Erna Fannberg Fannbergsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. mars 2022 kl. 16:34 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. mars 2022 kl. 16:34 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Erna Fannberg Fannbergsdóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Erna Fannberg Fannbergsdóttir frá Ólafsfirði, húsfreyja, ræstitæknir fæddist þar 23. júní 1938.
Foreldrar hennar voru Freymundur Fannberg Jóhannsson sjómaður, útgerðarmaður, f. 30. september 1915 á Ólafsfirði, d. 23. október 1996 á Sjúkrahúsinu í Eyjum, og kona hans Petrea Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 6. júní 1917 á Syðri-Á í Ólafsfirði, d. 7. október 1994 í Eyjum.

Börn Petreu og Fannbergs:
1. Erna Fannberg Fannbergsdóttir húsfreyja, f. 23. júní 1938. Maður hennar Stefán Einarsson.
2. Valur Fannbergsson, f. 9. júlí 1939, d. 25. desember 1940.
3. Valdís Fannbergsdóttir, f. 5. september 1940, d. 22. apríl 1941.
4. Sverrir Fannbergsson sjómaður, f. 1. júlí 1942, d. 25. júlí 1984.
5. Bragi Fannbergsson, f. 6. júlí 1944. Kona hans Jónína Ingibjörg Benediktsdóttir.
6. Jónína Fannbergsdóttir, f. 28. ágúst 1945, d. 15. ágúst 2021.
7. Andvana drengur, f. 28. júní 1950.
8. Freydís Fannbergsdóttir, f. 17. desember 1951, d. 13. júní 2016. Maður hennar Júlíus Arthur Sveinsson.
9. Emilía Fannbergsdóttir, f. 15. september 1955. Fyrrum maður hennar Daníel Emilsson. Fyrrum maður hennar Ægir Hafsteinsson. Fyrrum maður hennar Eiríkur Einarsson.
10. Erlingur Fannbergsson, f. 15. september 1955, d. 29. nóvember 1956.

Erna var með foreldrum sínum á Ólafsfirði í æsku.
Hún vann við ræstingar.
Þau Stefán giftu sig 1957, eignuðust sex börn. Þau bjuggu á Heiði við Sólhlíð 19, í Kornhól við Strandveg 1, á Skólavegi 25 og í Vöruhúsinu við Skólaveg 1 við Gos 1973.
Stefán lést 1980.
Erna bjó í Sólhlíð 3 1986, síðan í Sólhlíð 19.

I. Maður Ernu, (21. apríl 1957), var Stefán Einarsson verkamaður, Baadermaður, verkstjóri, f. 6. júní 1931, d. 12. febrúar 1980.
Börn þeirra:
1. Valdís Stefánsdóttir húsfreyja, f. 2. október 1955, d. 31. október 2018. Maður hennar Svavar Garðarsson.
2. Fannberg Einar Stefánsson sjómaður, vélstjóri, f. 30. júlí 1957 á Heiði, d. 6. janúar 2014. Kona hans Jólín Lilja Brynjólfsdóttir.
3. Ómar Stefánsson vélgæslumaður, f. 24. janúar 1961 í Kornhól við Strandveg 1. Kona hans Sigfríður Björg Ingadóttir.
4. Heiðar Stefánsson sjómaður, f. 12. ágúst 1963 á Ólafsfirði, d. 3. júlí 2020. Sambúðarkona hans Birna Sigrún Haraldsdóttir.
5. Erlingur Valur Stefánsson, f. 17. febrúar 1967. Fyrrum kona hans Hrefna Hrund Eronsdóttir.
6. Linda Mary Stefánsdóttir, f. 21. maí 1972. Maður hennar Magnús Elvar Viktorsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.