„Sigríður Vigdís Clark“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Sigríður Vigdís Gunnlaugsdóttir Clark''', húsfreyja í Bandaríkjunum fæddist 22. júní 1950 á Hásteinsvegi 7.<br> Foreldrar hennar voru Gunnlaugur Sigurðsson frá Hruna, sjómaður, f. 20. maí 1921 á Reynifelli, drukknaði 29. nóvember 1963, og kona hans Jóhanna Bjarnheiður Jónsdóttir frá Mið-Grund u. Eyjafjöllum, húsfreyja, f. þar 11. mars 1920, d. 20. nóvember 1954 í Eyjum.<br>...)
 
m (Verndaði „Sigríður Vigdís Clark“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
 
(Enginn munur)

Núverandi breyting frá og með 12. júní 2024 kl. 14:31

Sigríður Vigdís Gunnlaugsdóttir Clark, húsfreyja í Bandaríkjunum fæddist 22. júní 1950 á Hásteinsvegi 7.
Foreldrar hennar voru Gunnlaugur Sigurðsson frá Hruna, sjómaður, f. 20. maí 1921 á Reynifelli, drukknaði 29. nóvember 1963, og kona hans Jóhanna Bjarnheiður Jónsdóttir frá Mið-Grund u. Eyjafjöllum, húsfreyja, f. þar 11. mars 1920, d. 20. nóvember 1954 í Eyjum.
Fósturforeldrar hennar voru Páll Guðmundsson, verslunarstjóri, f. 5. september 1914, d. 8. janúar 2008, og kona hans Jóna Alda Illugadóttir, húsfreyja, f. 17. júlí 1918, d. 2. ágúst 1992.

Börn Jóhönnu Bjarnheiðar og Gunnlaugs:
1. Margrét Þórey Gunnlaugsdóttir húsfreyja í Keflavík, f. 9. apríl 1944 á Kirkjubóli. Hún var með föður sínum eftir lát móður sinnar. Maður hennar er Hafsteinn Reynir Magnússon.
2. Hróbjartur Jón Gunnlaugsson, f. 20. október 1947 í Kópavogi, d. 4. mars 2023. Hann fór í fóstur að Mið-Grund u. Eyjafjöllum til móðurforeldra sinna. Hann bjó í Reykjavík. Fyrrum sambúðarkona hans Særún Björnsdóttir.
3. Sigríður Vigdís Gunnlaugsdóttir Clark húsfreyja í Bandaríkjunum, f. 22. júní 1950 á Hásteinsvegi 7. Eftir lát móður sinnar var hún fóstruð hjá Jónu Öldu Illugadóttur og Páli Guðmundssyni verslunarstjóra.
4. Pálína Guðbjörg Gunnlaugsdóttir í Eyjum, ógift, f. 18. júlí 1951 á Hásteinsvegi 7, d. 29. janúar 1984. Hún var fóstruð í Hlíðardal hjá skyldfólki sínu, Guðjóni Jónssyni skipstjóra og síðari konu hans Rannveigu Eyjólfsdóttur húsfreyju, en hún var afasystir hennar.
5. Rannveig Hrefna Gunnlaugsdóttir húsfreyja, starfsmaður á öldrunarstofnun, f. 5. nóvember 1952 að Hásteinsvegi 7. Fósturmóðir hennar var Guðbjörg Guðjónsdóttir húsfreyja á Kvíhólma u. Eyjafjöllum, frænka hennar, f. 5. júlí 1912, d. 1. desember 1993. Fyrrum maður hennar Vilmundur Þórir Kristinsson.

Sigríður Vigdís eignaðist barn með Snorra 1970.
þau Ralph giftu sig, fluttu til Bandaríkjanna um 1979, eignuðust tvö börn.

I. Barnsfaðir Sigríðar Vigdísar var Snorri.
Barn þeirra:
1. Guðný Alda Snorradóttir, afgreiðslumaður, bjó síðast í Sandgerði, f. 8. júní 1970, d. 13. september 1997. Maður hennar Engilbert Adolfsson.

II. Maður hennar Ralph Clark.
Börn þeirra:
2. Victoria Clark.
3. Páll Dean Clark.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Heimaslóð.
  • Íslendingabók.
  • Morgunblaðið. Minning Guðnýjar Öldu.
  • Valdaætt. Niðjatal Valda Ketilssonar bónda á Sauðhúsvöllum undir Eyjafjöllum og k.h. Katrínar Þórðardóttur. Magnea Árnadóttir. Handrit 1992.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.