Ágúst Hreggviðsson (húsasmíðameistari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. janúar 2024 kl. 19:45 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. janúar 2024 kl. 19:45 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Rögnvaldur Ágúst Hreggviðsson húsasmíðameistari fæddist 13. júlí 1937 í Miklagarði á Sauðárkróki.
Foreldrar hans voru Hreggviður Ágústsson sjómaður, kafari, f. 16. maí 1916 á Selnesi í Skagafirði, d. 31. janúar 1951, og kona hans Jakobína Björnsdóttir frá Minna-Núpi, húsfreyja, f. 5. febrúar 1918, d. 21. september 1946.

Ágúst var með foreldrum sínum fyrstu ár sín, en móðir hans lést er hann var á tíunda árinu.
Hann var fóstraður í Eyjum frá 1946, í fyrstu hjá móðurforeldrum sínum, síðan hjá Sigurleifu Ólafíu móðursystur sinni og Guðfinni Þorgeirssyni.
Ágúst lauk gagnfræðaprófi í Gagnfræðaskólanum 1954, nam skipasmíðar í skipasmíðastöð Ársæls Sveinssonar. Guðmundur á Háeyri var meistari hans. Þá var hann vélstjóri til sjós í nokkur ár. Hann nam þá húsasmíðar hjá Hafsteini Ágústssyni og öðlaðist meistararéttindi og hefur unnið við þá iðn sína.
Þau Hulda giftu sig 1959, eignuðust sex börn. Þau bjuggu í fyrstu á Brimhólabraut 35, þá á Búhamri 4, en búa nú við Miðstræti 23.

I. Kona Ágústs, (26. desember 1959), er Ingibjörg Hulda Samúelsdóttir, húsfreyja, f. 30. nóvember 1937.
Börn þeirra:
1. Ásta Bína Ágústsdóttir húsfreyja, sjúkraliði, vinnur á tannlæknastofu, f. 18. janúar 1955. Maður hennar Jóhannes Long Lárusson.
2. Inga Steinunn Ágústsdóttir húsfreyja, starfsmaður við aðhlynningu fatlaðra, f. 21. apríl 1958. Maður hennar Jóel Gunnarsson .
3. Hreggviður Ágústsson húsasmíðameistari, f. 26. apríl 1963. Kona hans Guðrún Jónsdóttir.
4. Bjarki Ágústsson tannlæknir, f. 13. júní 1968. Fyrrum kona hans Elísabet Sigurðardóttir.
5. Leiknir Ágústsson garðyrkjufræðingur, f. 16. desember 1973. Kona hans Tinna Björk Halldórsdóttir.
6. Silja Ágústsdóttir húsfreyja, bóndi á Hólmum í A-Landeyjum, f. 16. desember 1973. Maður hennar Axel Þór Sveinbjörnsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Hulda og Ágúst.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.