Ingibjörg Jónsdóttir (Gamla-Hrauni)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ingibjörg Jónsdóttir 65 ára og Jón Guðmundsson 75 ára.

Ingibjörg Gíslína Jónsdóttir húsfreyja á Gamla-Hrauni á Eyrarbakka fæddist 1. september 1867 á Miðhúsum í Sandvíkurhreppi í Flóa og lést 2. apríl 1937 í Eyjum.

Faðir Ingibjargar Gíslínu var Jón bóndi á Miðhúsum í Sandvíkurhreppi í Flóa, f. 12. apríl 1834 á Núpum í Ölfusi, d. 19. júní 1872 í Halakoti á Álftanesi, Jónsson yngri bónda á Núpum í Reykjasókn, f. 1801 í Reyjasókn, varð úti í byl 19. febrúar 1865, Þórðarsonar sterka, bónda og hreppstjóra í Bakkárholti í Ölfusi 1801, f. 1757, d. 2. mars 1838, Jónssonar, og fyrri konu Þórðar sterka, Ingveldar húsfreyju, f. 1759, d. 1802, Guðnadóttur.
Móðir Jóns á Miðhúsum og kona Jóns á Núpum var Sigríður yngri húsfreyja, f. 28. maí 1806, d. 25. mars 1868, Gísladóttir bónda og hreppstjóra í Reykjakoti í Ölfusi, f. 1760, d. 27. maí 1840, Guðnasonar bónda í Reykjakoti, f. 1716, d. um 1783, Jónssonar bónda á Breiðabólstað í Ölfusi, f. 1664, á lífi 1735, Eysteinssonar og konu Jóns, Guðrúnar Jónsdóttur húsfreyju, f. 1669, á lífi 1729.
Kona Guðna í Reykjakoti og móðir Gísla í Reykjakoti var Sigríður Helgadóttir húsfreyja, f. 1725, á lífi 1783.
Kona Gísla í Reykjakoti var Guðríður húsfreyja, f. 1765 að Sogni í Ölfusi, d. 6. maí 1837, Jónsdóttir.

Móðir Ingibjargar Gíslínu og kona Jóns á Miðhúsum var Aðalbjörg húsfreyja, f. 25. janúar 1830 í Hagakoti í Garðahreppi, d. 15. október 1917 á Gamla-Hrauni, Eyjólfsdóttir bónda í Hagakoti og á Brekkuflöt á Álftanesi 1845, f. 29. ágúst 1800 í Langholti í Flóa, d. 12. mars 1868, Eyjólfssonar bónda í Útkoti á Kjalarnesi, f. 1766 í Útey í Laugardal, d. 18. október 1854 á Þúfu í Kjós, Jónssonar bónda á Króki í Biskupstungum, síðar á Uppsölum í Flóa, f. 1733, d. 25. janúar 1812 á Torfastöðum í Biskupstungum, Teitssonar (Roða-Teits) bónda á Höfða í Biskupstungum, f. 1695, Loftssonar í Langholti í Flóa 1703, Teitssonar.
Móðir Eyjólfs í Hagakoti var Margrét, síðar húsfreyja í Gjáhúsum í Grindavík, f. 1782, d. 18. september 18. september 1853, Hafliðadóttir í Hróarsholti í Flóa, f. 1748, d. 11. ágúst 1819, Nikulássonar.
Móðir Aðalbjargar og kona Eyjólfs í Hagakoti var Ingibjörg húsfreyja, f. 5. desember 1797 á Þórustöðum í Grímsnesi, d. 22. maí 1866, Sturludóttir bónda á Þórustöðum 1801, f. 19. desember 1750, drukknaði í Brúará 27. ágúst 1823, Jónssonar bónda á Hæli í Flókadal og Skáneyjarkoti í Reykholtsdal, f. 1712, d. 1755, Jónssonar bónda og hreppstjóra á Signýjarstöðum í Hálsasveit, f. 1686, Einarssonar bónda í Litlu-Skógum í Stafholtstungum, f. 1645, Bjarnaonar.
Kona Sturlu Jónssonar á Þórustöðum var Guðrún húsfreyja, f. um 1761 á Kiðabergi í Grímsnesi, d. 3. maí 1846, Gísladóttir í Ásgarði Jónssonar yngri á Bjarnastöðum í Grímsnesi, Jónssonar á Bjarnastöðum og í Útey, Narfasonar í Efstadal, Einarssonar. En móðir Guðrúnar á Þórustöðum var Margrét, f. 1721, d. 10. nóvember 1804, Bjarnadóttir á Kiðabergi, Kolbeinssonar.

Systur Ingibjargar í Eyjum voru Gíslína Jónsdóttir húsfreyja í Ásgarði og Aðalbjörg Jónsdóttir í Miðey.

Jón og Aðalbjörg foreldrar Ingibjargar bjuggu á Miðhúsum í Sandvíkurhreppi 1861-1870, en urðu þá að bregða búi sökum fátæktar. Var Ingibjög þá send í fóstur að Byggðarhorni í Flóa og dvaldi þar í 13 ár.
Föður sinn missti hún er hún var á 5. árinu.
Þegar hún var 15 ára var hún léð að Borg í Hraunshverfi. Þar var hún 16 ára vinnukona, er Jón Guðmundsson réðst vinnumaður þangað, en hann var þá ekkjumaður eftir Vigdísi Jónsdóttur húsfreyju í Stöðlakoti í Hraunshverfi. Jafnframt var Jón formaður í Þorlákshöfn á vetrarvertíðum.
Þau Jón eignuðust Vigdísi árið eftir.
Vorið 1886 komust þau að Framnesi í húsmennsku, voru þar í sex ár og eignuðust þar 4 börn, en einu þeirra, Gunnari Marel urðu þau að koma í fóstur 5 mánaða gömlum. Hann fór að Byggðarhorni og ólst þar upp að öllu leyti.
Þau Jón giftu sig 1888. Hann flutti útveg sinn frá Þorlákshöfn að Stokkseyri 1889.
Þau komust á hluta Gamla-Hraunsjarðarinnar 1892 og bjuggu þar í 9 ár, eignuðust þar 4 börn.
1899 veiktist Jón alvarlega og var frá sjómennsku og heyöflun um langa hríð. Þrjú barnanna voru í sveit, en sex voru heima. Varð Jón að selja vertíðarskip sitt. Þau bjuggu enn í 2 ár, en Ingibjörg réðst í kaupavinnu að Leirubakka á Landi og börnin voru í sveit um sumarið.
Þá gerðist það að eigandi Gamla-Hrauns seldi jörðina og misstu hjónin þá jarðnæðið og urðu að leita aðstoðar sveitarinnar, en börnunum var komið fyrir. Þórður og Aðalbjörg fóru að Selparti í Flóa; Ágúst fór að Gamla-Hrauni og var þar síðan; Dagmar fór fyrst að Oddagörðum, en var síðar tekin í fóstur í Káragerði á Eyrarbakka; Haraldur fór einnig að Oddagörðum, en síðar í Norðurbæ hjá Einarshöfn. Hjónin sluppu með naumindum undan því að vera ráðstafað af sveitarstjórninni.
Jón fór suður og vann þar fyrir meðlagi barnanna eftir getu, en Ingibjörg var ófrísk af 10. barninu og fékk inni hjá vinkonu sinni, Jónínu Þórðardóttur í Sjávargötu í Hraunshverfi og vann fyrir sér eftir getu.
Hún fæddi Guðna um sumarið, kom honum í fóstur að Byggðarhorni, en fékk vinnu á Leirubakka að nýju og tók Guðna síðar með sér þangað. Þar ólst hann síðan upp, en Ingibjörg vann þar 1902-1903, en síðan á ýmsum bæjum um skeið.
Hún eignaðist 11. barnið, Sigurbjörgu, 1903 á Litlu-Háeyri á Eyrarbakka. Hún fór þegar á fyrsta ári í fóstur að Steinsbæ á Eyrarbakka og ólst þar upp að öllu leyti.
Þeim hjónum tókst að lyktum að stofna heimili á Framnesi 1904. Þar voru þau næstu tvö árin og eignuðust á þeim tíma tvö börn, Lúðvík og Ágústu (Ágústínu).

ctr


Gamla-Hraun.


Vorið 1906 fluttust þau að Gamla-Hrauni og bjuggu þar síðan. Þar fæddust þeim fjögur börn, Guðmundur Júníus, Þorsteinn Páll, Jónína Helga og Anna Katrín.
Hjónin gátu nú haft börnin hjá sér lengur eða skemur.
Þórður sonur þeirra tók Ágústu systur sína með sér til Eyja 1910, og hún fór síðan til Gíslíni frænku sinnar í Ásgarði, og á því ári fór Lúðvík í fóstur að Ásgarði.
1933 fór síðasta barnið alfarið að heiman. Ingibjörg var þá 66 ára og Jón 77.
Hjónin dvöldu af og til í Eyjum á efri árum sínum, en oftar og lengur eftir 1930. Þá dvöldu þau í Eyjum á vetrum og voru talin burtflutt frá Gaml-Hrauni til Eyja 1935.
Þau bjuggu í Nýborg, sem var í eigu Guðmundar sonar þeirra á Háeyri.
Ingibjörg veiktist af lungnabólgu síðla vetrar 1937 og lést úr henni. Hún var grafin á Eyrarbakka.
Jón lést 1941.


ctr


Úr samkvæmi, er minnst var 100. fæðingardags Jóns á Gamla-Hrauni.
Sitjandi frá vinstri: Margrét Árnadóttir, Aðalbjörg Jónsdóttir, Jónína Jónsdóttir, Sigríður Einarsdóttir, Ágústa Jónsdóttir, Sigurbjörg Jónsdóttir, Anna Jónsdóttir, Lovísa Þórðardóttir, Guðríður Snorradóttir.
Aftari röð frá vinstri: Guðmundur Júníus Jónsson, Þorsteinn Páll Jónsson, Gunnar Marel Jónsson, Logi Sveinsson, Guðni Jónsson, Skarphéðinn Helgason, Guðmundur Jónsson, Bernharð Helgason, Ólafur Þorleifsson, Lúðvík Jónsson, Haraldur Jónsson.
Ljómyndari Vignir

Maður Ingibjargar Gíslínu, (25. nóvember 1888), var Jón Guðmundsson formaður í Þorlákshöfn og á Stokkseyri.
Börn þeirra voru:
1. Vigdís Jónsdóttir húsfreyja í Selkirk í Kanada, f. 27. júní 1885.
2. Þórður Jónsson formaður og skipasmiður á Bergi, f. 10. júní 1887, d. 1. febrúar 1939.
3. Guðmundur Jónsson formaður, skipasmiður á Háeyri, f. 14. október 1888, d. 27. nóvember 1976.
4. Guðrún Aðalbjörg Jónsdóttir húsfreyja á Tjörn á Stokkseyri, f. 22. október 1889, d. 6. október 1976.
5. Gunnar Marel Jónsson formaður og skipasmiður, f. 6. janúar 1891, d. 7. maí 1979.
6. Magnús Valdimar Jónsson skipasmiður á Bergi, f. 27. október 1892, d. 13. október 1920.
7. Ágúst Jónsson, f. 9. ágúst 1894, d. 4. desember 1905.
8. Ingiríður Dagmar Jónsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 12. ágúst 1895, d. 7. maí 1986.
9. Haraldur Jónsson sjómaður á Bergi, f. 18. nóvember 1899, d. 20. febrúar 1962.
10. Guðni Jónsson prófessor, f. 22. júlí 1901, d. 4. mars 1974. Hann var kennari við unglingaskóla í Eyjum 1926-1927.
11. Sigurbjörg Jónsdóttir húsfreyja á Akureyri, f. 3. ágúst 1903, d. 1. september 1995.
12. Lúðvík Jónsson bakarameistari, síðar á Selfossi, f. 14. október 1904, d. 21. mars 1983. Hann ólst upp hjá Árna Filippussyni og Gíslínu Jónsdóttur í Ásgarði, en Gíslína var móðursystir hans.
13. Ágústína Jónsdóttir húsfreyja í Eyjum og Hafnarfirði, f. 11. mars 1906, d. 1. nóvember 1989. Hún ólst upp um skeið hjá Þórði á Bergi, en lengst í Ásgarði hjá Gíslínu frænku sinni og Árna.
14. Guðmundur Júníus Jónsson sjómaður í Eyjum, síðar skipstjóri á Akranesi, f. 29. júní 1908, d. 22. ágúst 1972.
15. Þorsteinn Páll Jónsson símavarðstjóri í Reykjavík, f. 15. ágúst 1909, d. 25. júlí 1982.
16. Jónína Helga Jónsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 29. desember 1910, d. 31. janúar 1992.
17. Anna Katrín Jónsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 27. apríl 1912, d. 23. maí 1999.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Bergsætt II. útgáfa. Guðni Jónsson 1966.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Saga Hraunhverfis á Eyrarbakka. Guðni Jónsson. Prentsmiðjan Hólar H.f. 1958.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.