Ragnar Sigurðsson (Skuld)
Jónas Ragnar Sigurðsson frá Skuld við Vestmannabraut 40, prentari, gullsmiður fæddist þar 24. febrúar 1928 og lést 11. nóvember á Landspítalanum.
Foreldrar hans voru Sigurður Pétur Oddsson útgerðarmaður í Skuld og k.h. Ingunn Jónasdóttir húsfreyja.
Foreldrar Sigurðar voru Oddur bóndi á Rauðafelli u. Eyjafjöllum, Krossi í Landeyjum og Heiði á Rangárvöllum, f. 7. sept. 1842 á Hrútafelli u. Eyjafjöllum, d. 16. nóv. 1922 á Heiði, Péturs bóndi á Hrútafelli Oddssonar og konu Péturs, Valgerðar húsfreyju, f. 7. jan. 1809, d. 29. apríl 1876, Hróbjarts bónda í Berjanesi u. Eyjafjöllum, f. 1769, d. 27. júní 1824, Björnssonar.
Móðir Sigurðar Péturs og f.k. Odds var Sigríður húsfreyja á Heiði á Rangárvöllum, f. 5. júlí 1840, d. 27. febr. 1885, Árna bónda í Skálakoti, f. 9. ágúst 1798, d. 5. ágúst 1864, Sveinssonar og konu Árna bónda, Guðfinnu húsfreyju, f. 3. okt. 1806, d. 8. maí 1882, Sveins bónda á Ytri-Sólheimum í Mýrdal, f. 1761, d. 17. okt. 1845, Alexanderssonar.
Foreldrar Ingunnar í Skuld voru Jónas bóndi á Helluvaði á Rangárvöllum, f. 20. sept. 1862 í Eystrihól, d. 15. júní 1924, Ingvars bónda á Valstrýtu í Fljótshlíð, Ártúnum og síðar á Eystrihóli í Landeyjum, formanns við Landeyjasand, f. 28. ágúst 1824 á Galtalæk á Landi, d. 12. apríl 1875, drukknaði í lendingu á Skúmsstaðafjöru, Runólfssonar og konu Ingvars, Kristínar húsfreyju, f. 8. júlí 1822, d. 22. des. 1914, Sigurðar bónda í Ártúnum, f. 1791, d. 28. maí 1866 í Ártúnum, Þorsteinssonar.
Móðir Ingunnar og kona (6. jan. 1882) Jónasar var Elín húsfreyja, f. 10. nóvember 1856, d. 12. apríl 1911, Jóns bónda á Oddsstöðum í Eyjum, f. 1808, d. 6. júní 1866, Þorgeirssonar og konu Jóns, Margrétar húsfreyju, f. 16. janúar 1832, d. 15. febrúar 1919, Halldórs bónda í Steinum u. Eyjafjöllum, Eiríkssonar.
Börn Ingunnar og Sigurðar:
1. Jónas Sigurðsson, f. 29. marz 1907, d. 4. janúar 1980, skipstjóri, húsvörður Gagnfræðaskólans, kvæntur Guðrúnu Ingvarsdóttur.
2. Þórunn Lovísa Sigurðardóttir húsfreyja, f. 30. ágúst 1908, d. 18. júlí 1979 gift Guðna Grímssyni, útgerðarmanni og skipatjóra
3. Oddur Sigurðsson, f 25. maí 1911, d. 19. nóvember 1979, skipstjóri, kvæntur Magneu Lovísu Magnúsdóttur.
4. Elínborg Sigurðardóttir húsfreyja, f. 25. ágúst 1913, d. 5. nóvember 1993, gift Guðmundi Geir
Ólafssyni, verzlunarmanni, búsett á Selfossi.
5. Ólafur Sigurðsson, f. 14. okt. 1915, d. 16. mars 1969, skipstjóri, útgerðarmaður, kvæntur Ástu Kristjánsdóttur Bjartmars, búsett í Vestmannaeyjum.
6. Sigurbjörg Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 2 febr. 1917, d. 4. apríl 1992. Fyrri maður Skafti Þórarinsson. Seinni maður Guðmundur Gíslason.
7. Jónheiður Árný Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 16. jan. 1919, d. 8. nóvember 1986, gift Jóni Sigurðssyni, verzlunarmanni.
8. Stefanía Sigurðardóttir húsfreyja á Akranesi og í Reykjavík, verslunarmaður, aðstoðarmaður tannlæknis, f. 2. júní 1921, d. 18. júlí 2004, gift Guðna Degi Kristjánssyni bakarameistara, síðar Árna Guðmundi Andréssyni.
9. Jóhanna Júlía Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 4 marz 1923, gift Guðmundi Jónssyni, bakarameistara.
10. Sigríður Inga Sigurðardóttir húsfreyja, hótelrekandi í Eyjum, f. 14. apríl 1925, gift Ingólfi Theódórssyni netagerðarmeistara og útgerðarmanni í Eyjum.
11. Jónas Ragnar Sigurðsson, prentari, f. 24. febr. 1928, d. 20. nóvember 2002. Fyrrum sambúðarkona hans Audrey Kathleen Magnússon.
Ragnar var með foreldrum sínum í æsku.
Hann lauk gagnfræðaprófi í Gagnfræðaskólanum 1945, lærði prentiðn í Eyjaprenti í Eyjum, síðar lærði hann gullsmíði í Reykjavík og lauk sveinsprófi í iðninni.
Vegna fötlunar þurfti Ragnar að dvelja langdvölum á sjúkrastofnunum, bæði hér á landi og í Noregi.
Hann vann við prentiðn í Eyjum og í Prentsmiðjunni Eddu í Reykjavík.
Ragnar þurfti að hætta prentarastörfum vegna fötlunar sinnar, hóf störf á Gullsmíðaverkstæði Guðmundar Andréssonar og síðar hjá Jóni og Óskari og lauk sveinsprófi. Hann starfaði síðan við iðnina frá 1990 og meðan aldur og heilsa leyfðu.
Þau Audrey hófu sambúð, eignuðust eitt barn og Audrey átti fjögur börn, sem fylgdu henni. Þau bjuggu við Víðihvamm í Hafnarfirði, en að síðustu bjó Ragnar í Austurbrún í Reykjavík.
Ragnar lést 2002.
I. Sambúðarkona Ragnars, skildu, er Audrey Kathleen Jones Magnússon, f. 8. september 1930.
Barn þeirra:
1. Ingunn Lovísa Ragnarsdóttir, f. 19. febrúar 1971 í Hafnarfirði. Sambúðarmaður hennar Einar Örn Daníelsson.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Manntöl.
- Morgunblaðið 20. nóvember 2002. Minning.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.