Pálína Einarsdóttir (Götu)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
(Endurbeint frá Pálína Einarsdóttir)
Fara í flakk Fara í leit

Pálína Einarsdóttir húsfreyja í Götu fæddist 27. mars 1866 í Haukadal á Rangárvöllum og lést 14. júlí 1942.
Foreldrar hennar voru Einar Gíslason frá Gröf í Hrunamannahreppi, þá vinnumaður í Haukadal, f. 21. júlí 1835, d. 17. júní 1898, og barnsmóðir hans Kristgerður Jónsdóttir frá Stórholti á Rangárvöllum, þá vinnukona í Haukadal, f. 20. ágúst 1834, d. 19. júlí 1910, en hún ólst að miklu leyti upp í Skarði á Landi.

Pálína var tökubarn á Blábringu á Rangárvöllum 1870, uppeldisbarn þar 1880, vinnukona föður síns í Hausthúsum í Leiru 1882 til 1884, vinnukona í Gerðum í Garði 1884 til 1886, vinnukona í Galtarholti 1890 og 1892 við fæðingu Einars Valdimars. Hún var vinnukona í Litla-Gerði í Hvolhreppi 1895 þegar Ingvar Gísli fæddist. Hann var strax settur í fóstur og ólst upp í Kumla og Lambhaga á Rangárvöllum.
Pálína kom að Fróðholtshóli á Rangárvöllum frá Gerði í Hvolhreppi 1897 með son sinn Einar Valdimar Jónasson með sér, kom að Stóru-Hildisey í A-Landeyjum frá Fróðholtshóli 1898 með hann.
Hún fluttist til Eyja frá Miðey í A-Landeyjum 1901 með Einar Valdimar þá 9 ára en sagður 10 ára. Hún var vinnukona á Heiði 1901, á Vilborgarstöðum 1905 og 1906, ógift húsfreyja í Nöjsomhed, bjó þar með Ingimundi Árnasyni 1908 til 1911 og voru þau síðustu íbúar þar, en húsið var rifið 1911. Hún fluttist með Ingimundi og sonunum þrem í Götu það ár, bjó þar með sömu áhöfn 1920. Ingimundur dó 1923.
Pálína var einn af 32 stofnendum Aðventistasafnaðarins í Eyjum 26. janúar 1924.
Hún var á Herjólfsgötu 12 B 1930, gamalmenni á Brekastíg 26 1940.
Pálína fluttist til Reykjavíkur um 1941, bjó þar í Undralandi við Laugaveg/Suðurlandsbraut og lést 1942.

I. Barnsfaðir Pálínu var Jónas Tjörvason (Tjörfason) frá Efrahvoli í Hvolhreppi, vinnumaður í Galtarholti, Litlagerði, og á Heiði í Vestmannaeyjum 1901, síðar á Seyðisfirði, d. þar 1927.
Börn þeirra voru:
1. Einar Valdimar Jónasson, f. 16. október 1892 í Galtarholti, d. 1922.
2. Ingvar Gísli Jónasson, f. 8. desember 1895 í Litlagerði, d. 1. október 1976.

II. Barnsfaðir hennar og sambýlismaður var Ingimundur Árnason tómthúsmaður, sjómaður, f. 18. júlí 1859, d. 1. október 1923.
Börn þeirra hér:
3. Pálmi Kristinn Ingimundarson, f. 11. febrúar 1904 á Vilborgarstöðum, d. 19. apríl 1963.
4. Þórarinn Ingimundarson, f. 21. ágúst 1905 á Vilborgarstöðum, d. 1. júní 1906.
5. Enok Ingimundarson, f. 29. ágúst 1907 á Vilborgarstöðum, d. 2. júlí 1974.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Blik 1965, Aðventistasöfnuðurinn í Vestmannaeyjum 40 ára.
  • Íslendingabók.is.
  • Magnús Óskar Ingvarsson kennari.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.