Guðfinna Bjarnadóttir (Kirkjuhól)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Guðfinna Bjarnadóttir.

Guðfinna Bjarnadóttir frá Neskaupstað, húsfreyja fæddist 23. desember 1922 á Kirkjuhól og lést 21. febrúar 1997.
Foreldrar hennar voru Guðrún Halldórsdóttir frá Eyrarbakka, síðar húsfreyja í Neskaupstað, f. 7. júní 1891, d. 21. janúar 1979, og Bjarni Vilhelmsson frá Bjarnaborg í Neskaupstað, sjómaður, f. 12. apríl 1882, d. 1. október 1942.

I. Barnsfaðir Guðrúnar var Árni Jónsson Strandberg bakari á Lágafelli, síðar í Reykjavík, f. 31. maí 1878, d. 12. júní 1968.
Barn þeirra:
1. Guðfinna Ásta Árnadóttir Strandberg, f. 23. október 1911 í Breiðholti, d. 8. júlí 1998.
II. Barn Guðrúnar Halldórsdóttur og Ólafs Tómassonar:
2. Baldvin Ólafsson sjómaður, útgerðarmaður, verkamaður í Keflavík, f. 13. júní 1915 í Lambhaga, d. 8. maí 1995. Kona hans Guðný Nanna Stefánsdóttir.
III. Barn Bjarna Vilhelmssonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur:
3. Indíana Katrín Bjarnadóttir, f. 15. ágúst 1904 á Norðfirði, d. 10. maí 1989.
IV. Barn Bjarna og Guðnýjar Sólveigar Gísladóttur:
4. Gísli Bjarnason í Neskaupstað, f. 14. september 1917, d. 23. febrúar 1993.
V. Barn Bjarna og Amalíu Gísladóttur:
5. Unnur Fjóla Bjarnadóttir, f. 2. janúar 1920, d. 15. febrúar 2010.
VI. Börn Bjarna Vilhelmssonar og Jakobínu Guðbrandsdóttur:
6. Hans Einarsson Bjarnason, f. 3. maí 1912, d. 3. október 1912.
7. Fanney Bjarnadóttir húsfreyja, f. 24. desember 1913 í Birtingarholti, d. 25. október 2008. Maður hennar Arelíus Sveinsson.
VII. Börn Guðrúnar Halldórsdóttur og Bjarna Vilhelmssonar:
8. Hulda Bjarnadóttir húsfreyja, matráðskona í Reykjavík, f. 5. október 1918 á Norðfirði, d. 17. janúar 2014. Fyrri maður hennar var Valdimar S. Runólfsson. Síðari maður hennar Finnbogi Ólafsson.
9. Stefán Bjarnason sjómaður í Neskaupstað, f. 10. júlí 1920 í Birtingarholti, d. 13. apríl 1945. Kona hans Elísabet Guðnadóttir.
10. Vilhelmína Sigríður Bjarnadóttir húsfreyja á Höfn í Hornafirði, f. 6. júlí 1921 á Hrafnabjörgum, d. 20. desember 2014. Maður hennar Björn Þórarinn Ásmundsson.
11. Guðfinna Bjarnadóttir húsfreyja, f. 23. desember 1922 á Kirkjuhól, d. 12. febrúar 1997. Maður hennar Jón Garðar Sigjónsson
12. Fjóla Bjarnadóttir húsfreyja í Keflavík, f. 26. mars 1924, d. 26. mars 2009. Maður hennar Haraldur Hermannsson.
13. Bjarni Bjarnason sjómaður í Hafnarfirði, f. 17. febrúar 1925 í Neskaupstað, d. 15. júní 2012. Kona hans Auður Sigurðardóttir.
14. Þuríður Bjarnadóttir, f. 3. mars 1926 í Neskaupstað, d. 26. febrúar 2015.
15. Lilja Bjarnadóttir, f. 20. apríl 1927, d. 24. júní 1928.
16. Lilja Bjarnadóttir, f. 24. ágúst 1928.
17. Ingvar Bjarnason sjómaður, verkamaður í Hafnarfirði, f. 8. september 1929, d. 10. apríl 2009. Fyrrum kona hans Aðalbjörg Björnsdóttir.
18. Olga Steinunn Bjarnadóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 26. október 1930, d. 16. október 2014. Maður hennar Stefán Runólfsson.
19. Guðrún Vibeka Bjarnadóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 4. janúar 1932, d. 31. október 2019. Maður hennar Guðbjartur Þorleifsson.
20. Kolbeinn Bjarnason, f. 18. desember 1933.
21. Halldór Bjarnason, f. 2. mars 1935, d. 28. júní 2012.
22. Þórður Bjarnason smiður, síðast í Kópavogi, f. 12. mars 1937, d. 18. júní 2018. Kona hans Arndís Ágústsdóttir.

Guðfinna var með foreldrum sínum í æsku, flutti með þeim til Neskaupstaðar 1923.
Þau Garðar giftu sig 1943, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu á Höfn í Hornafirði.
Guðfinna bjó síðast í Hraunbæ 114 í Reykjavík og lést 1997.
Garðar dvaldi síðast á Hrafnistu í Hafnarfirði. Hann lést 2006.

Maður Guðfinnu, (30. október 1943 í Bjarnanessókn), var Jón Garðar Sigjónsson vélstjóri, útgerðarmaður, hafnsögumaður f. 18. október 1916 á Lögbergi, d. 15. febrúar 2006.
Börn þeirra:
1. Bjarni Friðrik Garðarsson sjómaður, f. 22. nóvember 1944, kvæntur Þorgerði Steinþórsdóttur.
2. Páll Örvar Garðarsson bifreiðastjóri, f. 18. desember 1947. Kona hans var Anna Agnarsdóttir.
3. Stefán Rúnar Garðarsson starfsmaður ÍS, f. 20. júní 1954. Hann var kvæntur Öddu Sigríði Arnþórsdóttur.
4. Steinar Garðarsson rekstrarfræðingur, f. 8. janúar 1966, kvæntur Ólafíu Ingibjörgu Þorvaldsdóttur.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.