Freydís Fannbergsdóttir
Freydís Fannbergsdóttir húsfreyja, sjúklingur fæddist 17. desember 1951 og lést 13. júní 2016.
Foreldrar hennar voru Freymundur Fannberg Jóhannsson sjómaður, útgerðarmaður, f. 30. september 1915 á Ólafsfirði, d. 23. október 1996 á Sjúkrahúsinu í Eyjum, og kona hans Petrea Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 6. júní 1917 á Syðri-Á í Ólafsfirði, d. 7. október 1994 í Eyjum.
Börn Petreu og Fannbergs:
1. Erna Fannberg Fannbergsdóttir húsfreyja, f. 23. júní 1938. Maður hennar Stefán Einarsson.
2. Valur Fannbergsson, f. 9. júlí 1939, d. 25. desember 1940.
3. Valdís Fannbergsdóttir, f. 5. september 1940, d. 22. apríl 1941.
4. Sverrir Fannbergsson sjómaður, f. 1. júlí 1942, d. 25. júlí 1984.
5. Bragi Fannbergsson, f. 6. júlí 1944. Kona hans Jóna Ingibjörg Benediktsdóttir.
6. Jónína Fannbergsdóttir, f. 28. ágúst 1945, d. 15. ágúst 2021.
7. Andvana drengur, f. 28. júní 1950.
8. Freydís Fannbergsdóttir, f. 17. desember 1951, d. 13. júní 2016. Maður hennar Júlíus Arthur Sveinsson.
9. Emilía Fannbergsdóttir, f. 15. september 1955. Fyrrum maður hennar Daníel Emilsson. Fyrrum maður hennar Ægir Hafsteinsson. Fyrrum maður hennar Eiríkur Einarsson.
10. Erlingur Fannbergsson, f. 15. september 1955, d. 29. nóvember 1956.
Þau Júlíus Arthur giftu sig, eignuðust eitt barn. Þau skildu.
I. Fyrrum maður Freydísar er Júlíus Arthur Sveinsson, f. 25. júní 1944.
Barn þeirra:
1. Sverrir Fannberg Júlíusson, f. 5. ágúst 1975.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Sveinn.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.