Pálína Guðbjörg Gunnlaugsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Pálína Guðbjörg Gunnlaugsdóttir, frá Hásteinsvegi 7, fæddist þar 18. júlí 1951 og lést 29. janúar 1984.
Foreldrar hennar voru Gunnlaugur Sigurðsson frá Hruna, sjómaður, f. 20. maí 1921 á Reynifelli, drukknaði 29. nóvember 1963, og kona hans Jóhanna Bjarnheiður Jónsdóttir frá Mið-Grund u. Eyjafjöllum, húsfreyja, f. þar 11. mars 1920, d. 20. nóvember 1954 í Eyjum.
Hún var fóstruð í Hlíðardal hjá skyldfólki sínu, Guðjóni Jónssyni skipstjóra og síðari konu hans Rannveigu Eyjólfsdóttur húsfreyju, en hún var afasystir hennar.

Börn Jóhönnu Bjarnheiðar og Gunnlaugs:
1. Margrét Þórey Gunnlaugsdóttir húsfreyja í Keflavík, f. 9. apríl 1944 á Kirkjubóli. Hún var með föður sínum eftir lát móður sinnar. Maður hennar er Hafsteinn Reynir Magnússon.
2. Hróbjartur Jón Gunnlaugsson, f. 20. október 1947 í Kópavogi, d. 4. mars 2023. Hann fór í fóstur að Mið-Grund u. Eyjafjöllum til móðurforeldra sinna. Hann bjó í Reykjavík. Fyrrum sambúðarkona hans Særún Björnsdóttir.
3. Sigríður Vigdís Gunnlaugsdóttir Clark húsfreyja í Bandaríkjunum, f. 22. júní 1950 á Hásteinsvegi 7. Eftir lát móður sinnar var hún fóstruð hjá Jónu Öldu Illugadóttur og Páli Guðmundssyni verslunarstjóra.
4. Pálína Guðbjörg Gunnlaugsdóttir í Eyjum, ógift, f. 18. júlí 1951 á Hásteinsvegi 7, d. 29. janúar 1984.
5. Rannveig Hrefna Gunnlaugsdóttir húsfreyja, starfsmaður á öldrunarstofnun, f. 5. nóvember 1952 að Hásteinsvegi 7. Fósturmóðir hennar var Guðbjörg Guðjónsdóttir húsfreyja á Kvíhólma u. Eyjafjöllum, frænka hennar, f. 5. júlí 1912, d. 1. desember 1993. Fyrrum maður hennar Vilmundur Þórir Kristinsson.

Pálína Guðbjörg var ógift og barnlaus.
Hún lést 1984.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.