Stefán Bjarnason (Birtingarholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Stefán Bjarnason sjómaður í Neskaupstað fæddist 10. júlí 1920 í Birtingarholti og drukknaði 13. apríl 1945.
Foreldrar hans voru Bjarni Vilhelmsson frá Hólum í Norðfirði, sjómaður, skipstjóri, útgerðarmaður, f. 12. apríl 1882, d. 4. október 1942, og kona hans Guðrún Halldórsdóttir frá Eyrarbakka, húsfreyja, f. 7. júní 1891, d. 21. janúar 1979.

I. Barn Bjarna Vilhelmssonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur:
1. Indíana Katrín Bjarnadóttir, f. 15. ágúst 1904 á Norðfirði, d. 10. maí 1989.
II. Barn Bjarna og Guðnýjar Sólveigar Gísladóttur:
2. Gísli Bjarnason í Neskaupstað, f. 14. september 1917, d. 23. febrúar 1993.
III. Barn Bjarna og Amalíu Gísladóttur:
3. Unnur Fjóla Bjarnadóttir, f. 2. janúar 1920, d. 15. febrúar 2010.
IV. Börn Bjarna og Jakobínu Guðbrandsdóttur, f. 11. október 1893, d. 20. janúar 1969.
4. Hans Einarsson Bjarnason, f. 3. maí 1912 í Stakkagerði-vestra, d. 3. október 1912 í Skuld.
5. Fanney Bjarnadóttir húsfreyja, f. 24. desember 1913 í Birtingarholti, d. 25. október 2008.
VI. Börn Bjarna og Guðrúnar Halldórsdóttur:
6. Hulda Bjarnadóttir húsfreyja, matráðskona í Reykjavík, f. 5. október 1918 á Norðfirði, d. 17. janúar 2014. Fyrri maður hennar var Valdimar S. Runólfsson, fórst með Gandi NK 85. Síðari maður hennar Finnbogi Ólafsson.
7. Stefán Bjarnason sjómaður í Neskaupstað, f. 10. júlí 1920 í Birtingarholti, d. 13. apríl 1945. Kona hans Elísabet Guðnadóttir.
8. Vilhelmína Sigríður Bjarnadóttir húsfreyja á Höfn í Hornafirði, f. 6. júlí 1921 á Hrafnabjörgum, d. 20. desember 2014. Maður hennar Björn Þórarinn Ásmundsson.
9. Guðfinna Bjarnadóttir húsfreyja, f. 23. desember 1922 á Kirkjuhól, d. 12. febrúar 1997. Maður hennar Jón Garðar Sigjónsson
10. Fjóla Bjarnadóttir húsfreyja í Keflavík, f. 26. mars 1924, d. 26. mars 2009. Maður hennar Haraldur Hermannsson.
11. Bjarni Bjarnason sjómaður í Hafnarfirði, f. 17. febrúar 1925 í Neskaupstað, d. 15. júní 2012. Kona hans Auður Sigurðardóttir.
12. Þuríður Bjarnadóttir, f. 3. mars 1926 í Neskaupstað, d. 26. febrúar 2015.
13. Lilja Bjarnadóttir, f. 20. apríl 1927, d. 24. júní 1928.
14. Lilja Bjarnadóttir, f. 24. ágúst 1928.
15. Ingvar Bjarnason sjómaður, verkamaður í Hafnarfirði, f. 8. september 1929, d. 10. apríl 2009. Fyrrum kona hans Aðalbjörg Björnsdóttir.
16. Olga Steinunn Bjarnadóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 26. október 1930, d. 16. október 2014. Maður hennar Stefán Runólfsson.
17. Guðrún Vibeka Bjarnadóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 4. janúar 1932, d. 31. október 2019. Maður hennar Guðbjartur Þorleifsson.
18. Kolbeinn Bjarnason, f. 18. desember 1933.
19. Halldór Bjarnason, f. 2. mars 1935, d. 28. júní 2012.
20. Þórður Bjarnason smiður, síðast í Kópavogi, f. 12. mars 1937, d. 18. júní 2018. Kona hans Arndís Ágústsdóttir.

Stefán var með foreldrum sínum í æsku, í Birtingarholti, á Hrafnabjörgum, flutti með þeim til Neskaupstaðar 1923 og bjó með þeim í Miðhúsi þar.
Hann var sjómaður, réri frá Hornafirði 1945, er hann drukknaði. Þau Elísabet giftu sig 1941, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í Neskaupstað.
Stefán lést 1945 og Elísabet 2004.

I. Kona Stefáns, (29. nóvember 1941), Elísabet Guðnadóttir húsfreyja, f. 24. október 1921 í Skotlandi, d. 4. janúar 2004. Foreldrar hennar voru Guðni Jónsson, síðar í Hvammi á Eskifirði, f. 7. október 1889, d. 25. janúar 1981, og kona hans Barbara Allan Jónsson, f. 20. júlí 1890 í Skotlandi, d. 30. október 1960.
Börn þeirra:
1. Bjarni Stefánsson, f. 3. júlí 1942.
2. Barbara Stefánsdóttir, f. 29. september 1943.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.