Sigríður Sigurðardóttir (Skuld)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Inga Sigurðardóttir frá Skuld, húsfreyja fæddist þar 14. apríl 1925.
Foreldrar hennar voru Sigurður Pétur Oddsson útgerðarmaður í Skuld og k.h. Ingunn Jónasdóttir húsfreyja.
Foreldrar Sigurðar voru Oddur bóndi á Rauðafelli u. Eyjafjöllum, Krossi í Landeyjum og Heiði á Rangárvöllum, f. 7. sept. 1842 á Hrútafelli u. Eyjafjöllum, d. 16. nóv. 1922 á Heiði, Péturs bóndi á Hrútafelli Oddssonar og konu Péturs, Valgerðar húsfreyju, f. 7. jan. 1809, d. 29. apríl 1876, Hróbjarts bónda í Berjanesi u. Eyjafjöllum, f. 1769, d. 27. júní 1824, Björnssonar. Móðir Sigurðar Péturs og f.k.h. Odds var Sigríður húsfreyja á Heiði á Rangárvöllum, f. 5. júlí 1840, d. 27. febr. 1885, Árna bónda í Skálakoti, f. 9. ágúst 1798, d. 5. ágúst 1864, Sveinssonar og konu Árna bónda, Guðfinnu húsfreyju, f. 3. okt. 1806, d. 8. maí 1882, Sveins bónda á Ytri-Sólheimum í Mýrdal, f. 1761, d. 17. okt. 1845, Alexanderssonar.
Foreldrar Ingunnar í Skuld voru Jónas bóndi á Helluvaði á Rangárvöllum, f. 20. sept. 1862 í Eystrihól, d. 15. júní 1924, Ingvars bónda á Valstrýtu í Fljótshlíð, Ártúnum og síðar á Eystrihóli í Landeyjum, formanns við Landeyjasand, f. 28. ágúst 1824 á Galtalæk á Landi, d. 12. apríl 1875, drukknaði í lendingu á Skúmsstaðafjöru, Runólfssonar og konu Ingvars, Kristínar húsfreyju, f. 8. júlí 1822, d. 22. des. 1914, Sigurðar bónda í Ártúnum, f. 1791, d. 28. maí 1866 í Ártúnum, Þorsteinssonar.
Móðir Ingunnar og kona (6. jan. 1882) Jónasar var Elín húsfreyja, f. 10. nóvember 1856, d. 12. apríl 1911, Jóns bónda á Oddsstöðum í Eyjum, f. 1808, d. 6. júní 1866, Þorgeirssonar og konu Jóns, Margrétar húsfreyju, f. 16. janúar 1832, d. 15. febrúar 1919, Halldórs bónda í Steinum u. Eyjafjöllum, Eiríkssonar.

Börn Ingunnar og Sigurðar:
1. Jónas Sigurðsson, f. 29. marz 1907, d. 4. janúar 1980, skipstjóri, húsvörður Gagnfræðaskólans, kvæntur Guðrúnu Ingvarsdóttur.
2. Þórunn Lovísa Sigurðardóttir húsfreyja, f. 30. ágúst 1908, d. 18. júlí 1979 gift Guðna Grímssyni, útgerðarmanni og skipatjóra
3. Oddur Sigurðsson, f 25. maí 1911, d. 19. nóvember 1979, skipstjóri, kvæntur Magneu Lovísu Magnúsdóttur.
4. Elínborg Sigurðardóttir húsfreyja, f. 25. ágúst 1913, d. 5. nóvember 1993, gift Guðmundi Geir Ólafssyni, verzlunarmanni, búsett á Selfossi.
5. Ólafur Sigurðsson, f. 14. okt. 1915, d. 16. mars 1969, skipstjóri, útgerðarmaður, kvæntur Ástu Kristjánsdóttur Bjartmars, búsett í Vestmannaeyjum.
6. Sigurbjörg Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 2 febr. 1917, d. 4. apríl 1992. Fyrri maður Skafti Þórarinsson. Seinni maður Guðmundur Gíslason.
7. Jónheiður Árný Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 16. jan. 1919, d. 8. nóvember 1986, gift Jóni Sigurðssyni, verzlunarmanni.
8. Stefanía Sigurðardóttir húsfreyja á Akranesi og í Reykjavík, verslunarmaður, aðstoðarmaður tannlæknis, f. 2. júní 1921, d. 18. júlí 2004, gift Guðna Degi Kristjánssyni bakarameistara, síðar Árna Guðmundi Andréssyni.
9. Jóhanna Júlía Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 4 marz 1923, gift Guðmundi Jónssyni, bakarameistara.
10. Sigríður Inga Sigurðardóttir húsfreyja, hótelrekandi í Eyjum, f. 14. apríl 1925, gift Ingólfi Theódórssyni netagerðarmeistara og útgerðarmanni í Eyjum.
11. Jónas Ragnar Sigurðsson, prentari, f. 24. febr. 1928, d. 20. nóvember 2002. Fyrrum sambúðarkona hans Audrey Kathleen Magnússon.

ctr


Fjölskylda Ingunnar og Sigurðar í Skuld 1927.
(Höggið á myndina til að fá nánari skýringu á henni).


ctr


Skuldarfjölskyldan.
Mynd úr Bliki 1961.
Standandi frá vinstri: Stefanía, Ólafur, Sigurbjörg, Oddur, Þórunn Lovísa, Jónas, Elínborg, Jónheiður Árný
Sitjandi frá vinstri: Sigríður Inga, Ingunn Jónasdóttir, Jónas Ragnar, Sigurður Pétur Oddsson, Jóhanna Júlía.

Sigríður var með foreldrum sínum í æsku.
Hún var forstöðumaður gistihússins Hvíld í Eyjum.
Þau Ingólfur giftu sig, eignuðust sex börn. Þau bjuggu á Heiðarvegi 36 og Höfðavegi 16.
Ingólfur lést 1988.
Sigríður dvelur á hjúkrunarheimilinu Eir í Reykjavík.

I. Maður Sigríðar var Ingólfur Theodórsson frá Siglufirði, netagerðarmeistari, f. 10. nóvember 1912, d. 14. mars 1988.
Börn þeirra:
1. Sigurður Ingi Ingólfsson netagerðarmeistari, útgerðarmaður, f. 28. janúar 1945 á Heiðarvegi 66. Kona hans Jóna Berg Andrésdóttir.
2. Elín Björg Ingólfsdóttir, f. 7. desember 1946 á Heiðarvegi 36, d. 13. desember 1946.
3. Hugrún Hlín Ingólfsdóttir bankastarfsmaður, f. 25. ágúst 1948 á Heiðarvegi 36, d. 3. maí 2003. Fyrrum maður hennar Alfreð Guðmundsson. Fyrrum maður hennar Jónas Traustason. Maður hennar Baldur Þór Baldvinsson.
4. Kristín Hrönn Ingólfsdóttir snyrtifræðingur í Danmörku, f. 23. október 1960. Maður hennar Pierre René Schwartz.
5. Elfa Dröfn Ingólfsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 28. september 1962. Maður hennar Páll Kristrúnar Magnússon.
6. Harpa Fold Ingólfsdóttir fisktæknir, tvíburi, f. 28. september 1962.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.