Friðrik Karlsson (Ingólfshvoli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Friðrik Karlsson, bókari, býr í Danmörku, fæddist 26. mars 1953.
Foreldrar hans voru Karl Kristmannsson kaupmaður, umboðsmaður, f. 21. nóvember 1911 í Steinholti, d. 19. janúar 1958, og kona hans Betsý Gíslína Ágústsdóttir frá Aðalbóli, húsfreyja, f. 28. nóvember 1919, d. 22. apríl 2016.

Börn Betsýjar og Karls:
1. Viktoría Karlsdóttir húsfreyja, f. 6. nóvember 1939, d. 31. október 2020. Maður hennar er Gísli Halldór Jónasson.
2. Kolbrún Stella Karlsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 2. mars 1941. Maður hennar er Birgir Jóhannsson.
3. Kristmann Karlsson kaupsýslumaður, f. 6. júní 1945. Kona hans er Kristín Bergsdóttir.
4. Ágúst Karlsson, f. 7. apríl 1949. Kona hans er Jensína María Guðjónsdóttir.
5. Friðrik Karlsson, f. 26. mars 1953, býr í Danmörku. Kona hans er Inga Dóra Sigurðardóttir.
Barn Karls og fósturbarn Betsýjar var
6. Ingibjörg Sigrún Karlsdóttir, f. 7. nóvember 1934, d. 22. mars 2020. Maður Ingibjargar var Jón Kristjánsson.

Þau Inga Dóra giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau búa í Danmörku.

I. Kona Friðriks er Inga Dóra Sigurðardóttir, húsfreyja, leiðbeinandi, f. 23. október 1954.
Börn þeirra:
1. Margrét Friðriksdóttir, f. 21. apríl 1973.
2. Karen Friðriksdóttir, f. 1. september 1974.
3. Sigrún Friðriksdóttir, f. 14. desember 1979.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.