Guðmundur Júníus Jónsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Guðmundur Júníus Jónsson.

Guðmundur Júníus Jónsson frá Gamla-Hrauni á Eyrarbakka, sjómaður í Eyjum, vélstjóri og skipstjóri á Akranesi fæddist 29. júní 1908 og lést. 22. ágúst 1972.
Faðir Guðmundar Júníusar var Jón formaður að Gamla-Hrauni á Eyrarbakka, f. 17. september 1856, d. 8. september 1941, Guðmundsson bónda og formanns á Gamla-Hrauni 1860, f. 10. júlí 1830, d. 21. febrúar 1914, Þorkelssonar bónda í Mundakoti, f. 1802, d. 29. apríl 1880, Einarssonar „ríka“ Hannessonar, og konu Þorkels í Mundakoti, Guðrúnar húsfreyju, f. 1804, d. 8. júní 1863, Magnúsdóttur í Mundakoti Arasonar.
Móðir Jóns á Gamla-Hrauni og kona Guðmundar Þorkelssonar var Þóra húsfreyja, f. 24. október 1830, d. 4. september 1918, Símonardóttir bónda, skipasmiðs og formanns í Brautartungu í Stokkseyrarhreppi, en lengst á Gamla-Hrauni, f. 1801 í Simbakoti, d. 21. nóvember 1881, Þorkelssonar bónda, skipasmiðs og hreppstjóra á Gamla-Hrauni, Jónssonar og konu Þorkels, Valgerðar húsfreyju, f. 1765, d. 7. febrúar 1859, Aradóttur Jónssonar.
Þóra var eftirsótt til hjúskapar. Tyrfingur Snorrason formaður á Stokkseyri var einn þeirra, sem á sóttu, en missti af til Guðmundar Þorkelssonar. Tyrfingur kvæntist ekki. Hann kvað:

Eg á fljóðum fæ ei ást,
finn því hljóður trega,
því sú góða Þóra brást;
það fór slóðalega.

Móðir Þóru og kona Símonar var Sesselja húsfreyja og móðir amk. 15 barna, f. 1801, d. 1859, Jónsdóttir bónda á Ásgautsstöðum, Óseyrarnesi (Nesi), síðast á Selfossi, f. 1767, d. 8. febrúar 1856, Símonarsonar og konu Jóns Símonarsonar, Guðrúnar húsfreyju frá Kakkarhjáleigu (síðar nefnt Hoftún), f. 1769, d. 15. apríl 1837, Snorradóttur, Knútssonar.

Móðir Guðmundar Júníusar og kona Jóns á Gamla-Hrauni var Ingibjörg Gíslína húsfreyja á Gamla-Hrauni, f. 1. september 1867, d. 2. apríl 1937, Jónsdóttir bónda á Miðhúsum í Sandvíkurhreppi, f. 12. apríl 1834, d. 19. júní 1872, Jónssonar bónda á Vötnum í Ölfusi, f. 1801, d. 19. febrúar 1865, Þórðarsonar, Jónssonar, og konu Þórðar, Ingveldar Guðnadóttur.
Móðir Jóns á Miðhúsum og kona Jóns á Vötnum var Sigríður húsfreyja, f. 28. maí 1806, d. 25. mars 1868, Gísladóttir bónda og hreppstjóra í Reykjakoti í Ölfusi, f. 1760, d. 27. maí 1840, Guðnasonar, og konu Gísla, Guðríðar húsfreyju, f. 1765 að Sogni í Ölfusi, d. 6. maí 1837, Jónsdóttur.
Móðir Ingibjargar Gíslínu og kona Jóns á Miðhúsum var Aðalbjörg húsfreyja, f. 31. janúar 1830 á Álftanesi, d. 15. október 1917, Eyjólfsdóttir bónda á Brekkuflöt á Álftanesi 1845, f. 29. ágúst 1800, d. 12. mars 1868, Eyjólfssonar, Jónssonar.
Móðir Aðalbjargar og kona Eyjólfs á Brekkuflöt var Ingibjörg húsfreyja, f. 5. desember 1797 á Þórustöðum í Grímsnesi, d. 22. maí 1866, Sturludóttir bónda á Þórustöðum, skírður 19. desember 1750, d. 27. ágúst 1823, Jónssonar.

Börn Jóns Guðmundssonar á Gamla-Hrauni og Ingibjargar Gíslínu Jónsdóttur húsfreyju voru:
1. Vigdís Jónsdóttir húsfreyja í Selkirk í Kanada, f. 27. júní 1885.
2. Þórður Jónsson formaður og skipasmiður á Bergi, f. 10. júní 1887, d. 1. febrúar 1939.
3. Guðmundur Jónsson formaður, skipasmiður á Háeyri, f. 14. október 1888, d. 27. nóvember 1976.
4. Guðrún Aðalbjörg Jónsdóttir húsfreyja á Tjörn á Stokkseyri, f. 22. október 1889, d. 6. október 1976.
5. Gunnar Marel Jónsson formaður og skipasmiður, f. 6. janúar 1891, d. 7. maí 1979.
6. Magnús Valdimar Jónsson skipasmiður á Bergi, f. 27. október 1892, d. 13. október 1920.
7. Ágúst Jónsson, f. 9. ágúst 1894, d. 4. desember 1905.
8. Ingiríður Dagmar Jónsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 12. ágúst 1895, d. 7. maí 1986.
9. Haraldur Jónsson sjómaður á Bergi, f. 18. nóvember 1899, d. 20. febrúar 1962.
10. Guðni Jónsson prófessor, f. 22. júlí 1901, d. 4. mars 1974. Hann var kennari við unglingaskóla í Eyjum 1926-1927.
11. Sigurbjörg Jónsdóttir húsfreyja á Akureyri, f. 3. ágúst 1903, d. 1. september 1995.
12. Lúðvík Jónsson bakarameistari, síðar á Selfossi, f. 14. október 1904, d. 21. mars 1983. Hann ólst upp hjá Árna Filippussyni og Gíslínu Jónsdóttur í Ásgarði, en Gíslína var móðursystir hans.
13. Ágústína Jónsdóttir húsfreyja í Hafnarfirði, f. 11. mars 1906, d. 1. nóvember 1989. Hún ólst upp um skeið hjá Þórði á Bergi, en lengst í Ásgarði hjá Árna og Gíslínu.
14. Guðmundur Júníus Jónsson sjómaður í Eyjum, síðar skipstjóri á Akranesi, f. 29. júní 1908, d. 22. ágúst 1972.
15. Þorsteinn Páll Jónsson símavarðstjóri í Reykjavík, f. 15. ágúst 1909, d. 25. júlí 1982.
16. Jónína Helga Jónsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 29. desember 1910, d. 31. janúar 1992.
17. Anna Katrín Jónsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 27. apríl 1912, d. 23. maí 1999.

Móðursystur systkinanna voru:
1. Gíslína Jónsdóttir húsfreyja í Ásgarði, f. 18. apríl 1871, d. 18. júlí 1953.
2. Aðalbjörg Jónsdóttir í Miðey, f. 14. september 1863, d. 2. júlí 1947.

Guðmundur Júníus var með foreldrum sínum á Gamla-Hrauni 1910, var tökubarn á Strandarhöfði í V-Landeyjum 1920.
Hann lauk hinu minna mótorvélstjóraprófi á Stokkseyri 1929.
Guðmundur hóf sjómennsku hjá bræðrum sínum í Eyjum, var á síldveiðum á mb. Soffíu RE, 1932, var vélstjóri á Hafþóri AK, 1935 og síðar á Agli Skallagrímssyni AK, var skipstjóri á mb. Sjöfn MB 66 1945-1946, á Svani AK 1947, á Sigrúnu Ak 71 1947-1948.
Hann var 1. vélstjóri 1949 og skipstjóri á ný 1950-1959, 1960-1961 var hann 2. vélstjóri á Höfrungi AK 91 og 1960-1961 og 1960-1963 ýmist 1. eða 2. vélstjóri á Skírni AK 12. Árin 1963-1968 var hann afleysingavélstjóri á Jörundi II. RE 299, en starfaði eftir það hjá Akranesbæ til dauðadags.
Guðmundur var heiðraður af Sjómannadagsráði Akraness 1970.
Hann gerði Salbjörgu barn 1926, Hinrik, sem varð undir bíl og lést 1933.
Hann bjó með Hólmfríði og þau eignuðust 6 börn.
Hann gerði Jóhönnu barn 1943.
Guðmundur Júníus var á Bergi 1930.
Hann lést 1972.

I. Barnsmóðir hans var Salbjörg Bjarnadóttir vinnukona, f. 14. maí 1899 í Grundarfirði.
Barn þeirra var
1. Hinrik Guðmundsson, f. 10. janúar 1927 á Vesturhúsum . Hann varð fyrir bíl í Reykjavík 1933 og lést 26. mars.

II. Bústýra Guðmundar Júníusar á Akranesi var Kristín Hólmfríður Ásgrímsdóttir, f. 8. ágúst 1906, d. 18. mars 1984. Hún var dóttir Ásgríms Stefánssonar bónda á Efra-Ási í Hjaltadal, f. 11. ágúst 1873 á Stóru-Brekku í Fljótum, d. 28. apríl 1926 og konu hans Sigmundu Skúladóttur húsfreyju, f. 12. september 1880 á Ysta-Mói í Fljótum, d. 18. janúar 1954.
Börn þeirra:
2. Franz Sævar Guðmundsson sjómaður, fiskverkamaður á Akranesi, f. 2. janúar 1932 á Siglufirði, d. 3. mars 2022. Kona hans Gréta Sigrún Gunnarsdóttir.
3. Ingibjörg Gíslína Guðmundsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, útibússtjóri hjá Kaupfélagi Árnesinga í Þorlákshöfn og víðar, f. 4. september 1933 á Siglufirði, d. 27. október 2017. Fyrri maður hennar Davíð Friðriksson. Sambúðarmaður hennar Árni Brynjólfsson, látinn. Sambúðarmaður Garðar Karlsson.
4. Sigmunda Kolbrún Guðmundsdóttir húsfreyja, fiskverkakona á Akranesi, f. 11. október 1935 á Akranesi, d. 18. janúar 2004 . Maður hennar Guðmundur Bernharð Sveinsson, látinn.
5. Ásgrímur Þór Guðmundsson sjómaður, verkamaður í Þorlákshöfn, f. 11. ágúst 1940 á Akranesi. Kona hans Guðmunda Ingibjörg Guðmundsdóttir, látin.
6. Barði Erling Guðmundsson sjómaður á Akranesi, f. þar 28. nóvember 1944, d. 17. mars 1993. Fyrrum kona Vigdís Jóhannsdóttir. Kona hans Eirný Súsanna Valsdóttir.
7. Jónína Lilja Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur á Akranesi, f. 26. september 1946 á Akranesi. Maður hennar Björgólfur Einarsson.

III. Barnsmóðir Guðmundar var Jóhanna Gunnarsdóttir verkakona frá Holti á Síðu, f. 25. apríl 1901 í Hólmi í Landbroti, V.-Skaft., d. 22. desember 1983.
Barn þeirra:
8. Guðmundur Agnar Guðmundsson bifreiðastjóri, f. 27. febrúar 1943 í Reykjavík, d. 10. júní 2004.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Bergsætt II. útgáfa. Guðni Jónsson 1966.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið. Minningargreinar.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vélstjóra- og vélfræðingatal. Ritstjórar: Þorsteinn Jónsson og Franz Gíslason. Þjóðsaga 1996 og 1997.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.