Júlía Sigurðardóttir (Skuld)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Jóhanna Júlía Sigurðardóttir.

Jóhanna Júlía Sigurðardóttir frá Skuld við Vestmannabraut 40, húsfreyja fæddist þar 4. mars 1923 og lést 21. janúar 2014 á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð.
Foreldrar hennar voru Sigurður Pétur Oddsson útgerðarmaður í Skuld og k.h. Ingunn Jónasdóttir húsfreyja.
Foreldrar Sigurðar voru Oddur bóndi á Rauðafelli u. Eyjafjöllum, Krossi í Landeyjum og Heiði á Rangárvöllum, f. 7. sept. 1842 á Hrútafelli u. Eyjafjöllum, d. 16. nóv. 1922 á Heiði, Péturs bóndi á Hrútafelli Oddssonar og konu Péturs, Valgerðar húsfreyju, f. 7. jan. 1809, d. 29. apríl 1876, Hróbjarts bónda í Berjanesi u. Eyjafjöllum, f. 1769, d. 27. júní 1824, Björnssonar. Móðir Sigurðar Péturs og f.k. Odds var Sigríður húsfreyja á Heiði á Rangárvöllum, f. 5. júlí 1840, d. 27. febr. 1885, Árna bónda í Skálakoti, f. 9. ágúst 1798, d. 5. ágúst 1864, Sveinssonar og konu Árna bónda, Guðfinnu húsfreyju, f. 3. okt. 1806, d. 8. maí 1882, Sveins bónda á Ytri-Sólheimum í Mýrdal, f. 1761, d. 17. okt. 1845, Alexanderssonar.
Foreldrar Ingunnar í Skuld voru Jónas bóndi á Helluvaði á Rangárvöllum, f. 20. sept. 1862 í Eystrihól, d. 15. júní 1924, Ingvars bónda á Valstrýtu í Fljótshlíð, Ártúnum og síðar á Eystrihóli í Landeyjum, formanns við Landeyjasand, f. 28. ágúst 1824 á Galtalæk á Landi, d. 12. apríl 1875, drukknaði í lendingu á Skúmsstaðafjöru, Runólfssonar og konu Ingvars, Kristínar húsfreyju, f. 8. júlí 1822, d. 22. des. 1914, Sigurðar bónda í Ártúnum, f. 1791, d. 28. maí 1866 í Ártúnum, Þorsteinssonar.
Móðir Ingunnar og kona (6. jan. 1882) Jónasar var Elín húsfreyja, f. 10. nóvember 1856, d. 12. apríl 1911, Jóns bónda á Oddsstöðum í Eyjum, f. 1808, d. 6. júní 1866, Þorgeirssonar og konu Jóns, Margrétar húsfreyju, f. 16. janúar 1832, d. 15. febrúar 1919, Halldórs bónda í Steinum u. Eyjafjöllum, Eiríkssonar.

Börn Ingunnar og Sigurðar:
1. Jónas Sigurðsson, f. 29. marz 1907, d. 4. janúar 1980, skipstjóri, húsvörður Gagnfræðaskólans, kvæntur Guðrúnu Ingvarsdóttur.
2. Þórunn Lovísa Sigurðardóttir húsfreyja, f. 30. ágúst 1908, d. 18. júlí 1979 gift Guðna Grímssyni, útgerðarmanni og skipatjóra
3. Oddur Sigurðsson, f 25. maí 1911, d. 19. nóvember 1979, skipstjóri, kvæntur Magneu Lovísu Magnúsdóttur.
4. Elínborg Sigurðardóttir húsfreyja, f. 25. ágúst 1913, d. 5. nóvember 1993, gift Guðmundi Geir Ólafssyni, verzlunarmanni, búsett á Selfossi.
5. Ólafur Sigurðsson, f. 14. okt. 1915, d. 16. mars 1969, skipstjóri, útgerðarmaður, kvæntur Ástu Kristjánsdóttur Bjartmars, búsett í Vestmannaeyjum.
6. Sigurbjörg Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 2 febr. 1917, d. 4. apríl 1992. Fyrri maður Skafti Þórarinsson. Seinni maður Guðmundur Gíslason.
7. Jónheiður Árný Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 16. jan. 1919, d. 8. nóvember 1986, gift Jóni Sigurðssyni, verzlunarmanni.
8. Stefanía Sigurðardóttir húsfreyja á Akranesi og í Reykjavík, verslunarmaður, aðstoðarmaður tannlæknis, f. 2. júní 1921, d. 18. júlí 2004, gift Guðna Degi Kristjánssyni bakarameistara, síðar Árna Guðmundi Andréssyni.
9. Jóhanna Júlía Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 4 marz 1923, gift Guðmundi Jónssyni, bakarameistara.
10. Sigríður Inga Sigurðardóttir húsfreyja, hótelrekandi í Eyjum, f. 14. apríl 1925, gift Ingólfi Theódórssyni netagerðarmeistara og útgerðarmanni í Eyjum.
11. Jónas Ragnar Sigurðsson, prentari, f. 24. febr. 1928, d. 20. nóvember 2002. Fyrrum sambúðarkona hans Audrey Kathleen Magnússon.

ctr


Fjölskylda Ingunnar og Sigurðar í Skuld 1927.
(Höggið á myndina til að fá nánari skýringu á henni).


ctr


Skuldarfjölskyldan.
Mynd úr Bliki 1961.
Standandi frá vinstri: Stefanía, Ólafur, Sigurbjörg, Oddur, Þórunn Lovísa, Jónas, Elínborg, Jónheiður Árný
Sitjandi frá vinstri: Sigríður Inga, Ingunn Jónasdóttir, Jónas Ragnar, Sigurður Pétur Oddsson, Jóhanna Júlía.

Júlía var með foreldrum sínum í æsku.
Hún vann um skeið í bakaríi á Hverfisgötu við hlið manns síns, en á seinni árum starfaði hún í Sælgætisgerðinni Freyju, sem maður hennar og synir ráku.
Þau Guðmundur giftur sig, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu í Reykjavík.
Guðmundur lést 1990 og Júlía 2014.

I. Maður Júlíu var Guðmundur Jónsson bakarameistari, verksmiðjueigandi, f. 28. apríl 1918 á Stóra-Seli í Reykjavík, d. 21. nóvember 1990. Foreldrar hans voru Jón Guðmundsson frá Báruhaugseyri á Álftanesi, verkamaður, f. 5. desember 1886, d. 11. apríl 1967, og kona hans Guðrún Júlíana Sveinsdóttir frá Stóra-Seli í Reykjavík, húsfreyja, f. 1. júlí 1890, d. 5. desember 1945.
Börn þeirra:
1. Reynir Guðmundsson, f. 18. júní 1943, d. 24. september 1967. Kona hans Kristín Jóhannesdóttir.
2. Ingunn Jóhannesdóttir, f. 8. janúar 1951. Fyrrum eiginmaður Árni Jón Baldvinsson. Fyrrum sambúðarmaður Jónas Skaftason. Maður hennar Gunnar Steinn Karlsson.
3. Ævar Guðmundsson, f. 17. júlí 1953. Kona hans Ingibjörg Bjarnadóttir.
4. Jón Guðmundsson, f. 10. desember 1956. Fyrrum eiginkona Guðrún Ólafsdóttir. Kona hans Erla Guðmundsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.