Margrét Guðmundsdóttir (Bjarkarlundi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Guðrún Margrét Guðmundsdóttir.

Guðrún Margrét Guðmundsdóttir húsfreyja í Bjarkarlundi fæddist 20. júní 1909 í Reykjavík og lést 7. júlí 2000 í Hafnarfirði.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Kristjánsson verkamaður, ,,gúmmílímari“ frá Grísatungu í Mýrasýslu, síðar í Bjarkarlundi, (Vallargötu 6), f 14. mars 1884, d. 22. febrúar 1964, og kona hans Guðrún Jónsdóttir húsfreyja frá Hjarðarbóli á Snæfellsnesi, f. 6. febrúar 1882, d. 17. september 1959.

Börn Guðrúnar og Guðmundar voru:
1. Kristinn verkamaður á Skagaströnd, f. 11. ágúst 1903, d. 1. desember 1986. Kona hans var Þórunn Sigurðardóttir.
2. Guðlaugur Sigurbjörn, f. 25. júní 1907, d. 22. júlí 1908.
3. Guðrún Margrét húsfreyja á Reynifelli og í Bjarkarlundi, f. 20. júní 1909, d. 7. júlí 2000, gift Guðsteini Þorbjörnssyni sjómanni.
4. Sigurbjörg Guðmundsdóttir, f. 9. ágúst 1910, d. 20. febrúar 1911.
5. Kristján verkamaður, síðar bóndi á Skagaströnd, f. 2. desember 1911, d. 16. apríl 1979. Hann var fyrr kvæntur Guðnýju Ingibjörgu Einarsdóttur frá Siglufirði, síðar Fjólu Gísladóttur.
6. Sigrún, f. 23. janúar 1915, d. 18. ágúst 2008. Hún var fyrr gift Guðmundi Guðmundssyni málarameistara, síðar gift Þórði Ólafssyni sjómanni í Eyjum og Grindavík.
7. Jónína Lilja húsfreyja, f. 21. maí 1920, d. 14. febrúar 2004. Sambýlismaður hennar var Axel Sveinsson verkamaður, sjómaður, en síðari maður hennar var Einar Jónsson sjómaður á Kalmanstjörn.

Margrét var með foreldrum sínum í æsku, með þeim í Reykjavík og síðan í Borgarfirði.
Hún var sjúklingur á Vífilsstöðum 1929-1930. Þar var Guðsteinn einnig. Þau fluttust til Eyja 1930 og var Margrét leigjandi hjá Þorbirni og Margréti foreldrum hans á Reynifelli í lok ársins.
Þau Guðsteinn giftu sig 1931, bjuggu á Reynifelli. Öll börn þeirra fæddust þar. Þau eignuðust þar Svanhvíti Kristrós, sem lést 4 ára.
Fjölskyldan bjó á Helgafelli 1949, reistu Bjarkarlund, (Vallargötu 6) á árinu og bjuggu þar síðan, uns þau fluttust til Reykjavíkur 1967.
Þau bjuggu um skeið að Vindheimum í Ölfusi, en fluttust til Hafnarfjarðar.
Margrét var hagyrt, samdi ljóð og þýddi. Ljóð hennar hafa birst í ýmsum blöðum og tímaritum og í ljóðasöfnunum Borgfirðingaljóð, Og þá rigndi blómum og í Íslensk alþýðuskáld.
Auk þess orti hún og þýddi fjölda sálma, sem birst hafa í sálmabókinni Sálmar og lofsöngvar. Árið 1996 gaf hún út ljóðabókina Bergmál, sem er úrval ljóða hennar.
Guðsteinn lést 1995, en Margrét árið 2000 á Sólvangi í Hafnarfirði

Maður Margrétar, (7. febrúar 1931), var Guðsteinn Ingvar Þorbjörnsson vélstjóri, formaður, bifreiðastjóri frá Reynifelli, f. 6. september 1910, d. 14. febrúar 1995.
Börn þeirra:
1. Svanhvít Kristrós Guðsteinsdóttir, f. 22. maí 1931, d. 8. ágúst 1935.
2. Guðbjörn Reynir Guðsteinsson skólastjóri, f. 10. maí 1933.
3. Margrét Sóley Guðsteinsdóttir Hólm hjúkrunarfræðingur, f. 2. október 1934, d. 18. ágúst 2012.
4. Svanur Birgir Guðsteinsson kennari, f. 9. júní 1936.
5. Guðrún Lilja Guðsteinsdóttir sérkennari, f. 25. desember 1937, d. 2. apríl 2010.
6. Hreinn Smári Guðsteinsson vélstjóri, f. 12. desember 1939.
7. Eygló Björk Guðsteinsdóttir talmeinafræðingur, f. 2. október 1944.
8. Erna Kristrós Guðsteinsdóttir húsfreyja, f. 24. október 1948.
Fósturdóttir þeirra:
9. Helga Arnþórsdóttir kennari, f. 12. september 1952.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.