„Hildur Ísfold Högnadóttir“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
m (Verndaði „Hildur Ísfold Högnadóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
 
(Enginn munur)

Núverandi breyting frá og með 31. mars 2022 kl. 10:35

Hildur Ísfold.

Hildur Ísfold Högnadóttir fæddist 18. febrúar 1904 og lést 14. desember 1926, aðeins 22 ára gömul. Hún var dóttir Högna Sigurðssonar og Sigríðar Brynjólfsdóttur. Hún bjó ásamt fjölskyldu í Vatnsdal. Systkini Hildar voru Sigurður, Ágústa Þorgerður, Guðmundur, Haukur, Elín Esther og Hilmir.

Frekari umfjöllun

Hildur Ísfold Högnadóttir frá Vatnsdal, húsfreyja fæddist þar 18. febrúar 1904 og lést þar 14. desember 1926.
Foreldrar hennar voru Högni Sigurðsson kennari, vélstjóri, íshússstjóri, útgerðarmaður og bóndi í Vatnsdal, f. 23. september 1974, d. 14. maí 1961, og fyrri kona hans Sigríður Brynjólfsdóttir húsfreyja, f. 29. júlí 1877, d. 18. september 1921.

Börn Högna og Sigríðar:
1. Sigurður Högnason bifreiðastjóri, f. 4. okt. 1897 að Nesi í Norðfirði, d. 31. ágúst 1957.
2. Ágústa Þorgerður Högnadóttir húsfreyja, f. að Nesi 17. ágúst 1900, d. 8. október 1948.
3. Hildur Ísfold húsfreyja, f. 18. febrúar 1904, d. 14. desember 1926.
4. Guðmundur Högnason bifreiðastjóri, f. 10. maí 1908, d. 18. apríl 1982.
5. Haukur Brynjólfur Högnason bifreiðastjóri, f. 7. júlí 1912, d. 13. apríl 1993.
6. Elín Esther Högnadóttir húsfreyja, f. 6. maí 1917, d. 7. september 1992.
Barn Högna og Guðnýjar Magnúsdóttur, síðari konu hans var
7. Hilmir Högnason rafvirki, f. 27. ágúst 1923, d. 5. desember 2014.

Þau Tómas giftu sig 1922, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu á Jaðri og í Vatnsdal.
Hildur lést 1926 og Tómas 1959.

I. Maður Hildar, (15. desember 1922), var Tómas Kristinn Jónsson verkamaður, f. 10. janúar 1897 í Sómastaðagerði í Reyðarfirði, d. 3. mars 1959.
Börn þeirra:
1. Richard Tómasson, f. 22. maí 1923 á Jaðri, d. 23. febrúar 1975.
2. Sigríður Tómasdóttir Malanga, f. 13. desember 1925 í Vatnsdal, d. 8. mars 1998.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.



Myndir