Rannveig Hrefna Gunnlaugsdóttir
Rannveig Hrefna Gunnlaugsdóttir húsfreyja, félagsliði á Hrafnistu í Rvk fæddist 5. nóvember 1952.
Foreldrar hennar voru Gunnlaugur Sigurðsson frá Hruna, sjómaður, f. 20. maí 1921 á Reynifelli, drukknaði 29. nóvember 1963, og kona hans Jóhanna Bjarnheiður Jónsdóttir frá Mið-Grund u. Eyjafjöllum, húsfreyja, f. þar 11. mars 1920, d. 20. nóvember 1954 í Eyjum.
Fósturmóðir hennar var Guðbjörg Guðjónsdóttir frænka hennar, húsfreyja á Kvíhólma u. Eyjafjöllum, f. 5. júlí 1912, d. 1. desember 1993.
Börn Jóhönnu Bjarnheiðar og Gunnlaugs:
1. Margrét Þórey Gunnlaugsdóttir húsfreyja í Keflavík, f. 9. apríl 1944 á Kirkjubóli. Hún var með föður sínum eftir lát móður sinnar. Maður hennar er Hafsteinn Reynir Magnússon.
2. Hróbjartur Jón Gunnlaugsson, f. 20. október 1947 í Kópavogi, d. 4. mars 2023. Hann fór í fóstur að Mið-Grund u. Eyjafjöllum til móðurforeldra sinna. Hann bjó í Reykjavík. Fyrrum sambúðarkona hans Særún Björnsdóttir.
3. Sigríður Vigdís Gunnlaugsdóttir Clark húsfreyja í Bandaríkjunum, f. 22. júní 1950 á Hásteinsvegi 7. Eftir lát móður sinnar var hún fóstruð hjá Jónu Öldu Illugadóttur og Páli Guðmundssyni verslunarstjóra.
4. Pálína Guðbjörg Gunnlaugsdóttir í Eyjum, ógift, f. 18. júlí 1951 á Hásteinsvegi 7, d. 29. janúar 1984.
5. Rannveig Hrefna Gunnlaugsdóttir húsfreyja, starfsmaður á öldrunarstofnun, f. 5. nóvember 1952 að Hásteinsvegi 7. Fósturmóðir hennar var Guðbjörg Guðjónsdóttir húsfreyja á Kvíhólma u. Eyjafjöllum, frænka hennar, f. 5. júlí 1912, d. 1. desember 1993.
Rannveig eignaðist barn með Guðmundi 1972.
Þau Guðjón giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau skildu.
Þau Vilmundur Þórir giftu sig, eignuðust ekki börn saman. Þau skildu
I. Barnsfaðir Rannveigar er Guðmundur Reynir Stefánsson, f. 25. september 1944.
Barn þeirra:
1. Jóhann Guðmundsson, f. 18. desember 1972.
II. Fyrrum maður Rannveigar er Guðjón Markús Árnason úr Rvk, járnsmiður, f. 28. maí 1954. Foreldrar hans Guðmundur Árni Magnússon, f. 30. janúar 1929, d. 27. nóvember 1999, og Sigríður Inga Jónasdóttir, f. 10. janúar 1930, d. 25. mars 2015.
Börn þeirra:
2. Guðbjörg Guðjónsdóttir, f. 23. júní 1977.
3. Árný Inga Guðjónsdóttir, f. 6. júní 1979.
4. Ragnar Aðalsteinn Guðjónsson, f. 6. október 1984.
III. Fyrrum maður Rannveigar var Vilmundur Þórir Kristinsson sjómaður, lögreglumaður, fangavörður, f. 31. október 1937, d. 9. júlí 2020.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Rannveig Hrefna.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.