„Aðventsöfnuðurinn“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
 
Ekkert breytingarágrip
Lína 41: Lína 41:


Auk þessara 32 stofnaðila bættust 28 við hópinn áður en árið var liðið.
Auk þessara 32 stofnaðila bættust 28 við hópinn áður en árið var liðið.
{{Þorsteinn Víglundsson. [[Blik]], 1965.
}}

Útgáfa síðunnar 26. júní 2006 kl. 11:13

O.J Olsen fæddist í Noregi 6. ágúst 1887. Hann fluttist ungur til Bandaríkjanna með foreldrum sínum þar sem hann kynntist söfnuði aðventista 19 ára gamall. Til Íslands kom O.J árið 1911. Fór hann víða um landið, stofnaði söfnuði og byggði kirkjur. Jafnframt lagði hann rækt við íslensk fræði og náði strax mikilli færni í íslenska tungumálinu.

O.J fluttist með fjölskyldu sína til Vestmannaeyja um áramótin 1922-1923 og bjuggu þau í Ásum. Með honum í för var Kathy Henriksen, dönsk kona sem menntuð var hjúkrunarfræðingur og nuddari. Hún átti að veita forstöðu nudd- og baðstofu í Vestmannaeyjum.

Koma O.J vakti athygli og þegar halda átti fyrstu samkomuna í Goodtemplarahúsinu var salurinn troðfullur. Flestir komu af forvitni en aðrir til að gera grín að þessu öllu saman. Voru samkomur haldnar allan veturinn, fyrst í Goodtemplarahúsinu en síðar í Borg. Á jóladag 1922 var enn flutt í stærra húsnæði og þá í Nýja Bíó (Samkomuhúsið) við Vestmannabraut. Oftast nær var húsfyllir á samkomum og var söfnuður Aðventista í Vestmannaeyjum formlega stofnaður 26. janúar 1924.

Stofnendur

Stofnendur söfnuðs Aðventista í Vestmannaeyjum voru 32. Þeir voru:

Auk þessara 32 stofnaðila bættust 28 við hópinn áður en árið var liðið. {{Þorsteinn Víglundsson. Blik, 1965. }}