Magnús Kristjánsson (Reykjadal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Kristinn Magnús Kristjánsson frá Reykjadal, verkamaður, sjómaður, matsveinn, heilbrigðisfulltrúi fæddist 7. ágúst 1904 á Bergstöðum og lést 25. nóvember 1962.
Foreldrar hans voru Kristján Þórðarson frá Fíflholtshjáleigu í V-Landeyjum, útgerðarmaður, sjómaður, f. 2. júní 1876, d. 16. janúar 1966, og kona hans Guðný Elíasdóttir frá Klömbru u. Eyjafjöllum, húsfreyja, f. 28. október 1881, d. 18. júní 1962.

Börn Kristjáns og Guðnýjar voru:
1. Guðjón Ingólfur Kristjánsson nuddari, f. 31. október 1902 í Reykjavík, d. 7. desember 1984.
2. Kristinn Magnús Kristjánsson verkamaður, f. 7. ágúst 1904 á Bergstöðum, d. 25. nóvember 1962.
3. María Þuríður Kristjánsdóttir, f. 30. apríl 1908 í Ási, d. 21. desember 1992.
4. Anna Magnúsína Þóra Kristjánsdóttir, f. 27. ágúst 1910 í Ási, d. 5. nóvember 1995.
5. Jóna Lovísa Kristjánsdóttir, f. 25. ágúst 1911 í Ási, d. 20. apríl 1912.
6. Jóhann Ármann Kristjánsson matsveinn, vélstjóri, mælaálestrarmaður, f. 29. desember 1915 í Skipholti, d. 6. desember 2002.
7. Einar Elías Kristjánsson, f. 19. febrúar 1919 í Skipholti, d. 4. janúar 2011.

Magnús var með foreldrum sínum í æsku, á Bergstöðum við fæðingu, í Ási 1908 og enn 1911, í Skipholti við Vestmannabraut 1912 og enn 1922, en í Reykjadal um 1923.
Þau Jónína Ágústa giftu sig 1928, voru á Svalbarði við fæðingu tvíburanna Kristínar og Þórunnar 1930, en komin í Mörk við Hásteinsvegi 13 í lok ársins. Þau bjuggu á Lundi 1934, í Árbæ, Brekastíg 7a 1940 og enn 1949. Þau fluttust til Keflavíkur 1952 og bjuggu þar síðan, lengst á Hringbraut 61.
Magnús lést 1962 og Jónína Ágústa 1992.

I. Kona Magnúsar, (1928), var Jónína Ágústa Þórðardóttir húsfreyja, f. 13. ágúst 1902 á Stokkseyri, d. 2. janúar 1992.
Börn þeirra:
1. Kristín Magnúsdóttir, tvíburi, f. 25. mars 1930 á Svalbarði, d. 24. október 1994.
2. Þórunn Magnúsdóttir, tvíburi, húsfreyja, verkakona í Neskaupstað, f. 25. mars 1930 á Svalbarði, d. 15. febrúar 2013.
3. Margrét Ólafía Magnúsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 8. janúar 1932 í Eyjum, d. 1. mars 2007.
4. Guðni Reykdal Magnússon verkstjóri, umsjónarmaður, f. 28. mars 1935 í Eyjum.
Kjörbarn þeirra, sonur Þórunnar dóttur þeirra, er
5. Magnús Þór Magnússon, f. 15. janúar 1947.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 10. janúar 1992. Minning Jónínu Ágústu Þórðardóttur.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.