Kristján Birgisson (vélstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Kristján Birgisson véstjóri fæddist 20. maí 1952.
Foreldrar hans voru Kári Birgir Sigurðsson sjómaður, vélstjóri, útgerðarmaður, f. 3. desember 1931, d. 30. júní 2021, og kona hans Jóna Sigríður Kristjánsdóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 7. október 1931, d. 11. apríl 2019.

Börn Jónu og Kára Birgis:
1. Ágúst Birgisson lögreglumaður, f. 19. september 1950. Fyrrum kona hans Jóhanna Gísladóttir. Kona hans Sigrún Ólafsdóttir.
2. Kristján Birgisson sjómaður, vélstjóri, f. 20. maí 1952. Kona hans Bjarney María Gústavsdóttir Sigurjónssonar.
3. Aðalheiður Birgisdóttir húsfreyja, bankastarfsmaður, f. 24. febrúar 1959. Maður hennar Angantýr Agnarsson Angantýssonar.

Kristján var með foreldrum sínum.
Hann lærði vélstjórn og vann við hana.
Þau Bjarney María giftu sig, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu við Heiðartún 4.

I. Kona Kristjáns er Bjarney María Gústavsdóttir húsfreyja, f. 7. febrúar 1953.
Börn þeirra:
1. Aðalheiður Kristjánsdóttir, snyrti- og förðunarfræðingur í Kópavogi, f. 11. september 1973.
2. Jóna Dís Kristjánsdóttir, starfsmaður hjá Aðföngum, býr í Rvk, f. 17. maí 1976.
3. María Ýr Kristjánsdóttir, starfsmaður hjá Hótel Vestmannaeyjar, f. 5. janúar 1981.
4. Gústaf Kristjánsson, sjómaður í Eyjum, f. 31. ágúst 1983.
5. Kári Kristján Kristjánsson, handboltakappi, f. 28. október 1984.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.