„Guðrún Sigurðardóttir (Miðhúsum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 28: Lína 28:
Börn Guðrúnar og Einars hér:

Börn Guðrúnar og Einars hér:

1. Margrét Einarsdóttir, f. 20. apríl 1855, d. 28. apríl 1855 „af barnaveiki“.

1. Margrét Einarsdóttir, f. 20. apríl 1855, d. 28. apríl 1855 „af barnaveiki“.

2. [[Guðmundur Einarsson (Elínarshúsi)|Guðmundur Einarsson]], f. 10. apríl 1856, d. 2. ágúst 1936. Hann var útvegsbóndi á Vestdalseyri í Seyðisfirði.

2. [[Guðmundur Einarsson (Miðhúsum)|Guðmundur Einarsson]], f. 10. apríl 1856, d. 2. ágúst 1936. Hann var útvegsbóndi á Vestdalseyri í Seyðisfirði.

II. Eiginmaður Guðrúnar, (5. júní 1856, skildu), var [[Helgi Jónsson (Draumbæ)|Helgi Jónsson]], áður  bóndi í [[Draumbær|Draumbæ]], f.  8. september 1806, d.  3. september 1885.

II. Eiginmaður Guðrúnar, (5. júní 1856, skildu), var [[Helgi Jónsson (Draumbæ)|Helgi Jónsson]], áður  bóndi í [[Draumbær|Draumbæ]], f.  8. september 1806, d.  3. september 1885.

Útgáfa síðunnar 10. janúar 2015 kl. 18:31

Guðrún Sigurðardóttir húsfreyja fæddist 6. apríl 1834 á Borgareyrum u. Eyjafjöllum og lést 31. ágúst 1897 í Vesturheimi.
Faðir hennar var Sigurður bóndi á Borgareyrum u. Eyjafjöllum, í Stóru-Hildisey, Gularáshjáleigu og Syðri-Úlfsstaðahjáleigu í A-Landeyjum, f. 1792 í Efri-Rotum u. Eyjafjöllum, d. 3. júlí 1866 í Úlfsstaðahjáleigu, Andrésson bónda í Neðri-Dal u. Eyjafjöllum, f. 1757, d. 28. júlí 1848, Sigurðssonar bónda í Vesturholtum u. Eyjafjöllum, f. 1725, d. 6. janúar 1783, Björnssonar, og konu Sigurðar í Vesturholtum, Gróu húsfreyju, f. 1729, d. 25. júní 1805, Þorsteinsdóttur.
Móðir Sigurðar á Borgareyrum og kona Andrésar í Neðri-Dal var Guðrún húsfreyja, f. 1756, d. 4. janúar 1838, Högnadóttir bónda í Neðri-Dal, f. 1721, á lífi 1801, Þorleifssonar, og konu Högna, Guðnýjar húsfreyju, f. 1722, Sigurðardóttur.

Móðir Guðrúnar og síðari kona Sigurðar Andréssonar var Margrét húsfreyja, f. 27. mars 1802, d. 4. desember 1870, Þóroddsdóttir bónda í Dalseli u. Eyjafjöllum, f. 1761, d. 12. október 1826, Gissurarsonar bónda þar, f. 1715, d. 1782, Ísleifssonar, og konu Gissurar, Steinunnar húsfreyju, f. 1719, á lífi 1801, Filippusdóttur.
Móðir Margrétar húsfreyju Þóroddsdóttur og kona Þórodds í Dalseli var Guðrún húsfreyja, f. 1769, d. 26. apríl 1827, Sigurðardóttir bónda í Nesi í Selvogi, bónda í Vorsabæ í Flóa 1801, f. 1732, d. 25. júlí 1823, Péturssonar, og konu Sigurðar í Nesi og Vorsabæ, Járngerðar húsfreyju, f. 1730, d. 11. september 1811, Hjartardóttur.

Guðrún var alsystir
I. Guðrúnar Sigurðardóttur eldri húsfreyju í Hólshúsi, f. 1. janúar 1828, d. 13. maí 1882, kona Vigfúsar Magnússonar sjómanns, en þau voru m.a. foreldrar
1. Sigurðar Vigfússonar (Sigga Fúsa) á Fögruvöllum,
2. Magnúsar Vigfússonar í Presthúsum og
3. Kristínar Vigfúsdóttur húsfreyju í Hólshúsi.
Hún var einnig alsystir
II. Járngerðar Sigurðardóttur húsfreyju í Draumbæ, Túni og Stóra-Gerði, f. 17. september 1830, d. 23. desember 1876, konu Sigurðar Jónssonar bónda og sjómanns.
Hálfsystir þeirra var
III. Þuríðar Sigurðardóttur húsfreyju á Löndum, en hún og maður hennar Magnús Kristjánsson járnsmiður ollu kirkjuyfirvöldum landsins hinum mestu vandræðurm vegna trúar sinnar. Þau voru gefin saman að mormónskum hætti af Lofti Jónssyni í Þorlaugargerði. Það var talin ólögleg aðgerð, en óafturkræf. Málið endaði með því að dönsku yfirvöldin veittu þeim leyfi til borgaralegrar giftingar, sem varð sú fyrsta á Íslandi. Hana framkvæmdi Aagaard sýslumaður. (Sjá Blik 1963/Saga séra Brynjólfs Jónssonar, V.).

Guðrún var með fjölskyldu sinni í Stóru-Hildisey í A-Landeyjum 1835, og enn 1850 í Gularáshjáleigu.
Hún var komin til Eyja 1855 og var þá bústýra hjá Einari Jónssyni frá Dölum, þá í Einarshúsi, f. 1815, d. 13. mars 1894.
Hún eignaðist tvö börn með honum.
Þau Einar skildu samvistir og hún giftist Helga Jónssyni 1856, bjó með honum á Miðhúsum og eignaðist með honum dóttur.
Þau Helgi skildu.
Guðrún var skilin vinnukona á Vilborgarstöðum 1880. Hún fór til Vesturheims 1881 frá Vilborgarstöðum.
Hún lést 1897.

I. Sambýlismaður Guðrúnar var Einar Jónsson frá Dölum, þá í Einarshúsi, f. 1815, d. 13. mars 1894. Hann var áður kvæntur Guðríði Jónsdóttur, f. 1810, d. 11. september 1886. Guðríður giftist síðar Tíla Oddssyni í Norðurgarði. Einar kvæntist síðan Valgerði Jónsdóttur frá Norðurgarði, f. 20. ágúst 1832, d. 7. október 1896. Hún fór til Vesturheims.
Börn Guðrúnar og Einars hér:
1. Margrét Einarsdóttir, f. 20. apríl 1855, d. 28. apríl 1855 „af barnaveiki“.
2. Guðmundur Einarsson, f. 10. apríl 1856, d. 2. ágúst 1936. Hann var útvegsbóndi á Vestdalseyri í Seyðisfirði.

II. Eiginmaður Guðrúnar, (5. júní 1856, skildu), var Helgi Jónsson, áður bóndi í Draumbæ, f. 8. september 1806, d. 3. september 1885.
Börn þeirra hér:
9. Ragnhildur Helgadóttir, f. 26. júní 1859, d. 26. október 1859 „af nokkurskonar bjúgi“.
10. Margrét Helgadóttir, f. 24. september 1861, d. 9. september 1945. Hún fór til Vesturheims 22 ára 1888 frá Sjólyst, nefndist Mrs. John Slater Bunting.

III. Maður Guðrúnar í Salt Lake City, (16. ágúst 1883), var Jón Bjarnason, f. 22. október 1817, d. 28. júlí 1887. Hann var frá Efri-Úlfsstöðum í A-Landeyjum bróðir Magnúsar Bjarnasonar í Helgahjalli, síðar í Utah. Jón var bóndi á Oddsstöðum, var tvíkvæntur þar. Hann fór ekkill til Utah 1876.
Þau Guðrún voru barnlaus.

IV. Maður Guðrúnar, (4. nóvember 1891), var Magnús Bjarnason frá Helgahjalli, bróðir Jóns á Oddsstöðum, f. 3. ágúst 1815, d. 18. júní 1905. Guðrún var þriðja kona hans.
Þau Guðrún voru barnlaus.
Sjá: https://histfam.familysearch.org//familygroup.php?familyID=F18328&tree=Iceland

Heimildir