Menning

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Menning:     HátíðirÍþróttirÞjóðsögurFólkKirkjumálFélögSkipafloti VestmannaeyjaHúsin á HeimaeyRitsafn


Vestmannaeyjar hafa verið mikilvægasta verstöð landsins til fjölda ára og byggist afkoma heimamanna að mestu leyti á fiskvinnslu og útgerð. Auk þess eru ört vaxandi atvinnuvegir eyjaskeggja í dag ferðaþjónusta, verslun, skipaviðgerðir og menntun. Vestmannaeyingar vonast til að ferðaþjónusta aukist, bæði til að bæta atvinnuástand og fleiri fái að upplifa það sem eyjarnar hafa upp á að bjóða. Í Eyjum hafa verið teknir upp nokkrir sjónvarpsþættir og kvikmyndir. Menning væri ekkert án fólksins og því er áhersla lögð á góða umfjöllun um mannflóruna á Heimaslóð. Bæði má leita einstaklings í leit og vafra í nafnalistum.

Mörg póstkort hafa verið gefin út með myndum af Vestmanneyjum.

Skólamál

Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum er í stöðugri sókn, meðal annars er reynt að lokka námsmenn annars staðar af landinu til Eyja en tilraunir hafa staðið yfir með að bjóða námsmönnum af Suðurlandi til staðarins. Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri hafa komið sér upp útibúum á Heimaey og er öflugt starf unnið í fjarnámi, þar sem boðið er upp á kennaranám, viðskiptafræði og margt fleira. Grunnskólarnir eru tveir, Barnaskólinn í Vestmannaeyjum og Hamarsskóli Vestmannaeyja. Grunnskólarnir voru nýlega sameinaðir undir einni yfirstjórn, og ber nafnið Grunnskóli Vestmannaeyja og skólastjóri er Fanney Ásgeirsdóttir.Tveir leikskólar sinna yngstu kynslóðinni; Kirkjugerði og Sóli. Árið 2007 voru Rauðagerði og Sóli sameinaðir undir nafni Sóla í nýju glæsilega húsnæði.

Söfn

Mörg söfn eru í Vestmannaeyjum, en Safnahús Vestmannaeyja sem stendur við Ráðhúströð hýsir Héraðsskjalasafn Vestmannaeyja, Bókasafn Vestmannaeyja og Byggðasafn Vestmannaeyja. Einnig er þar til húsa Ljósmyndasafn. Við Heiðarveg stendur Náttúrugripasafn Vestmannaeyja, en það er eina safnið af sinni gerð á Íslandi. Við Skansfjöru er húsið Landlyst, sem áður var staðsett á Tanganum, suður af Básaskersbryggju, en það hús var fyrsta fæðingarheimilið á Íslandi. Ríkisstjórn Íslands keypti í desember 2004 afnotarétt af myndum Sigmunds sem hafa birst í áraraðir í Morgunblaðinu, og eru áætlanir um að setja upp safn af þeim í fyrirætluðu menningarhúsi. Í Eyjum er fjöldi listaverka og minnisvarða.

Orðaforði og málvenjur

Sjá aðalgrein:Orðaforði og málvenjur

Algengt var að eldri Vestmannaeyingar töluðu með flámæli, en það er óalgengara meðal yngri kynslóðanna og er flámæli nú nær óþekkt. Á einangröðum stöðum eins og Vestmannaeyjum má búast við að nokkuð sértækur orðaforði verði til.

Hátíðir

Sjá aðalgrein:Hátíðir

Margir fastir viðburðir eru í Vestmannaeyjum ár hvert. Helst er að nefna Þjóðhátíðina, Sjómannadaginn, Goslokahátíðina, Pysjuævintýrið og fjöldann af íþróttamótum.

Samgöngur

Sjá aðalgrein:Samgöngur

Góðar samgöngur eru við Eyjar hvort sem er með flugi eða ferju. Á síðustu árum hafa verið uppi miklar vangaveltur um það hvort mögulegt sé að grafa jarðgöng til Vestmannaeyja, og hefur verið stofnað áhugamannafélagið Ægisdyr um gerð slíkra gangna. Ekki eru allir sammála um að göng sé rétta lausnin, en eru þó bæjabúar upp til hópa sammála um að samgöngur milli lands og eyja þurfi að bæta.

Farþegaskipið Herjólfur siglir alla daga tvær ferðir, og getur skipið borið 500 farþega og um 60 fólksbíla.

Flugsamgöngur eru algjörlega háðar veðri, en flogið er á milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur, og einnig Bakkaflugvallar. Landsflug sér um flug til Reykjavíkur, og Flugfélag Vestmannaeyja um flugið á Bakka og aðra áfangastaði á Suðurlandi. Fyrsta flug til Eyja átti sér stað árið 1928 eftir nokkrar tilraunir árin áður.