Sveinbjörn Símon Alfreðsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sveinbjörn Símon Alfreðsson, sér um lifrarbræðsluna hjá Haustaki á Reykjanesi, fæddist 7. nóvember 1960.
Foreldrar hans Alfreð Elías Sveinbjörnsson, pípulagningameistari, f. 26. apríl 1924, d. 19. mars 2022, og kona hans Ingibjörg Bryngeirsdóttir, húsfreyja, f. 6. október 1925, d. 1. júní 2002.

Börn Ingibjargar og Alfreðs:
1. Jóhann Þórir Alfreðsson, f. 22. september 1957. Kona hans Ingibjörg Áslaugsdóttir.
2. Sveinbjörn Símon Alfreðsson, f. 7. nóvember 1960. Kona hans Gunnhildur Björgvinsdóttir.
3. Sigurður Björn Alfreðsson, f. 25. ágúst 1962. Kona hans Margrét Elísabet Kristjánsdóttir.
4. Jóhanna Alfreðsdóttir, f. 29. október 1965. Maður hennar Ólafur Týr Guðjónsson.
Fóstursonur Ingibjargar og Alfreðs, sonur Jóhanns Þóris og Sigríðar Bragadóttur
5. Alfreð Elías Jóhannsson, f. 12. ágúst 1976. Kona hans Berglind Friðriksdóttir.
Börn Ingibjargar frá fyrra sambandi:
6. Bryngeir Sigfússon, f. 26. júlí 1945. Kona hans Ásta Margrét Kristinsdóttir.
7. Lovísa Guðrún Sigfúsdóttir, f. 5. september 1946, d. 16. janúar 1980. Maður hennar Þröstur Bjarnason.

Þau Gunnhildur giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Grindavík, er gosin hófust á Reykjanesi, búa nú í Innri-Njarðvík. Símon var 13 ára, þegar Vestmannaeyjagosið hófst 1973.

I. Kona Símonar er Gunnhildur Bjögvinsdóttir frá Grindavík, húsfreyja, vinnur í mötuneyti Varar í Grindavík, f. 4. febrúar 1961. Foreldrar hennar Björgvin Ólafur Gunnarsson, f. 9. apríl 1936, d. 22. júní 2019, og Inga Bjarney Ólafsdóttir, f. 16. júlí 1933, d. 16. september 2013.
Börn þeirra:
1. Inga Björg Símonardóttir, f. 17. ágúst 1980.
2. Sara Símonardóttir, f. 2. september 1983.
3. Emil Davíð Símonarson, f. 2. júní 1988.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.