Gunnlaugur Sigurðsson (Hruna)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Gunnlaugur Sigurðsson frá Hruna, sjómaður fæddist 20. maí 1921 að Reynifelli við Vesturveg 15b og lést 29. nóvember 1963.
Foreldrar hans voru Sigurður Þorleifsson verkamaður, f. 16. ágúst 1886 á Á á Síðu, V-Skaft., d. 15. maí 1969, og kona hans Margrét Vigdís Gunnlaugsdóttir húsfreyja, f. 6. janúar 1898 í Uppsalakoti á Svarfaðardal, Eyjafj.s., d. 19. júlí 1965.

ctr
Börnin í Hruna með foreldrum sínum.
Aftari röð frá vinstri (þrjú börn): Una, Sigríður og Gunnlaugur.
Fremri röð frá vinstri (sex börn og foreldrarnir): Eiríkur, Einara, Fjóla, Pálína, Rósa og Margrét.

Börn Margrétar og Sigurðar:
1. Gunnlaugur Sigurðsson sjómaður, f. 20. maí 1921 að Reynifelli við Vesturveg 15b, d. 29. nóv. 1963.
2. Sigríður Sigurðardóttir húsfreyja, f. í Nikhól við Hásteinsveg 22. júní 1922, d. 22. september 2004.
3. Una Guðrún Rósamunda Sigurðardóttir húsfreyja, f. í Nikhól 6. ágúst 1923, d. 30. apríl 1978.
4. Margrét Þorleifsdóttir Sigurðardóttir húsfreyja, f. 3. febr. 1924 í Sjávarborg við Sjómannasund, d. 26. janúar 2012.
5. Ármann Sigurðsson, f. 6. febrúar 1927 í Sjávarborg, d. 27. mars 1927.
6. Fjóla Sigurðardóttir húsfreyja, f. 17. ágúst 1928 í Hruna við Miðstræti, d. 8. nóvember 2013.
7. Pálína Sigurðardóttir húsfreyja, f. 22. okt. 1929 í Hruna.
8. Eiríkur Sigurðsson sjómaður, útgerðarmaður, verkamaður, bifreiðastjóri f. 31. jan. 1931 í Hruna, d. 28. nóvember 2007.
9. Oddný Sigurrós Sigurðardóttir (Rósa) húsfreyja, f. 1. okt. 1933 í Hruna, d. 25. febrúar 2013.
10. Einara Sigurðardóttir húsfreyja, f. 11. jan. 1936 í Hruna.
Barn Margrétar:
12. Pétur Sveinsson, f. 16. maí 1918 í Baldurshaga á Fáskrúðsfirði, bifreiðastjóri, síðast í Reykjavík, d. 8. september 1985.
Fósturbarn þeirra, dóttir Unu, er
13. Þorgerður Sigurvinsdóttir húsfreyja í Eyjum, síðar í Kópavogi, f. 8. október 1943.

Gunnlaugur var með foreldum sínum fyrstu ár sín, var með þeim 1927, en var sendur í fóstur að Langholti í Meðalland og var þar 1930.
Þau Jóhanna giftu sig 1943, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu á Kirkjubóli í Eyjum 1944, voru í Kópavogi 1947, en voru komin til Eyja 1948, bjuggu í Hruna með tvö börn sín. Þau bjuggu á Hásteinsvegi 7 1950 og 1954 við andlát Jóhönnu Bjarnheiðar.
Gunnlaugur drukknaði, þegar v/s Hólmar fórst 29. nóv. 1963.

I. Kona Gunnlaugs, (5. júní 1943), var Jóhanna Bjarnheiður Jónsdóttir frá Miðgrund u. Eyjafjöllum, f. 11. mars 1920, d. 20. nóvember 1954.
Börn þeirra:
1. Margrét Þórey Gunnlaugsdóttir húsfreyja í Keflavík, f. 9. apríl 1944 á Kirkjubóli. Hún var með föður sínum eftir lát móður sinnar. Maður hennar er Hafsteinn Reynir Magnússon.
2. Hróbjartur Jón Gunnlaugsson, f. 20. október 1947 í Kópavogi, d. 4. mars 2023. Hann fór í fóstur að Mið-Grund u. Eyjafjöllum til móðurforeldra sinna. Hann bjó í Reykjavík. Fyrrum sambúðarkona hans Særún Björnsdóttir.
3. Sigríður Vigdís Gunnlaugsdóttir Clark húsfreyja í Bandaríkjunum, f. 22. júní 1950 á Hásteinsvegi 7. Eftir lát móður sinnar var hún fóstruð hjá Jónu Öldu Illugadóttur og Páli Guðmundssyni verslunarstjóra.
4. Pálína Guðbjörg Gunnlaugsdóttir í Eyjum, ógift, f. 18. júlí 1951 á Hásteinsvegi 7, d. 29. janúar 1984. Hún var fóstruð í Hlíðardal hjá skyldfólki sínu, Guðjóni Jónssyni skipstjóra og síðari konu hans Rannveigu Eyjólfsdóttur húsfreyju, en hún var afasystir hennar.
5. Rannveig Hrefna Gunnlaugsdóttir húsfreyja, starfsmaður á öldrunarstofnun, f. 5. nóvember 1952 að Hásteinsvegi 7. Fósturmóðir hennar var Guðbjörg Guðjónsdóttir húsfreyja á Kvíhólma u. Eyjafjöllum, frænka hennar, f. 5. júlí 1912, d. 1. desember 1993. Fyrrum maður hennar Vilmundur Þórir Kristinsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.