„Anna Guðjónsdóttir (Skaftafelli)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: thumb|200px|''Anna Guðjónsdóttir. '''Anna Guðjónsdóttir''' frá Skaftafelli, hjúkrunarfræðingur fæddist 10. nóv. 1929 og lést 23....) |
m (Verndaði „Anna Guðjónsdóttir (Skaftafelli)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 30. október 2019 kl. 19:01
Anna Guðjónsdóttir frá Skaftafelli, hjúkrunarfræðingur fæddist 10. nóv. 1929 og lést 23. ágúst 2011.
Foreldrar hennar voru Guðjón Hafliðason frá Fjósum í Mýrdal, bátsformaður, útgerðarmaður á Skaftafelli, f. 8. júní 1889, d. 13. júlí 1963, og kona hans Halldóra Kristín Þórólfsdóttir frá Hólmaseli í Flóa, Árn., húsfreyja, f. 10. júlí 1893, d. 10. janúar 1985.
Börn Halldóru Kristínar og Guðjóns:
1. Ingólfur Guðjónsson í Lukku, verkamaður, hænsna- og garðyrkjubóndi, f. 15. júlí 1913 á Brekku, d. 23. janúar 1999. Kona hans Jóhanna Hjartardóttir.
2. Trausti Guðjónsson húsasmíðameistari, 13. ágúst 1915 á Eyjarhólum, d. 2. desember 2008. Kona hans var Ragnheiður Jónsdóttir.
3. Guðbjörg Guðjónsdóttir húsfreyja, trúboði, f. 26. des. 1916, d. 14. sept. 2007. Maður hennar Jónas S. Jakobsson.
4. Auður Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 7. apríl 1918, d. 30. maí 2001. Maður hennar Höskuldur Árnason.
5. Haraldur Guðjónsson verslunarmaður, verkstjóri, forstöðumaður, f. 12. des. 1920, d. 23. nóv. 1993. Fyrri kona hans var Pálína Pálsdóttir. Síðari kona Hertha Haag, sænskrar ættar.
6. Rebekka Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 23. mars 1923, d. 21. jan. 1944. Maður hennar Gunnar Davíðsson.
7. Elísabet Guðjónsdóttir Cortes húsfreyja, hjúkrunarfræðingur, f. 5. mars 1926, d. 1. september 2015.
8. Óskar Guðjónsson verkamaður, f. 25. desember 1927. Kona hans Anna Jónsdóttir.
9. Anna Guðjónsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 10. nóv. 1929, d. 23. ágúst 2011. Maður hennar Garðar Ragnarsson.
10. Ester Guðjónsdóttir, f. 4. apríl 1934, d. 2. desember 2012. Maður hennar Benedikt Frímannsson.
11. Hafliði Guðjónsson, f. 21. apríl 1936. Kona hans Gyða Þórarinsdóttir.
Anna var með foreldrum sínum í æska.
Hún sat í Iðnskólanum einn vetur, lauk námi í Hjúkrunarskóla Íslands 1953, sat námskeið í hjúkrunarfræðum fyrir aldraða í Óðinsvéum.
Anna var hjúkrunarfræðingur á skurðstofu fæðingadeildar Landspítalans 1953-1954, á Bærum Sykehus í Osló og Rikshospital þar 1954-1955, í Svíþjóð september 1955 til janúar 1956.
Hún var yfirhjúkrunarfræðingur við Sjúkrahús Vestmannaeyja í 3 ár 1956-1959.
Anna var hjúkrunarfræðingur við Sjúkrah. Tönder á S-Jótlandi, lyfl.deild 1974, á hjúkrunarheimili fyrir aldraða 1975, hjúkrunarheimili fyrir aldraða í Óðinsvéum frá 1978.
I. Maður Önnu, (4. júní 1959), er Garðar Lárus Ragnarsson trúboði, f. 21. ágúst 1931. Foreldrar hans voru Ragnar Guðmundsson frá Ásbúð í Hafnarfirði, verslunarmaður í Reykjavík, f. 29. júní 1903, d. 3. september 1998, og kona hans Sigurbjörg Regína Magnúsdóttir frá Kirkjubóli við Laugarnesveg, húsfreyja, f. 29. mars 1909, d. 22. júlí 1991.
Börn þeirra:
1. Hlynur Garðarsson kennari, f. 10. febrúar 1961. Kona Randi Jensen.
2. Regína Garðarsdóttir Stampe hárgreiðslukona, læknaritari, býr í Noegi, f. 2. júlí 1962.
3. Ragnar Garðarsson hagfræðingur, f. 1. maí 1966. Kona hans Ólafía Daníelsdóttir.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Hjúkrunarfræðingatal I-III. Hjúkrunarfélag Íslands 1969-1992.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.