Ingibjörg Bryngeirsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ingibjörg Bryngeirsdóttir.

Ingibjörg Bryngeirsdóttir frá Eystri Búastöðum, húsfreyja fæddist 6. október 1925 á Þingeyri við Skólaveg 37 og lést 1. júní 2002 á Sjúkrahúsinu.
Foreldrar hennar voru Bryngeir Torfason sjómaður, skipstjóri á Búastöðum, f. 26. september 1895, d. 9. maí 1939, og kona hans Lovísa Gísladóttir húsfreyja á Búastöðum, f. 18. júní 1895, d. 30. mars 1979.

Börn Lovísu og Bryngeirs:
1. Jóhann Þórir Bryngeirsson, f. 6. september 1924, d. 8. apríl 1932.
2. Ingibjörg Bryngeirsdóttir, f. 6. október 1925, d. 1. júní 2002.
3. Torfi Nikulás Bryngeirsson, f. 11. nóvember 1926, d. 16. júlí 1995.
4. Gísli Bryngeirsson, f. 13. maí 1928, d. 10. júní 2014.
5. Bryngerður Bryngeirsdóttir, f. 3. júní 1929, d. 2. nóvember 2019.
6. Jón Bryngeirsson, f. 9. júlí 1930, d. 7. ágúst 2000.
7. Drengur, f. 11. apríl 1934, d. 17. maí 1934.

Ingibjörg var með foreldrum sínum í æsku, en faðir hennar lést, er hún var á fjórtánda árinu. Hún var með móður sinni.
Hún vann verkakvennastörf.
Þau Sigfús eignuðust tvö börn. Þau skildu.
Þau Alfreð giftu sig 1956, eignuðust fjögur börn og fóstruðu son Jóhanns Þóris. Auk þess átti Ingibjörg tvö börn frá fyrra sambandi. Þau bjuggu í Gerði 1 til Goss 1973. Þá fluttu þau til Grindavíkur, en aftur til Eyja 2001 og bjuggu á Strembugötu 4.

Ingibjörg lést 2002 og Alfreð 2022.

I. Sambúðarmaður Ingibjargar, (skildu), var Sigfús Ingimundarson húsasmíða- og skipasmíðameistari, f. 8. júlí 1922, d. 22. desember 2007.
Börn þeirra:
1. Bryngeir Sigfússon, f. 26. júlí 1945. Kona hans Ásta Margrét Kristinsdóttir.
2. Lovísa Guðrún Sigfúsdóttir, f. 5. september 1946, d. 16. janúar 1980. Maður hennar Þröstur Bjarnason.

Maður Ingibjargar, (26. ágúst 1956), var Alfreð Elías Sveinbjörnsson frá Á í Unadal í Skagafirði, pípulagningameistari f. 26. apríl 1924, d. 19. mars 2022.
Börn þeirra:
1. Jóhann Þórir Alfreðsson, f. 22. september 1957. Kona hans Ingibjörg Áslaugsdóttir.
2. Sveinbjörn Símon Alfreðsson, f. 7. nóvember 1960. Kona hans Gunnhildur Björgvinsdóttir.
3. Sigurður Björn Alfreðsson, f. 25. ágúst 1962. Kona hans Margrét Elísabet Kristjánsdóttir.
4. Jóhanna Alfreðsdóttir, f. 29. október 1965. Maður hennar Ólafur Týr Guðjónsson.
Fóstursonur Ingibjargar og Alfreðs, sonur Jóhanns Þóris og Sigríðar Bragadóttur
5. Alfreð Elías Jóhannsson, f. 12. ágúst 1976. Kona hans Berglind Friðriksdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.