Valgerður Sigurðardóttir (Hafnarnesi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Valgerður Jóna Sigurðardóttir frá Hafnarnesi við Fáskrúðsfjörð, húsfreyja, mælaálesari fæddist 15. desember 1942.
Foreldrar hennar voru Sigurður Karlsson frá Garðsá á Hafnarnesi, f. 29. mars 1904, d. 12. ágúst 1972, og Kristín Sigurðardóttir frá Níelsarbæ á Hafnarnesi, f. 6. október 1906, d. 27. maí 1981.

Börn Kristínar og Sigurðar:
1. María Sigþrúður Sigurðardóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 14. september 1922, d. 4. maí 2005. Maður hennar Magnús Benjamínsson.
2. Karl Emil Sigurðsson vélstjóri, f. 8. janúar 1924, d. 18. nóvember 2010. Kona hans Lilja Finnbogadóttir, látin. Kona hans Helga Þorkelsdóttir.
3. Jórunn Þórunn Sigurðardóttir húsfreyja, f. 27. október 1925, d. 3. ágúst 1967. Maður hennar Ólafur J. Erlendsson.
4. Óskar Sigurðsson, f. 19. maí 1927.
5. Rafn Sigurðsson sjómaður, leigubifreiðastjóri, f. 29. mars 1929, d. 27. ágúst 1988. Fyrrum kona hans Lene Ebbesen. Fyrrum kona hans Fanney Sigurjónsdóttir.
6. Jón Sigurðsson, f. 1. febrúar 1931, d. 4. apríl 1931.
7. Erna Guðmundína Sigurðardóttir húsfreyja, f. 16. maí 1932, d. 6. apríl 2022. Fyrri maður hennar var Björgvin Óskarsson, látinn. Síðari maður hennar Kristinn Jónsson.
8. Ásta Sigurðardóttir húsfreyja, f. 1. ágúst 1933, d. 9. mars 2022. Barnsfaðir hennar Ragnar Runólfsson. Maður hennar Garðar Ásbjörnsson.
9. Oddný Fjóla Sigurðardóttir húsfreyja, f. 13. október 1936. Maður hennar Bernharð Ingimundarson.
10. Valgerður Jóna Sigurðardóttir húsfreyja, mælaálesari, f. 15. desember 1942. Maður hennar Rúnar Eiríkur Siggeirsson.
Barnsmóðir Sigurðar var Marta Sveinbjörnsdóttir frá Eyjólfsstöðum í Fossárdal, Berufirði, f. 11. júlí 1908, d. 20. janúar 1999.
Barn þeirra:
11. Ágúst Heiðar Sigurðsson, f. 23. október 1938, d. 24. maí 2008. Kona hans Sigrún Júlíusdóttir.

Valgerður var með foreldrum sínum í æsku, flutti með þeim til Eyja 1953. Hún bjó með þeim í Hjálmholti við Urðaveg 34 og í Fagurhól við Strandveg 55.
Hún var fiskiðnaðarkona, síðar álesari hjá Orkuveitu Reykjavíkur í 28 ár.
Þau Rúnar giftu sig 1969, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu á Löndum við Landagötu 11 1972, búa nú á Arnartanga í Mosfellsbæ.

I. Maður Valgerðar, (17. maí 1969, er Rúnar Eiríkur Siggeirsson sjómaður, sendibílstjóri, f. 29. nóvember 1947.
Börn þeirra:
1. Unnur Rúnarsdóttir þjónn, f. 26. september 1967. Barnsfaðir hennar Kristján Vídalín Kristjánsson.
2. Esther Rúnarsdóttir álesari hjá Orkuveitu Reykjavíkur, f. 1. maí 1973. Barnsfaðir hennar Jökull Ísleifsson.
3. Kristín Rúnarsdóttir kennari, f. 6. október 1976. Fyrrum maður hennar Ingólfur Birgir Bragason.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.