Guðríður Guðmundsdóttir (Hábæ)
Guðríður Guðmundsdóttir húsfreyja í Hábæ fæddist 12. maí 1893 í Juliushaab og lést 24. júlí 1984 í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Jesson verkamaður, f. 13. nóvember 1867, d. 19. apríl 1931, og barnsmóðir hans Kristín Ólafsdóttir frá Litlakoti, f. 8. september 1868, d. 6. janúar 1944.
Guðríður var fósturbarn á Kirkjubæ hjá Sigurlaugu Guðmundsdóttur og Ísleifi Guðnasyni 1901, vinnukona þar 1910.
Þau Stefán bjuggu í Þingholti við giftingu 1916, á Geirlandi við fæðingu Guðnýjar Sigurleifar 1918.
Guðríður var húsfreyja á Litlu-Grund 1920 með Stefáni og börnunum Guðnýju Sigurleif og Ólafi Kristni, er þau misstu Þorstein. Þau voru í París, síðar (Stíghús), við fæðingu Þorsteins yngri 1921 á Oddeyri (Flötum 14) við fæðingu Regínu Matthildar 1923, í Vesturholti við Brekastíg 1927, í Hábæ 1930 með nefnd börn og Þorstein, Regínu Matthildi, Kristínu og Ástu.
Þau bjuggu á Fífilgötu 2 1942.
Þau Stefán fluttust úr bænum á fimmta áratugnum, en sneru aftur, bjuggu á Strembu 1949. Þau fluttu til Reykjavíkur og þar lést Stefán 1973 og Guðríður 1984.
Maður Guðríðar, (23. júlí 1916), var Stefán Vilhjálmsson verkamaður, f. 24. ágúst 1890, d. 29. júní 1973.
Börn þeirra hér:
1. Guðný Sigurleif Stefánsdóttir, f. 14. febrúar 1918, d. 15. janúar 2009.
2. Ólafur Kristinn Stefánsson múrari, f. 8. ágúst 1919, d. 29. febrúar 2000.
3. Þorsteinn Stefánsson, f. 2. október 1920 á Litlu-Grund, d. 24. nóvember 1920.
4. Þorsteinn Stefánsson sjómaður, f. 9. nóvember 1921 í París (síðar Stíghús), fórst með flugvélinni Glitfaxa 31. janúar 1951.
5. Regína Matthildur Stefánsdóttir, f. 18. september 1923.
6. Kristín Stefánsdóttir, f. 21. febrúar 1925.
7. Ásta Stefánsdóttir, f. 27. september 1927.
8. Vilhjálmur Stefánsson, f. 12. febrúar 1931.
Hjá þeim ólst upp sonur Regínu Matthildar
9. Henry Stefáns, síðar í Florida, f. 13. mars 1944 í Reykjavík.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.
- Æviskrár Víglundar Þórs Þorsteinssonar
- Húsfreyjur
- Fólk fætt á 19. öld
- Fólk dáið á 20. öld
- Íbúar í Juliushaab
- Íbúar á Kirkjubæ
- Íbúar í Þingholti
- Íbúar á Geirlandi
- Íbúar á Litlu-Grund
- Íbúar í París
- Íbúar á Oddeyri
- Íbúar á Flötum
- Íbúar í Vesturholti
- Íbúar við Brekastí
- Íbúar við Njarðarstíg
- Íbúar við Fífilgötu
- Íbúar í Hábæ