenskra samvinnufélaga í Eyjum, f. 14. janúar 1947 á Skólavegi 13.<br> Foreldrar hans voru Ólafur Rósant Björnsson húsgagnasmíðameistari frá Kirkjulandi, f. þar 5. nóvember 1910, d. 1. nóvember 1969, og kona hans Eygló Stefánsdóttir (Skuld)|Eygló Stefánsdót...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ólafur Örn Ólafsson, vélvirkjameistari í Vélaverkstæðinu Þór, síðan umboðsmaður Sambands íslenskra samvinnufélaga í Eyjum, f. 14. janúar 1947 á Skólavegi 13.
Foreldrar hans voru Ólafur Rósant Björnsson húsgagnasmíðameistari frá Kirkjulandi, f. þar 5. nóvember 1910, d. 1. nóvember 1969, og kona hans Eygló Stefánsdóttir frá Skuld, húsfreyja, ljósmyndasmiður, kaupmaður, f. þar 4. ágúst 1911, d. 10. október 1980.

Börn Eyglóar og Ólafs:
1. Stefán Björn Ólafsson vélvirkjameistari, einn af stofnendum Vélaverkstæðisins Þórs, f. 14. maí 1938 á Kirkjulandi. Kona hans er Sveinbjörg Óskarsdóttir.
2. Guðjón Bergur Ólafsson vélvirkjameistari, véltæknifræðingur, lærður í Danmörku, býr á Álftanesi, f. 13. ágúst 1945 á Kirkjubóli. Fyrri kona hans var Fjóla Einarsdóttir, látinn. Sambúðarkona hans er Margrét Lárusdóttir.
3. Ólafur Örn Ólafsson vélvirkjameistari í Vélaverkstæðinu Þór, síðan umboðsmaður Sambands íslenskra samvinnufélaga í Eyjum, f. 14. janúar 1947 á Skólavegi 13. Kona hans er Hrefna Hilmisdóttir. Þau búa í Kópavogi.
4. Lárus Grétar Ólafsson með próf úr Verslunarskóla Íslands, var umboðsmaður SÍS í Eyjum, síðan rekur hann fyrirtækið Balco í Hafnarfirði, f. 27. mars 1952 á Sjúkrahúsinu. Kona hans er Ólöf Sigurjónsdóttir Melberg.

Þau Hrefna giftu sig, eignuðust fjögur börn. Þau búa í Kópavogi.

I. Kona Ólafs Arnar er Hrefna Hilmisdóttir, húsfreyja, verkakona, verslunarmaður, sunnudagaskólakennari, rekstrarfulltrúi, ferðarekandi, formaður Kvenfélagsins Heimaeyjar, f. 3. júlí 1949.
Börn þeirra:
1. Hilmir Ólafsson, f. 1. janúar 1969 í Eyjum.
2. Örvar Guðni Ólafsson, f. 2. desember 1976 í Eyjum.
3. Andri Ólafsson, f. 2. desember 1983 í Eyjum.
4. Sindri Ólafsson, f. 2. desember 1983 í Eyjum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.