Sindri Ólafsson
Sindri Ólafsson hagfræðingur, var ritstjóri Eyjafrétta, rekur ferðaþjónustufyrirtæki í Eyjum, er eftirlitsdómari hjá HSÍ, og kennir í afleysingum, fæddist 19. maí 1983.
Foreldrar hans Ólafur Ágúst Einarsson skipstjóri, f. 1. júlí 1961, og kona hans Halla Svavarsdóttir húsfreyja, kennari, f. 29. október 1957.
Börn Höllu og Ólafs:
1. Sindri Ólafsson hagfræðingur, fyrrum ritstjóri Eyjafrétta, rekur ferðaþjónustufyrirtæki í Eyjum, er eftirlitsdómari hjá HSÍ, f. 19. maí 1983. Kona hans Hildur Sólveig Sigurðardóttir.
2. Daði Ólafsson yfirstýrimaður, f. 22. júní 1987. Kona hans Thelma Hrund Kristjánsdóttir.
3. Einar Gauti Ólafsson málari, sjómaður, f. 17. desember 1991. Sambúðarkona hans Erla Steina Sverrisdóttir.
4. Svava Tara Ólafsdóttir kaupmaður, f. 22. júlí 1994. Sambúðarmaður hennar Dagur Arnarsson.
Þau Hildur Sólveig giftu sig, hafa eignast þrjú börn.. Þau búa við Hrauntún 44.
I. Kona Sindra er Hildur Sólveig Sigurðardóttir frá Akranesi, húsfreyja, sjúkraþjálfari, bæjarfulltrúi, f. 20. mars 1983. Foreldrar hennar Drífa Björnsdóttir ljósmóðir, f. 2. nóvember 1953, og Sigurður Karl Ragnarsson blikksmiður, f. 15. desember 1960.
Börn þeirra:
1. Aron Sindrason, f. 10. maí 2010.
2. Sara Rut Sindradóttir, f. 26. október 2013.
3. Drífa Sindradóttir, f. 2. ágúst 2021.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Sindri.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.