Jón Finnbogi Bjarnason
Jón Finnbogi Bjarnason trésmiður, lögregluþjónn, veitingamaður fæddist 28. febrúar 1886 í Ármúla á Langadalsströnd í N-Ísafjarðarsýslu og lést 9. júní 1952.
Faðir hans var Bjarni bóndi, hreppstjóri í Ármúla, f. 8. október 1847, d. 22. september 1902, Gíslason bónda, varaþingmanns og dannebrogsmanns í Ármúla, f. 23. júní 1815, d. 11. mars 1898, Bjarnasonar bónda og hreppstjóra á Skjaldfönn, N-Ís. Gíslasonar, og konu Gísla í Ármúla, Elísabetar húsfreyju, f. 8. desember 1828, d. 10. júlí 1894, Markúsdóttur bónda Jónssonar.
Móðir Jóns og kona Bjarna bónda var Jónína Guðrún frá Valdarási í Víðidal, V-Hún., húsfreyja, f. 22. október 1853, d. 14. febrúar 1940, Jónsdóttir bónda á Vesturhópshólum í V-Hún., síðar söðlasmiður á Ísafirði, f. 3. janúar 1825, d. 22. nóvember 1912, Sigurðssonar, og konu Jóns bónda og söðlasmiðs, Ragnhildar Ingibjargar frá Hrafnseyri í Arnarfirði, húsfreyju í Valdarási í Víðidal og á Ísafirði, f. 8. febrúar 1825 í Svalbarðshreppi í N-Þing., d. 22. ágúst 1905, Jónsdóttur prests Benediktssonar.
Jón var með foreldrum sínum í æsku, með þeim í Ármúla 1890 og 1901.
Þau Margrét Pála giftu sig 1910, eignuðust 7 börn, en misstu tvö þeirra. Þau bjuggu í Hvammi í Dölum 1910, síðan í Bolungarvík, en á Ísafirði 1920.
Margrét lést á Ísafirði 1922.
Börnunum var komið í fóstur nema Páli, sem var með föður sínum og lést úr berklum 1927.
Ragnhildur var ættleidd af sr. Ásgeiri Ásgeirssyni í Hvammi í Dölum og Ragnhildi Ingibjörgu Bjarnadóttur föðursystur sinni. Bjarni fór í fóstur að Oddsflöt í Grunnavík til Halldórs E. Jónssonar bónda og hreppstjóra og Salóme Pálsdóttur móðursystur sinnar. Magnús var í fóstri hjá vinafólki í Æðey og Ásgeir var í fóstri á Hanhóli í Bolungarvík.
Jón var lærður trésmiður, gerðist lögregluþjónn á Ísafirði og stundaði það starf. Hann fluttist til Eyja 1924, gerðist veitingamaður í Bíókjallaranum í Nýja-Bíó (nú Þórshamar). Einnig reisti hann hús suður í Kinn og seldi þar veitingar í nokkur ár. Hann leigði í Viðey með Bjarna syni sínum 1927, eignaðist Ármann með Sigríði Ingibergsdóttur 1928, bjó með Árnýju í Viðey 1928 og 1929, í Lyngholti 1930 með þrem börnum þeirra og Bjarna syni sínum, en í Valhöll í september 1930 við skírn Hilmars.
Þau Árný slitu samvistir.
Jón Finnbogi bjó með Guðlaugu Júlíu á Strandbergi 1934, á Bergi 1940. Þau giftu sig 1943, bjuggu á Uppsölum-efri, Faxastíg 7b 1945,
á Rauðafelli, Vestmannabraut 58b 1949.
Jón Finnbogi lést 1952 og Guðlaug Júlía 1976.
I. Kona Jóns, (25. júní 1910), var Margrét María Pálsdóttir frá Eyri í Reykjarfirði, f. 16. september 1884, d. 6. apríl 1922. Foreldrar hennar voru Páll Pálsson frá Þernuvík í Ögurhreppi, bóndi á Bjarnastöðum í Reykjarfirði, í húsmennsku í Gerfidal, en síðast bóndi á Eyri við Ísafjörð, f. 20. september 1845, d. 16. apríl 1894, og kona hans (1876), Helga Sigurðardóttir frá Bjarnastöðum í Reykjarfirði, húsfreyja, f. þar 5. júní 1853, d. 26. febrúar 1938.
Börn þeirra:
1. Páll Jónsson, f. 27. maí 1909, d. á Ísafirði 23. febrúar 1927.
2. Ragnhildur Ingibjörg (Jónsdóttir) Ásgeirsdóttir kennari, f. 16. júlí 1910, d. 22. júlí 1981. Hún var kjörbarn sr. Ásgeirs Ásgeirssonar frá Hvammi og Ragnhildar föðursystur sinnar. Menn hennar, skildu, voru Sigurður Ólason og Ófeigur Ófeigsson.
3. Bjarni Gíslason Jónsson skipstjóri, útgerðarmaður í Garðshorni, f. 28. september 1911 á Ísafirði, d. 2. janúar 1999.
4. Jónína Guðrún Jónsdóttir, f. 10. september 1914, d. 21. maí 1915.
5. Magnús Jónsson kennari, skólastjóri, f. 5. ágúst 1916, d. 6. júní 2012.
6. Ásgeir Jónsson fulltrúi á Skattstofunni í Reykjavík, f. 21. apríl 1919, d. 29. maí 2004. Kona hans var Hulda Guðmundsdóttir.
7. Drengur Jónsson, f. 21. mars 1922, d. 22. mars 1922.
II. Barnsmóðir Jóns var Guðrún Hersilía Jónsdóttir, f. 17. desember 1889, d. 2. febrúar 1957.
Barn þeirra:
8. Elís Jón Jónsson, f. 13. mars 1922 í Hvammi í Hvammssveit, Dal., d. 30. apríl 1925 á Ballará í Dal.
III. Barnsmóðir Jóns var Jónína María Pétursdóttir, síðar húsfreyja í Reykjavík, f. 11. júní 1905, d. 31. mars 1985.
Barn þeirra:
9. Guðmundur Eyberg Helgason bóndi á Kárastöðum á Vatnsnesi, V-Hún., f. 14. nóvember 1924, d. 26. maí 1979. Kona hans var Ingibjörg Margrét Kristjánsdóttir.
IV. Barnsmóðir Jóns var Sigríður Ingibergsdóttir frá Hjálmholti, síðar húsfreyja á Kirkjubóli í Skutulsfirði, V-Ís., f. 31. maí 1911, d. 29. janúar 2002.
Barn þeirra var
10. Ármann Jónsson frá Hjálmholti, sjómaður, verkamaður, f. 27. ágúst 1928, d. 31. október 2013.
V. Sambýliskona Jóns var Árný Friðriksdóttir frá Gröf, húsfreyja, f. 20. mars 1898, d. 8. júlí 1977. Þau slitu samvistir.
Börn þeirra:
11. Þorbjörg Fanný Jónsdóttir, f. 10. október 1928, d. 5. september 1931.
12. Guðrún Kolbrún Jónsdóttir húsfreyja, f. 20. september 1929 í Viðey. Maður hennar var Sigurður Árnason.
13. Hilmar Jónsson, f. 6. ágúst 1930 í Valhöll.
VI. Kona Jóns, (23. janúar 1943), var Guðlaug Júlía Guðlaugsdóttir frá Vallarhúsi í Djúpárhreppi, húsfreyja, matráðskona, f. 15. júlí 1908 í Gvendarkoti þar, d. 3. ágúst 1976. Þau voru barnlaus.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Holtamannabók III – Djúpárhreppur. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjórn: Ragnar Böðvarsson. Rangárþing ytra 2010.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Magnús Bjarnason.
- Prestþjónustubækur.
- Vestfirzkar ættir. Arnardalsætt – Eyrardalsætt. Ari Gíslason og V.B. Valdimarsson. V.B. Valdimarsson 1959-1968.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.