Ósk Guðjónsdóttir (Oddsstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ósk Guðjónsdóttir og Jóhann Pálsson.

Ósk Guðjónsdóttir frá Oddsstöðum, húsfreyja fæddist 15. júlí 1914 og lést 1. febrúar 2006.
Foreldrar hennar voru Guðjón Jónsson bóndi og líkkistusmiður, f. 27. desember 1874, d. 25. október 1959, og fyrri kona hans Martea Guðlaug Pétursdóttir frá Þorlaugargerði, f. 1. mars 1876, d. 24. júní 1921.

Börn Guðjóns á Oddsstöðum og fyrri konu hans Marteu Guðlaugar Pétursdóttur voru.
1. Kristófer, f. 27. maí 1900, d. 11. apríl 1981.
2. Pétur, f. 12. júlí 1902, d. 21. ágúst 1982.
3. Jón, f. 2. ágúst 1903, d. 12 febrúar 1967.
4. Herjólfur, f. 25. desember 1904, d. 31. janúar 1951.
5. Fanný, f. 4. mars 1906, d. 26. nóvember 1994.
6. Njáll Guðjónsson, f. 31. mars 1907, d. 16. janúar 1909 samkv. dánarskrá, en skráður tveggja mánaða gamall þar.
7. Njála, f. 22. desember 1909, d. 16. apríl 1997.
8. Guðmundur, f. 28. janúar 1911, d. 18. desember 1969.
9. Árni Guðjónsson, f. 21. júní 1912, d. 2. júní 1923.
10. Ósk, f. 15. júlí 1914, d. 1. febrúar 2006.
11. Guðrún Guðjónsdóttir, f. 12. september 1915, d. 22. nóvember 1918.

Börn Guðjóns og síðari konu hans Guðrúnar Grímsdóttur húsfreyja, f. 10. júní 1888, d. 4. maí 1981.
12. Ingólfur, f. 7. febrúar 1917, d. 16. nóvember 1998.
13. Guðlaugur, f. 2. júní 1919, d. 2. júní 2008.
14. Árni, f. 12. mars 1923, d. 16. nóvember 2002.
15. Vilborg, f. 22. ágúst 1924, d. 8. maí 2015.
Fósturbörn Guðrúnar og Guðjóns voru:
16. Hjörleifur Guðnason, f. 5. júní 1925, d. 13. júní 2007, systursonur Guðrúnar.
17. Jóna Halldóra Pétursdóttir sonardóttir Guðjóns, f. 18. ágúst 1933.

Ósk var með foreldrum sínum meðan beggja naut við, en hún var tæpra 7 ára, er móðir hennar lést.
Hún var síðan með föður sínum og stjúpmóður Guðrúnu Grímsdóttur.
Þau Jóhann giftu sig 1935, bjuggu á Oddsstöðum við fæðingu Guðrúnar á því ári.
Þau voru á Heimagötu 20, (Karlsbergi) 1937 við fæðingu Ragnhildar og við fæðingu Steinars 1943, en bjuggu á Helgafellsbraut 19 við fæðingu Herjólfs 1960.
Í Gosinu fluttu þau til Reykjavíkur og bjuggu þar til æviloka.
Jóhann lést 2000 og Ósk 2006.

Maður Óskar, (2. nóvember 1935) var Jóhann Steinar Pálsson skipstjóri, útgerðarmaður, f. 30. apríl 1908, d. 16. febrúar 2000.
Börn þeirra:
1. Guðrún Jóhannsdóttir húsfreyja, verslunarrekandi, hótelrekandi, f. 12. ágúst 1935 á Oddsstöðum.
2. Ragnhildur Sigurfinna Jóhannsdóttir húsfreyja, veitingahússrekandi, f. 17. september 1937 á Heimagötu 20.
3. Steinar Óskar Jóhannsson rafvirki, starfsmaður hjá Danfossumboðinu f. 9. mars 1943 á Heimagötu 20, d. 22. október 2019.
4. Herjólfur Jóhannsson trésmiður í Noregi, f. 19. júní 1960.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.