„Sigurjón Þorvaldur Árnason“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 31: | Lína 31: | ||
Eiginkona Sigurjóns (4. jan. 1924) var [[Þórunn Eyjólfsdóttir Kolbeins]], prests að Staðarbakka í Miðfirði, f. 23. janúar 1903, d. 4. apríl 1969.
| Eiginkona Sigurjóns (4. jan. 1924) var [[Þórunn Eyjólfsdóttir Kolbeins]], prests að Staðarbakka í Miðfirði, f. 23. janúar 1903, d. 4. apríl 1969.

Börn þeirra voru: | Börn þeirra voru: | ||
1. [[Eyjólfur Kolbeins Sigurjónsson]], f. 23. ágúst 1924, d. 14. ágúst 2001, löggiltur endurskoðandi í Reykjavík.

2. [[Árni Sigurjónsson (Ofanleiti)|Árni Sigurjónsson]], f. 27. september 1925, d. 1. október 2000, lögfræðingur, fulltrúi lögreglustjórans í Reykjavík.

3. [[Líney Sigurjónsdóttir]], f. 7. maí 1928, húsfreyja, fatahönnuður, klæðskerameistari í Reykjavík, d. 2. janúar 2017.

4. [[Þórey Sigurjónsdóttir (læknir)|Þórey Jóhanna Sigurjónsdóttir]], f. 21. maí 1930, sérfræðingur í barnalækningum í Reykjavík.

5. [[Páll Sigurjónsson (verkfræðingur|Hannes ''Páll'' Sigurjónsson]], f. 5. ágúst 1931, byggingaverkfræðingur, einn af stofnendum og framkvæmdastjóri ÍSTAKS h.f.

6. [[Ásthildur Sigurjónsdóttir (kennari)|Þórunn ''Ásthildur'' Sigurjónsdóttir]], f. 22. júlí 1938, kennari í Reykjavík.

7. [[Snjólaug Sigurjónsdóttir (kennari)|Snjólaug Anna Sigurjónsdóttir]], f. 23. marz 1942, kennari í Reykjavík. | |||
= Myndir = | = Myndir = |
Útgáfa síðunnar 15. janúar 2023 kl. 17:19
Sigurjón Þorvaldur Árnason var prestur í Vestmannaeyjum á árunum 1924 til 1944. Hann var fæddur 3. mars 1897 á Sauðárkróki og lézt 10. apríl 1979.
Ætt og uppruni
Foreldrar hans voru Árni prófastur í Görðum á Álftanesi, f. 1. ágúst 1863 í Höfnum á Skaga, d. 26. marz 1932, Björns bónda á Tjörn á Skagaströnd Sigurðssonar og konu Björns, Elínar húsmóður Jónsdóttur á Skúmsstöðum á Eyrarbakka. Móðir Sigurjóns og kona (21. september 1894) Árna var Líney húsfreyja og kennari, f. 11. okt. 1873 á Laxamýri í S-Þing., d. 8. okt. 1953, Sigurjóns bónda þar, Jóhannessonar og konu Sigurjóns, Snjólaugar Guðrúnar húsfreyju Þorvaldsdóttur að Krossum, Gunnlaugssonar.
Lífsferill
Sigurjón lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1917, varð cand. theol. frá Háskóla Íslands 1921, var við framhaldsnám í trúarheimspeki í Kaupmannahöfn veturinn 1921 til 1922, kynnti sér jafnframt safnaðarstarf. Kennaraprófi lauk hann 1921.
Hann vígðist 29. október 1922, var aðstoðarprestur föður síns í Görðum á Álftanesi 1922-1924.
Sr. Sigurjón fékk veitingu fyrir Vestmannaeyjaprestakalli 5. janúar
1924 eftir fráfall sóknarprestsins þar séra Oddgeirs Þórðarsonar Gudmundsen og gegndi prestakallinu til ársloka 1944 nema veturinn 1938-1939, en þá var hann aukaprestur við dómkirkjuna í Reykjavík.
Hann var prestur í Hallgrímsprestakalli í Reykjavík 1. janúar 1945-1967.
Séra Sigurjón var stundakennari við Gagnfræðaskólann í Vestmannaeyjum um skeið og við Gagnfræðaskóla Austurbæjar í Reykjavík 1955-1960.
Hann var formaður barnaverndarnefndar Vestmannaeyja frá stofnun til 1942 og sat í skólanefnd þar í mörg ár. Mikið starfaði hann að málefnum K.F.U.M. og K. í Vestmannaeyjum til eflingar kristni og kirkju. Hann átti sæti í stjórn Kristniboðssambands Íslands frá 1945-1973 og um skeið í stjórn Prestafélagsins.
Sr. Sigurjón efldi kristna hugsun á meðal Eyjaskeggja og var í hvívetna áhrifaríkur aðili, þar sem hann lagði hönd á plóginn.
Sr. Sigurjón skrifaði mikið um trúmál og siðfræði.
Meðal ritverka má nefna:
- „Trúarofstæki”, Vestmannaeyjum 1936,
- Upprisan, Vestmannaeyjum 1936,
- Stólræður, í Kirkjuritinu,
- Kveðjuræða 22. febrúar 1945, í Víði, einnig í Bjarma, 1951,
- Minning leiðtoga (um Hallgrím Pétursson), í Bjarma, 1951,
- Jólahugleiðingar í blöðum,
- Hversvegna mælti ég með Þorsteini Þ. Víglundssyni?, í Víði 20. september 1931, (endurprentað í Bliki 1974).
- Sjá nánar ritið Ísl. guðfræðingar.
Þýðingar:
- Hinn nýi heimur biblíunnar (Karl Barth), í Frækorni, 1946,
- Vörn og vopn hins kristna (Karl Barth), í Bjarma, 1969.
Fjölskylda
Eiginkona Sigurjóns (4. jan. 1924) var Þórunn Eyjólfsdóttir Kolbeins, prests að Staðarbakka í Miðfirði, f. 23. janúar 1903, d. 4. apríl 1969.
Börn þeirra voru:
1. Eyjólfur Kolbeins Sigurjónsson, f. 23. ágúst 1924, d. 14. ágúst 2001, löggiltur endurskoðandi í Reykjavík.
2. Árni Sigurjónsson, f. 27. september 1925, d. 1. október 2000, lögfræðingur, fulltrúi lögreglustjórans í Reykjavík.
3. Líney Sigurjónsdóttir, f. 7. maí 1928, húsfreyja, fatahönnuður, klæðskerameistari í Reykjavík, d. 2. janúar 2017.
4. Þórey Jóhanna Sigurjónsdóttir, f. 21. maí 1930, sérfræðingur í barnalækningum í Reykjavík.
5. Hannes Páll Sigurjónsson, f. 5. ágúst 1931, byggingaverkfræðingur, einn af stofnendum og framkvæmdastjóri ÍSTAKS h.f.
6. Þórunn Ásthildur Sigurjónsdóttir, f. 22. júlí 1938, kennari í Reykjavík.
7. Snjólaug Anna Sigurjónsdóttir, f. 23. marz 1942, kennari í Reykjavík.
Myndir
Heimildir
- Viðbót við ætt, uppruna, lífsferil og fjölskyldu skrifaði upphaflega Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.
- Íslenzkir samtíðarmenn. Reykjavík: Bókaútgáfan samtíðarmenn, 1964-1967.
- Kennaratal á Íslandi. Reykjavík: Prentsmiðjan Oddi H.F., 1958-1988.
- Páll Eggert Ólason og fleiri. Íslenzkar æviskrár. Reykjavík: Hið íslenzka bókmenntafélag, 1948-1976.
- Þorsteinn Þ. Víglundsson. Blik, ársrit Vestmannaeyja. Maí 1974.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.