Vilhjálmur Stefánsson (Hábæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Vilhjálmur Stefánsson frá Hábæ fæddist 12. febrúar 1931.
Foreldrar hans voru Stefán Vilhjálmsson verkamaður, f. 24. ágúst 1890, d. 29. júní 1973, og kona hans Guðríður Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 12. maí 1893, d. 24. júlí 1984.

Börn Stefáns og Guðríðar voru:
1. Guðný Sigurleif Stefánsdóttir, f. 14. febrúar 1918, d. 15. janúar 2009.
2. Ólafur Kristinn Stefánsson múrari, f. 8. ágúst 1919, d. 29. febrúar 2000.
3. Þorsteinn Stefánsson, f. 2. október 1920 á Litlu-Grund, d. 24. nóvember 1920.
4. Þorsteinn Stefánsson sjómaður, f. 9. nóvember 1921 í París II, fórst með flugvélinni Glitfaxa 31. janúar 1951.
5. Regína Matthildur Stefánsdóttir, f. 18. september 1923.
6. Kristín Stefánsdóttir, f. 21. febrúar 1925, d. 3. febrúar 2018.
7. Ásta Stefánsdóttir, f. 27. september 1927.
8. Vilhjálmur Stefánsson, f. 12. febrúar 1931.
Hjá þeim ólst upp sonur Regínu Matthildar
9. Henry Stefáns, síðar í Florida, f. 13. mars 1944 í Reykjavík.

Vilhjálmur var með foreldrum sínum í æsku, á Fífilgötu 2 1940, í Reykjavík í nokkur ár, á Strembu 1949. Hann bjó á Herjólfsgötu 11 1972.
Hann var starfsmaður Lifrarsamlagsins.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.