Rut Óskarsdóttir (Stakkholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigurbjörg Rut Óskarsdóttir frá Stakkholti, húsfreyja, læknaritari fæddist þar 22. september 1946.
Foreldrar hennar voru Óskar P. Einarsson verkamaður, skipasmiður, lögregluþjónn frá Búðarhóli í A-Landeyjum, f. 11. janúar 1908, d. 13. maí 1978 og kona hans Guðný Svava Gísladóttir húsfreyja frá Arnarhóli, f. 11. janúar 1911, d. 25. mars 2001.

Börn Guðnýjar Svövu og Óskars:
1. Guðný Óskarsdóttir, f. 1. júní 1935. Maður hennar Páll Sæmundsson.
2. Valgerður Erla Óskarsdóttir, f. 24. maí 1937, d. 6. nóvember 2015, kona Friðriks á Löndum, látinn.
3. Gísli Óskarsson, f. 19. júní 1939, d. 12. mars 2009. Kona hans Kristín Haraldsdóttir.
4. Rebekka Óskarsdóttir, f. 23. október 1941, d. 26. október 1971. Maður hennar Ari Birgir Pálsson, látinn.
5. Sigurbjörg Rut Óskarsdóttir, f. 22. september 1946. Maður hennar Atli Einarsson.
6. Einar Óskarsson, f. 7. janúar 1952, d. 24. júlí 2018. Fyrrum kona hans Guðrún Ingimundardóttir. Barnsmóðir Einars Eygló Ólafsdóttir. Fyrrum kona Einars Anna Peggy Friðriksdóttir. Sambúðarkona Einars Sigrún Ólafsdóttir, látin. Sambúðarkona hans Guðbjörg Elín Hreiðarsdóttir.

Rut var með foreldrum sínum í æsku.
Hún varð 4. bekkjar gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum 1963.
Rut var læknaritari um skeið.
Þau Atli giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu við Sóleyjargötu 3 við Gosið 1973, búa við Bessahraun 22.

I. Maður Sigurbjargar Rutar er Atli Einarsson sjómaður, stýrimaður, húsasmiður, f. 21. janúar 1943.
Börn þeirra:
1. Einar Vilberg Atlason, f. 31. mars 1970, d. 28. október 1990.
2. Ósk Rebekka Atladóttir, f. 25. febrúar 1972.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Prestþjónustubækur.
  • Skipstjóra- og stýrimannatal. Guðmundur Jakobsson. Ægisútgáfan 1979.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.