Lárus Grétar Ólafsson
Lárus Grétar Ólafsson, umboðsmaður, rak fyrirtækið Balco í Hfirði, síðar stálsmiðjuna Klaka þar, fæddist 27. mars 1952.
Foreldrar hans voru Ólafur Rósant Björnsson húsgagnasmíðameistari frá Kirkjulandi, f. þar 5. nóvember 1910, d. 1. nóvember 1969, og kona hans Eygló Stefánsdóttir frá Skuld, húsfreyja, ljósmyndasmiður, kaupmaður, f. þar 4. ágúst 1911, d. 10. október 1980.
Börn Eyglóar og Ólafs:
1. Stefán Björn Ólafsson vélvirkjameistari, einn af stofnendum Vélaverkstæðisins Þórs, f. 14. maí 1938 á Kirkjulandi. Kona hans er Sveinbjörg Óskarsdóttir.
2. Guðjón Bergur Ólafsson vélvirkjameistari, véltæknifræðingur, lærður í Danmörku, býr á Álftanesi, f. 13. ágúst 1945 á Kirkjubóli. Fyrri kona hans var Fjóla Einarsdóttir, látinn. Sambúðarkona hans er Margrét Lárusdóttir.
3. Ólafur Örn Ólafsson vélvirkjameistari í Vélaverkstæðinu Þór, síðan umboðsmaður Sambands íslenskra samvinnufélaga í Eyjum, f. 14. janúar 1947 á Skólavegi 13. Kona hans er Hrefna Hilmisdóttir. Þau búa í Kópavogi.
4. Lárus Grétar Ólafsson með próf úr Verslunarskóla Íslands, var umboðsmaður SÍS í Eyjum, síðan rekur hann fyrirtækið Balco í Hafnarfirði, síðar stálsmiðjuna Klaka þar, f. 27. mars 1952 á Sjúkrahúsinu. Kona hans er Ólöf Sigurjónsdóttir Melberg.
Þau Ólöf giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa í Hfirði.
I. Kona Lárusar er Ólöf Melberg Sigurjónsdóttir, húsfreyja, f. 29. október 1950 í Rvk. Foreldrar hennar Sigurjón Melberg Sigurjónsson, f. 27. nóvember 1921, d. 17. júní 1975, og Helga Kristjánsdóttir, f. 19. janúar 1923, d. 5. mars 1998.
Börn þeirra:
1. Ólafur Helgi Lárusson, f. 29. júlí 1979.
2. Eygló Margrét Lárusdóttir, f. 30. nóvember 1981.
Börn Ólafar og fósturbörn Ólafs:
3. Sigurjón Melberg Vilhjálmsson, f. 30. janúar 1968.
4. Ástráður Vilhjálmsson, f. 18. ágúst 1970.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Ólafur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.