Vilhelmína Sigríður Bjarnadóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Vilhelmína Sigríður Bjarnadóttir.

Vilhelmína Sigríður Bjarnadóttir frá Hrafnabjörgum, húsfreyja á Höfn í Hornafirði fæddist 6. júlí 1921 á Hrafnabjörgum og lést 20. desember 2014.
Foreldrar hennar voru Guðrún Halldórsdóttir frá Eyrarbakka, síðar húsfreyja í Neskaupstað, f. 7. júní 1891, d. 21. janúar 1979, og Bjarni Vilhelmsson frá Bjarnaborg í Neskaupstað, sjómaður, f. 12. apríl 1882, d. 1. október 1942.

I. Barn Guðrúnar Halldórsdóttur og Árna Jónssonar Strandberg bakara á Lágafelli, síðar í Reykjavík, f. 31. maí 1878, d. 12. júní 1968.
1. Guðfinna Ásta Árnadóttir Strandberg, f. 23. október 1911 í Breiðholti, d. 8. júlí 1998.
II. Barn Guðrúnar og Ólafs Tómassonar:
2. Baldvin Ólafsson sjómaður, útgerðarmaður, verkamaður í Keflavík, f. 13. júní 1915 í Lambhaga, d. 8. maí 1995. Kona hans Guðný Nanna Stefánsdóttir.
III. Barn Bjarna Vilhelmssonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur:
3. Indíana Katrín Bjarnadóttir, f. 15. ágúst 1904 á Norðfirði, d. 10. maí 1989.
IV. Barn Bjarna og Guðnýjar Sólveigar Gísladóttur:
4. Gísli Bjarnason í Neskaupstað, f. 14. september 1917, d. 23. febrúar 1993.
V. Barn Bjarna og Amalíu Gísladóttur:
5. Unnur Fjóla Bjarnadóttir, f. 2. janúar 1920, d. 15. febrúar 2010.
VI. Börn Bjarna Vilhelmssonar og Jakobínu Guðbrandsdóttur:
6. Hans Einarsson Bjarnason, f. 3. maí 1912, d. 3. október 1912.
7. Fanney Bjarnadóttir húsfreyja, f. 24. desember 1913 í Birtingarholti, d. 25. október 2008. Maður hennar Arelíus Sveinsson.
VII. Börn Guðrúnar Halldórsdóttur og Bjarna Vilhelmssonar:
8. Hulda Bjarnadóttir húsfreyja, matráðskona í Reykjavík, f. 5. október 1918 á Norðfirði, d. 17. janúar 2014. Fyrri maður hennar var Valdimar S. Runólfsson. Síðari maður hennar Finnbogi Ólafsson.
9. Stefán Bjarnason sjómaður í Neskaupstað, f. 10. júlí 1920 í Birtingarholti, d. 13. apríl 1945. Kona hans Elísabet Guðnadóttir.
10. Vilhelmína Sigríður Bjarnadóttir húsfreyja á Höfn í Hornafirði, f. 6. júlí 1921 á Hrafnabjörgum, d. 20. desember 2014. Maður hennar Björn Þórarinn Ásmundsson.
11. Guðfinna Bjarnadóttir húsfreyja, f. 23. desember 1922 á Kirkjuhól, d. 12. febrúar 1997. Maður hennar Jón Garðar Sigjónsson
12. Fjóla Bjarnadóttir húsfreyja í Keflavík, f. 26. mars 1924, d. 26. mars 2009. Maður hennar Haraldur Hermannsson.
13. Bjarni Bjarnason sjómaður í Hafnarfirði, f. 17. febrúar 1925 í Neskaupstað, d. 15. júní 2012. Kona hans Auður Sigurðardóttir.
14. Þuríður Bjarnadóttir, f. 3. mars 1926 í Neskaupstað, d. 26. febrúar 2015.
15. Lilja Bjarnadóttir, f. 20. apríl 1927, d. 24. júní 1928.
16. Lilja Bjarnadóttir, f. 24. ágúst 1928.
17. Ingvar Bjarnason sjómaður, verkamaður í Hafnarfirði, f. 8. september 1929, d. 10. apríl 2009. Fyrrum kona hans Aðalbjörg Björnsdóttir.
18. Olga Steinunn Bjarnadóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 26. október 1930, d. 16. október 2014. Maður hennar Stefán Runólfsson.
19. Guðrún Vibeka Bjarnadóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 4. janúar 1932, d. 31. október 2019. Maður hennar Guðbjartur Þorleifsson.
20. Kolbeinn Bjarnason, f. 18. desember 1933.
21. Halldór Bjarnason, f. 2. mars 1935, d. 28. júní 2012.
22. Þórður Bjarnason smiður, síðast í Kópavogi, f. 12. mars 1937, d. 18. júní 2018. Kona hans Arndís Ágústsdóttir.

Vilhelmín Sigríður var með foreldrum sínum í Eyjum og flutti með þeim til Neskaupstaðar 1923, bjó hjá þeim í Miðhúsi þar.
Þau Björn Þórarinn giftu sig 1942, eignuðust átta börn, en eitt þeirra dó nýfætt. Þau bjuggu á Höfn í Hornafirði.
Björn Þórarinn lést 2000. Vilhelmína Sigríður dvaldi síðustu 10 árin á Hjúkrunarheimilinu á Höfn. Hún lést 2014.

I. Maður Vilhelmínu Sigríðar, (23. nóvember 1942), var Björn Þórarinn Ásmundsson sjómaður, f. 6. janúar 1918, d. 3. júní 2000. Foreldrar hans voru Ásmundur Ásmundsson í Baldurshaga í Fáskrúðsfirði, skipstjóri, f. 27. mars 1887, d. 29. mars 1966, og kona hans Jóhanna Sigríður Björnsdóttir húsfreyja, f. 21. september 1893, d. 15. september 1977.
Börn þeirra:
1. Hulda Valdís Þórarinsdóttir húsfreyja, f. 2. júní 1942. Maður hennar Hreinn Heiðar Hermannsson, látinn.
2. Guðrún Jóhanna Þórarinsdóttir húsfreyja, f. 1. júlí 1943. Maður hennar Birgir Björnsson, látinn.
3. Ásbjörn Þórarinsson rakari á Höfn, f. 16. janúar 1945, d. 8. mars 2019. Kona hans Vigdís Halldóra Vigfúsdóttir.
4. Elma Stefanía Þórarinsdóttir húsfreyja, f. 1. júlí 1947. Maður hennar Hafsteinn Esjar Stefánsson.
5. Stúlka, f. 1. júlí 1948, d. 1. júlí 1948.
6. Olga Þórarinsdóttir húsfreyja, f. 21. maí 1953. Maður hennar Jón Skeggi Ragnarsson.
7. Birna Þórarinsdóttir húsfreyja, f. 21. maí 1953. Maður hennar Guðmundur Hjaltason.
8. Sigurborg Þórarinsdóttir húsfreyja, f. 3. október 1958. Maður hennar Þorvaldur B. Gíslason, látinn.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.